Morgunblaðið - 25.11.2000, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Trúðslæti
í ljósa-
dýrðinni
JÓLIN ERU af mörgtim talin hátíð
barnanna. Þessi hátíð ljóss og frið-
ar hefur haldiö innreið sína í versl-
anir þar sem glaðbeittur trúður
gladdi hjörtu barna á öllum aldri
með heilum dýragarði undravera
sem hann galdraði fram úr
skræpóttri erminni.
----f-4-4---
Innbrot í Há-
*
skóia Islands
upplýst
LÖGREGLAN í Reykjavík hefur
upplýst innbrot í húsnæði Háskóla
íslands við Dunhaga aðfaranótt
fimmtudags. Þar var stolið ýmsum
tölvubúnaði fyrir u.þ.b. hálfa milljón
króna.
Fjórir menn á aldrinum 14-22 ára
voru handteknir vegna málsins. Þýf-
ið fannst við leit og er málið talið
upplýst. Ætlunin var að koma því í
verð fyrir fíkniefni. Við leitina fannst
auk þess þýfi úr öðrum innbrotum,
m.a. í bifreið og í heimahús í Kópa-
vogi.
Morgunblaðið/Jim Smart
Kennari löggiltra verðbréfa-
miðlara um dóm Hæstaréttar
Tímamót sem hafa
ófyrirséð áhrif
NIÐURSTAÐA Hæstaréttar um
að hafna kröfu manns, sem krafðist
riftunar og skaðabóta vegna hluta-
fjárkaupa í Handsali þar sem hann
hafi fengið rangar upplýsingar um
raunvirði félagsins og útboðslýsing
hafi ekki legið fyrir, sem skylt var,
virðist marka ein mestu tímamót
sem orðið hafa í sögu hins unga
íslenska verðbréfamarkaðar og
mun hafa ófyrirséð áhrif, að því er
fram kemur í grein Helgu Hlínar
Hákonardóttur, lögfræðings hjá
Íslandsbanka-FBA og kennara á
námskeiði til prófs í verðbréfamiðl-
un, í Morgunblaðinu í dag.
Niðurstaðan byggðist m.a. á því,
„að vegna ósamrýmanleika skil-
greiningar gildandi laga á almennu
útboði annars vegar og reglugerð-
ar sem sett er til nánari útlistunar
á reglum um almennt útboð hins
vegar, þá hafi reglugerðin ekki
gildi. Réttarvemd laganna nái því
ekki til kaupandans og var seljandi
bréfanna sýknaður," eins og segir í
grein Helgu Hlínar. Ákvæði reglu-
gerðarinnar séu tekin orðrétt úr
tilskipun EBE/89/298 um skil-
greiningu á almennu útboði.
Hún gagnrýnir að með niður-
stöðu Hæstaréttar sé numin úr
gildi sú áralanga venja að skil-
greina almennt útboð sem boð um
kaup á verðbréfum sem beint er til
fleiri en 25 aðila. „Eitt og sér er að
fella úr gildi undanþáguna um lok-
uð útboð (25 aðiiar), sem var að
finna í reglugerðinni, en að fella
jafnframt úr gildi venju um túlkun
almenns útboðs sem framkvæmd
hefur verið þorrann úr síðasta ára-
tug, er torskilið. Hæstiréttur gerir
hins vegar enga tilraun til að varpa
ljósi á það hvað telst til almennings
í skiiningi laganna, né heldur rök-
styður dómurinn af hverju ofan-
greind sala til 34 aðila telst ekki til
almenns útboðs. Tilraun dómsins
til að vísa til þess að kaupendumir
hafi samanstaðið af hluthöfum og
öðmm aðilum, sem stjómin leitaði
til, skiptir engu í þessu máli, þar
sem jafnvel hlutafjárhækkun í fé-
lagi sem telur fleiri en 25 aðila, get-
ur ekki farið fram nema gefin sé út
útboðslýsing fyrir hluthafana eina
saman.“
„Niðurstaðan hefur vægast sagt
ófyrirséð áhrif hér á landi,“ segir
hún ennfremur. „Undirrituð telur
að margir útgefendur, sem hafa
lagt í kostnað vegna almennra út-
boða, við starfsmenn verðbréfafyr-
irtækja sem höfum lagt vinnu í
gerð útboðslýsinga og áreiðan-
leikakannana, laga- og reglugerða-
smiðir og fieiri, hljótum að hugsa
hvað við höfum eiginlega verið að
gera síðastliðin fjögur árin.“
■ Voru útbodsreglur/69
Mikið ber í milli í deilu framhaldsskólakennara og ríkisins
Sáttasemjari áformar
fundahöld eftir helgi
STUTTUR og árangurslaus fundur
var haldinn hjá ríkissáttasemjara á
fimmtudag í kjaradeUu framhalds-
skólakennara við ríkið. Kennarar líta
svo á að viðræðum hafi verið shtið en
Þórir Einarsson ríkissáttasemjari
sagði við Morgunblaðið í gærkvöldi að
hann áformaði fund með deiluaðilum
á mánudag.
