Morgunblaðið - 25.11.2000, Side 6
6 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Landsbjörg vill fækka stjórn-
stöðvum í landinu úr sjö í eina
Morgunb]aðið/Ami Sæberg
Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra setti ráðstefnuna Björgun 2000 á Grand Hótel Reykjavík í gaer.
RÁÐSTEFNAN Björgun 2000 var
sett á Grand Hótel Reykjavík f gær
af Sólveigu Pétursdóttur dóms-
málaráðherra. Ráðstefnan er hald-
in um helgina á vegum Slysavarna-
félagsins Landsbjargar og er sú
viðamesta á sviði björgunar- og ör-
yggismála sem haldin hefur verið
hér á landi. Björgun er heiti á ráð-
stefnum sem hafa verið haldnar
annað hvert ár frá árinu 1990 og
einkum ætlaðar björgunarsveitum,
lögregluembættum, slökkviliðum,
heilbrigðisstarfsfólki, Rauða kross-
inum og öðrum sem að þessum mál-
um koma. Fjöldi innlendra og er-
lendra fyrirlesara tekur þátt í
ráðstefnunni, auk þess sem mál-
stofur og vinnuhópar setja mark
sitt á hana.
Jón Gunnarsson, formaður
Landsbjargar, flutti erindi við setn-
ingu ráðstefnunnar í gær um nýjar
hugmyndir og framtíðarsýn
Landsbjargar á sviði stjórnunar
neyðaraðgerða hér á landi. Yfir-
skrift erindisins var „Eitt land -
eitt stjómkerfi". f samtali við
Morgunblaðið sagði Jón að megin-
þema ráðstefnunnar væri stjórn-
stöðvamál og stjórnun björgunar-
aðgerða.
„Við leggjum fram tillögur á ráð-
stefnunni að því hveraig við sjáum
stjórakerfi björgunaraðgerða okk-
ar í framtíðinni. Þá á ég við alla
viðbragðsaðila. I dag eru í raun sjö
stjórnstöðvar til i landinu en við
viljum sjá eina stjórastöð fyrir allt
landið. Við teljum þetta raunhæft
markmið," sagði Jón.
Stjórastöðvaraar sem Jón á við
eru Neyðarlínan, samræmingar-
stöð Almannavaraa ríkisins, fjar-
skiptamiðstöð ríkislögreglustjóra,
stjórnstöð Landhelgisgæslunnar,
sjóbjörgunarmiðstöð Slysavaraafé-
lagsins Landsbjargar í tengslum
við Tilkynningarskyldu fslenskra
skipa, Landsbjörg björgunarsveita
og Ioks björgunarmiðstöð Flug-
málastjórnar.
„Þetta eru aðilar sem allir vinna
saman þegar til kastanna kemur.
Málið er að ná þeim öllum saman í
eina stjórnstöð á landsvísu og síðan
yrðu umdæmisstjórastöðvar um
landið. Það er aukaatriði hvar þessi
stjórastöð yrði staðsett, aðalatriðið
er að koma henni á,“ sagði Jón.
Landhelgisgæslan
og sjómenn með fyrirvara
Hann sagði einnig þann mögu-
leika vera fyrir hendi að skilja á
milli lands- og sjóbjörgunar.
Ástæðan er sú, að sögn Jóns, að
Landhelgisgæslan hefur sett fyrir-
vara við eina stjórnstöð allra að-
gerða vegna trúnaðarupplýsinga
sem gæslan er að höndla.
„Á móti kemur að sjómenn hafa
ekki viljað að upplýsingar hjá Til-
kynningarskyldunni séu inni á
borði Landhelgisgæslunnar. Við
vih’um trúa því að hægt sé að yfir-
stíga þetta með viðræðum á milli
aðila og byggja upp þannig traust
að þetta geti verið á einum stað.
Okkar sýn er að þetta sé besta
lausnin," sagði Jón.
Gengi krónunnar styrktist
í miklum viðskiptum í gær
GENGI krónunnar styrktist mikið í
miklum viðskiptum í gær og hækk-
aði gengið um tæplega 2% eftir stöð-
ugt sig undanfama daga. Seðlabank-
inn kom af meiri krafti inn á
markaðinn en hann hefur gert í inn-
gripum síðustu daga og fylgdu aðrir
markaðsaðilar í kjölfarið.
