Morgunblaðið - 25.11.2000, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
272. TBL. 88. ÁRG.
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Riðuveiki
greind
í þýskum
kúm
Bcrlín.AFP.AP.
ÓTTI manna um að riðuveiki
væri útbreiddari en áður var
talið var staðfestur í gær, þegar
fregnir bárust af því að veikinn-
ar hefði orðið vart í nautgripum
í Þýskalandi og á Azor-eyjum.
Þjóðverjar hafa löngum full-
yrt að nautgripir í landinu væru
lausir við riðu, en yfirvöld í
Slésvík-Holtsetalandi tilkynntu
í gær að smit hefði fundist í
einni kú í sambandsríkinu, á
einu mesta landbúnaðarsvæð-
inu í Þýskalandi. Kýrin kom í
heiminn árið 1996, en henni
hefur nú verið slátrað, sem og
öllum þeim dýrum sem hafði
verið gefið sama fóður.
Sex tilfelli kúariðu komu upp
í Þýskalandi á árunum 1994-
1997, en í öllum tilvikum var um
að ræða innflutta nautgripi,
sem voru sýktir við komuna til
landsins.
Öilum nautgripum
á Azor-eyjum slátrað
Fregnir bárust einnig af því í
gær að riðuveiki hefði greinst á
Azor-eyjaklasanum, f kú sem
borin var í Þýskalandi. Kýrin,
sem var flmm vetra gömul, var
flutt til eyjarinnar Sao Miguel
fyrir tveimur árum, en ekki er
ljóst hvenær hún smitaðist af
sjúkdómnum.
Er þetta fyrsta tilfelli riðu-
veiki sem greinst hefur á Azor-
eyjum, og í kjölfarið hefur verið
ákveðið að slátra öllum naut-
gripum á eyjunum, um 2.650
dýrum.
Hæstiréttur tekur fyrir áfrýjun repúblikana vegna handtalningar í Flórída
Áfangasigur fyrir Bush
Washington. AFP, AP.
HÆSTIRÉTTUR Bandaríkjanna
ákvað í gærkvöld að taka fyrir áfrýj-
un Georges W. Bush, forsetaefnis
repúblikana, á dómi hæstaréttar í
Flórída, en repúblikanar krefjast
þess að niðurstaða handtalningar at-
kvæða í ríkinu verði ekki tekin gild.
Málflutningurinn fer fram á föstu-
daginn í næstu viku. Er þetta talinn
mikill áfangasigur fyrir Bush.
Dómarar hæstaréttar samþykktu
að hlýða á röksemdir repúblikana
fyrir því að úrskurði hæstaréttar
Flórída, þess efnis að handtalning
atkvæða í nokkrum sýslum ríkisins
væri heimil, skyldi hnekkt. Lögfræð-
ingar Bush halda því fram að sú
staðreynd að handtalning fari aðeins
fram í þremur af 67 sýslum Flórída
brjóti í bága við 14. breytingar-
ákvæði bandarísku stjórnarskrár-
innar, sem kveður á um að allir skuli
njóta jafnrar verndar laganna. Mál-
flutningurinn mun standa yílr í eina
og hálfa klukkustund.
Stuðningsmenn Bush lýstu yfír
ánægju með ákvörðun hæstaréttar,
en David Boies, lögfræðingur Als
Gores, kvaðst ekki búast við því að
rétturinn ógilti úrskurð æðsta dóm-
stóls Flórída.
Munurinn fer minnkandi
Handtalning atkvæða fer nú fram
í tveimur sýslum Flórída, Broward
og Palm Beach, og henni verður
haldið áfram um helgina, enda fól
áfrýjun repúblikana ekki í sér kröfu
um að hún yrði stöðvuð, heldur að
niðurstaðan hefði ekki áhrif á loka-
úrslit í ríkinu. Sýslumar verða að
skila niðurstöðum handtalningar af
sér klukkan 17 að staðartíma á
morgun, sunnudag, og innanríkis-
ráðherra Flórída, Katherine Harris,
hyggst lýsa yfir úrslitum í ríkinu um
klukkustundu síðar.
Aður en handtalningin hófst hafði
George W. Bush 930 atkvæði um-
fram A1 Gore, en um miðjan dag í
gær hafði hún leitt til þess að forskot
Bush hafði minnkað í 724 atkvæði.
Gore virtist nær eingöngu vera að
vinna á í Broward-sýslu, en hand-
talningin virtist breyta afar litlu í
Palm Beach. Eftir ákvörðun hæsta-
réttar í gær er ljóst að jafnvel þótt
Gore yrði með fleiri atkvæði en Bush
í Flórída eftir handtalninguna, gæti
hann ekki lýst yfir sigri á sunnudag.