Elna Katrín Jónsdóttir, formaður
samninganefndar ríksins, sagði í sam-
tah við Morgunblaðið að niðurstaða
fundarins á fimmtudag gæfi ekki til-
efni th bjartsýni á að deUan leystist í
bráð. VUjaleysi til samninga væri
áberandi af hálfu ríkisins. Þegar þessi
ummæli voru borin undir Gunnar
Bjömsson, formann samninganefnd-
ar ríkisins, vísaði hann þeim á bug.
Það þyrfti tvo tU í öllum samningum.
Deilan væri vissulega í erfiðri stöðu
þar sem mikið bæri í mUli.
Elna Katrín nefndi einkum tvö at-
riði sem hindruðu samningagerð.
Fyrir það fyrsta hefði ríkið lagt fram
kröfij um aukna kennsluskyldu kenn-
ara, sem ekki væri hægt að sætta sig
við, og fjármagn inn í samningana
hefði ekki verið aukið af hálfu rUdsins.
Þetta tefði fyrir vinnu og umræðu um
nýtt launakerfi, sem Elna Katrín
sagði hafa verið helsta broddinn í við-
ræðunum.
„Kennarar geta illa sætt sig við að
fara að hækka kennsluskyldu núna
árið 2000, sérstaklega vegna þess að
árið 1997 var samið um þá kennslu-
skyldu sem við erum með núna vegna
nýju framhaldsskólalaganna. Bæði
þurftum við að eyða tíma og púðri og
fóma talsverðu til að koma kennslu-
skyldunni í almennilegt horf,“ sagði
Elna Katrín.
Hún sagði að eitthvað nýtt þyrfti að
gerast í kjaradeilunni sem gæfi
möguleika á að viðræður hæfust að
nýju. Deilan væri á því stigi að póli-
tískar lausnir þyrftu að koma til.
„Það fer að stinga bráðlega í augun
þegar menn eru að tala um það sýknt
og heUagt að kröfur kennara séu svo
háar, þá virðist það gjaman gleymast
að í samningum reyna menn alltaf að
bjóða eitthvað hver á móti öðmm.
Samninganefnd ríkisins hefur nær
ekkert komið til móts við kennara
varðandi þeirra kröfur," sagði Elna
Katrín ennfremur.
Deilan í pattstöðu
Gunnar Bjömsson sagði að fram-
haldsskólakennarar hefðu sett fram
kröfur sem væm langt umfram það
sem hægt væri að koma til móts við.
Kröfumar væm þess eðhs, að ef rfldð
samþykkti þær væri umsamin launa-
stefna farin fyrir bí.
„Hins vegar teljum við að þetta sé
ekld vonlaust. Við skildum fundinn á
fimmtudag þannig að sáttasemjari
myndi boða til fundar aftur á mánu-
dag klukkan tvö. Við litum því ekki á
þetta sem viðræðusht, heldur að þess-
um tiltekna fundi væri slitið.“
Gunnar sagði að það þýddi ekki
viljaskort til samninga þegar annar
aðihnn væri ekki tilbúinn að taka und-
ir það sem hinn segði. Það gæti einnig
þýtt að framsettar kröfur væm óað-
gengilegar. „Hvor um sig hefur
ákveðnar forsendur til að ganga út frá
við samningsgerð. Kennarar hafa
ekki verið tilbúnir að ræða okkar for-
sendur, og þar af leiðandi er deilan í
pattstöðu," sagði Gunnar.
Varðandi kröfú um aukna kennslu-
skyldu sagði Gunnar að umræðan í
fjölmiðlum væri á vilhgötum. Hann
minnti á að kennsluskyldu hefði verið
breytt í gegnum tíðina, hún væri ekki
eitthvað sem væri greypt í stein.
„Við höfum sett fram hugmyndir
um að gegn því að taka meira af yfir-
vinnu inn í dagvinnuna þá væri hægt
að auka við kennsluskyldu, mismikið
eftir einstökum hópum kennara.
Þetta var frá 0,1 kennslustund upp í 2
stundir hjá þeim sem tækju mest á
sig, sem er mjög lítill hópur. Að halda
því fram að við séum að gera kröfu
um að allir kennarar taki á sig allt að
tveggja stunda aukningu, er verulega
orðum aukið. Við htum svo á að þetta
atriði kjarasamnings, sem önnur, sé
laust til endurskoðunar. Til að leysa
þessa erfiðu deilu eru aðilar nánast
skyldugir til að skoða alla fleti sein
koma upp,“ sagði Gunnar.
í dag
m
SLOKKVIUPS im
r.Tsrr.:."— AtAPUK/fftf
■—4 BkC má MOIU.UNBLAÐSINS •
IJjoDOiv
ALAUGARDOGUM
Með Morgun-
blaðinu í dag
fylgir blað frá
Landssambandi
slökkviliðs- og
sjúkraflutninga-
manna,
„Slökkviliðs-
maðurinn11.
4SÍMM
Orn á öll skrið-
sundsmetin/Bl
Grótta/KR í þriðja sæti
eftir sigur í Eyjum/B3
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is