Gengisvísitala krónunnar var
121,4 við upphaf viðskipta í morgun,
sem er 5,56% yfír miðgildi, en við lok
viðskipta var hún í 119,18, sem er
3,62% yfir miðgildi. Talsverðar
sveiflur voru innan dagsins og fór
gengisvísitalan hæst í 118,55. Veltan
var um 13 milljarðar króna, sem er
meira en fjórföld viðskipti á venju-
legum degi, en þar af keypti Seðla-
bankinn krónur fyrir um 1,5 millj-
arða kr.
Birgir ísleifur Gunnarsson, seðla-
bankastjóri, sagði að Seðlabankinn
hafi komið af svolítið meiri krafti inn
á markaðinn í gærmorgun heldur en
þeir hefðu gert undanfarna þrjá
daga. „Við vildum með því senda
mjög skýr skilaboð inn á markaðinn
og undirstrika það sem við höfum
verið að segja undanfarna daga að
við munum veija vikmörk krónunn-
ar og viljum ekki sjá hana veikjast
mikið meira heldur en hún hafði
gert,“ sagði Birgir ísleifur.
Hann sagði að þetta virtist hafa
haft góð áhrif á markaðinn. Hann
hafi fylgt á eftir og veltan hafi orðið
allmikil eða um 13 milljarðar króna.
„Við erum mjög ánægðir með
hvernig til hefur tekist," sagði Birgir
ísleifur.
Hann bætti því við að bankinn
myndi áfram fylgjast náið með fram-
vindunni í þessum efnum næstu
daga.
Borgarstj órnarflokkur sjálfstæðismanna boðar tillöguflutning
Vilja endur-
reisa Miðbæj-
arskólann
SJÁLFSTÆÐISMENN í borgar-
stjórn ætla að leggja til í borgarráði
að grunnskóli verði rekinn að nýju í
húsi Miðbæjarskólans.
Inga Jóna Þórðardóttir, oddviti
borgarstjórnarflokks sjálfstæðis-
manna, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að tillagan tengdist annars
vegar þörf fyrir aukið skólarými i
Miðbænum í tengslum við áform um
byggmgu 250 íbúða í Skuggahverfi
og hins vegar væri nauðsynlegt að
huga að almennri stefnumörkun
varðandi starfsemi Fræðslumið-
stöðvar Reykjavíkur, sem hefur nú
aðsetur í húsi Miðbæjarskólans.
Inga Jóna segir að sjálfstæðismenn
vilji finna starfsemi Fræðslumið-
stöðvar annan stað en fela jafnframt
einstökum skólum verkefni hennar
að eins miklu leyti og unnt er.
Inga Jóna sagði að auk bygging-
anna í Skuggahverfi yrði byggð í
miðborginni væntanlega þétt á
nokkrum stöðum á næstu árum.
Þörf vegna bygginga
íSkuggahverfi
„Mér virðist einsýnt að það verði
þörf á nýju skólahúsnæði á miðborg-
arsvæðinu innan tíðar, Austurbæjar-
skóli tekur ekki við meiru þannig að
við munum leggja áherslu á að Mið-
bæjarskólinn verði aftur tekinn til
fyrri nota sem grunnskóli,“ sagði
hún.
Inga Jóna sagði að sjálfstæðis-
menn hefðu á sínum tíma mjög gagn-
rýnt þá ráðstöfun að hætta kennslu í
húsi Miðbæjarskólans og leggja það
undir Fræðslumiðstöð. Síðast var
Miðskólinn þar með starfsemi ásamt
kvöldskóla Námsflokka Reykjavíkur
en undanfarin ár hefur Fræðslumið-
stöðin ein haft húsið til afnota og
sagði Inga Jóna að segja mætti að
skólastarfið hefði orðið að hopa und-
an útþenslu fræðslumiðstöðvar sem
sífellt þurfi meira pláss og fleira
starfsfólk.
Fræðslumiðstöð endurskoðuð
Hún sagði að sjálfstæðismenn
teldu málið tvíþætt. Annars vegar
vildu þeir að gerð yrði tillaga sem
miðar að endurskoðun Fræðslumið-
stöðvar þannig að skólunum verði
falin þau verkefni hennar sem þeir
geta sinnt. Þeirri starfsemi sem
nauðsynlega þurfi að fara fram á
sameiginlegri skrifstofu verði fundið
nýtt skrifstofuhúsnæði.