Cheney heim af sjúkrahúsi
Dick Cheney, varaforsetaefni
repúblikana, fékk að fara heim af
sjúkrahúsi í gær, en hann fékk vægt
hjartaáfall á miðvikudag. Cheney
sagði eftir útskriftina af sjúkrahús-
inu að „engar hömlur“ væru á hann
lagðar, sem gætu hindrað hann í að
takast á hendur embætti varafor-
seta.
AP
Umhverfísverndarsinnar stóðu í gær fyrir táknrænum mótmælum fyrir framan ráðstefhuhöllina í Haag.
Ovíst um
niðurstöður
í Haag
Haag. Morgunblaðið.
RÁÐHERRAB þeirra 180 landa,
sem taka þátt í loftslagsráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna í Haag, áttu
að funda í nótt til að freista þess að
komast að samkomulagi um út-
færslu Kyoto-bókunarinnar.
Miðað við hve langt var í land í
gærkvöldi var talið ósennilegt að
niðurstaðan gæti orðið sérlega ná-
kvæm. Búist var við að það yrði
óljóst fram á sfðustu stundu hvort
íslenska sérmálið um að tekið yrði
tillit til einstakra verkeftia í litlum
hagkerfum, sem í raun þýðir að
svigrúm verði til að auka stóriðju á
íslandi, yrði með í niðurstöðunum.
Yasser Arafat ræddi við Ehud Barak í gegnum síma frá Moskvu
Samstarf öryggissveita
þjóðanna tekið upp á ný
Gaza-borg, Jerúsalem, Moskva. AFP, AP.
EHUD Barak, forsætisráðherra
ísraels, og Yasser Arafat, leiðtogi
Palestínumanna, samþykktu í gær að
taka á ný upp samstarf milli öryggis-
sveita þjóðanna og að samstarfsskrif-
stofur þeirra yrðu opnaðar aftur.
Arafat átti í gær fund með Vladímír
Pútín Rússlandsforseta í Moskvu, og
ræddi hann við Barak símleiðis það-
an.
AF'P-íréttastofan greindi frá því að
eftir að fundur Pútíns og Ai-afats
hefði staðið yfir í tvær klukkustundir
hefði Rússlandsforseti staðið upp,
tekið upp símann á skrifstofu sinni og
hringt í Barak. Eftir að þeir höfðu
rætt saman í nokkra stund mun Pútín
hafa rétt Arafat símtólið. Að sögn
ísraelskra embættismanna hét Ara-
fat því í samtalinu við Barak að hann
myndi gera allt sem í sínu valdi stæði
til að stöðva ofbeldisverk á sjálf-
stjómarsvæðum Palestínumanna, en
átökin hafa nú staðið í tvo mánuði.
Pútín og Arafat í Moskvu í gær. AP
Samstarfsskrifstofur ísraela og settar á fót í kjölfar Óslóar-friðar-
Palestínumanna, sem Barak og Ara- samkomulagsins, en þær eru síðustu
fat samþykktu að opna á ný, voru leifar samstarfs þjóðanna í öryggis-
málum. ísraelsstjóm sleit samstarf-
inu á fimmtudag, eftir að ísraelskur
hermaður beið bana í sprengjuárás á
samstarfsskrifstofu á Gaza-svæðinu.
Áður en Arafat hélt frá Moskvu f
gærkvöldi sagði hann við fréttamenn
að þátttaka Rússa í friðarumleitunum
milli ísraela og Palestínumanna væri
„afar þýðingarmikil“. Rússar hafa
ekki látið mikið að sér kveða í friðar-
viðræðum milli þjóðanna að undan-
förnu, og þótti fjarvera þeirra á leið-
togaíúndinum í Egyptalandi í síðasta
mánuði bera vott um áhrifaleysi
þeirra. En stjómmálaskýrendur
sögðu í gær að fundur Pútíns og Ara-
fats væri ef til vill til marks um að
Rússar myndu leika stærra hlutverk í
friðarferlinu á næstunni. Tilkynning
ísraela síðdegis um að utanríkisráð-
herrann Shlomo Ben-Ami myndi
halda til viðræðna við rússneska
ráðamenn í Moskvu í næstu viku þótti
renna stoðum undir þá kenningu.
Steinn Steinan
Hver var
hann í raun
og veru?
tJpO
JPV FORLAG
MORGUNBLAÐIÐ 25. NÓVEMBER 2000