Miðbæjarskólahúsið er friðað og
við innréttingu þess í þágu Fræðslu-
miðstöðvar var þess gætt, að sögn
Ingu Jónu, að eyðileggja ekki skóla-
stofurnar. Því telur hún lítið mál að
koma því í fyrra horf. Endurbætur
þær sem fram hafa farið á húsinu
muni einnig skila sér í þágu nýs skóla
á ýmsan hátt.
Inga Jóna kvaðst ekki telja að
hægt væri að fullyrða fyrr en eftir
könnun hve stóran grunnskóla yrði
hægt að reka í húsinu þannig að það
samræmist nútíma kröfum til stærð-
ar bekkja og rýmis nemenda. „Það
yrði náttúrlega ekki skóli af íúllri
stærð,“ sagði hún og minnti á að Mið-
skólinn, sem hafði síðast skólaað-
stöðu í húsinu kenndi aðeins miðstigi
grunnskólans, þ.e. 9-12 ára bömum.
„Það þarf að setja af stað vinnu við
að skoða þetta og við viljum hafa tím-
ann fyrir okkur áður en nýtt hverfi
fer að byggjast upp,“ sagði Inga
Jóna og kvaðst eiga von á að tillaga
sjálfstæðismanna yrði lögð fyrir
borgarráð í næstu viku eða þeirri
þamæstu.
Leitar-
hundur j
fann pilta
LÖGREGLUMENN í Hafn-
arfirði nutu aðstoðar sérþjálf-
aðs fikniefnaleitarhunds við
leit að ungmennum sem hlupu
undan lögreglumönnum í
fyrrakvöld.
Um miðnætti komu lög-
reglumenn að tveimur bílum
skammt austan Hvaleyrar-
vatns sem í vom fimm piltar á
aldrinum 17-18 ára, en gmnur
lék á að þeir væm að neyta
fíkniefna. Þegar lögregla nálg-
aðist flúðu piltarnir á hlaup-
um.
Var þá sóttur leitarhundur
til fíkniefnalögreglunnar í
Reykjavík. Þegar lögreglu-
mennimir sneru aftur með
hundinn gáfu fjórir piltanna
sig strax fram. Þegar sá
fimmti skilaði sér ekki var
hundurinn sendur til að leita
hans. Hann fannst svo á fjall-
inu Selhöfða þar sem hann var
nánast kominn upp á topp en
hafði lagst þar fyrir.
Nokkuð kalt var í veðri og
auk þess að vera orðinn mjög
kaldur var pilturinn í annar-
legu ástandi, líklega af því að
hafa neytt e-taflna.
■ jt
Reykjavíkur-
prófastsdæmi
Nýr prófast-
ur útnefndur
BISKUP íslands hefur út-
nefnt séra Gísla Jónasson,
sóknarprest í Breiðholts-
prestakalli,
til að vera
prófastur í
Reykja-
víkurpró-
fastsdæmi
eystra frá
1. janúar
2001.
Sr. Gísli
er fæddur
26. mars 1952 í Reykjavík.
Hann vígðist sem skólaprest-
ur á vegum Kristilegs stúd-
entafélags og Kristilegra
skólasamtaka 24. júlí 1977.
Sr. Gísli var skipaður sóknar-
prestur í Vík í Mýrdal frá 15.
mars 1981 þar til hann var
skipaður sóknarprestur í
Breiðholtsprestakalli í
Reykjavík frá 1. nóvember
1986. Eiginkona hans er Árný
Albertsdóttir.
Skipaður
bruna-
málastjóri
SIV Friðleifsdóttir umhverfis-
ráðherra hefur ákveðið að
skipa dr. Björn Karlsson verk-
fræðing,
Lundi, Sví-
þjóð í stöðu
brunamála-
stjóra frá og
með 1. jan-
úar nk. til
næstu fimm
ára.
Dr. Bjöm
stundaði verkfræðinám við Ed-
inborgarháskóla og Háskólann
í Lundi með sérstakri áherslu á
„brunaverkfræði“ og áhættu-
greiningu og áhættustjórnun á
brunavamasviði. Dr. Björn
starfar nú sem lektor við Há-
skólann í Lundi og annast
kennslu og stjórnar námi við
skólann á brunavarnasviði.
Hafa margir slökkviliðssljórar,
þ.ám. nokkrir íslenskir, notið
leiðsagnar hans.