Morgunblaðið - 25.11.2000, Side 16

Morgunblaðið - 25.11.2000, Side 16
16 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Tugmilljóna króna tjón í eldsvoða á Fremstafelli í síðasta mánuði Uppbygging kom- in í fullan gang UPPBYGGING á bænum Fremsta- felli í Köldukinn í S-Þingeyjar- sýslu er komin í fullan gang. Þar varð tugmilljóna króna tjón í síð- asta mánuði er eldur kom upp í fjósi á bænum og brann það nánast til kaldra kola. Eldurinn barst í áfasta hlöðu, sem breytt hefur ver- ið í lausagöngufjós og þar urðu einnig miklar skemmdir. Talið er að eldurinn hafí kvikn- að út frá neista úr rafsuðu en verið var að rafsjóða í fjósinu fram á nótt. Þar höfðu staðið yfír um- fangsmiklar franikvæmdir við að breyta hlöðunni í fjós og setja legubása í fjósið. Vegna fram- kvæmdanna voru rúmlega 40 mjólkurkýr og eitthvað af geld- neytum úti er eldurinn kom upp og varð þeim ekki meint af. Tveir kálfar voru í fjósinu og drapst annar þeirra en hinn kálf- urinn slapp við illan leik en hann hefur nú náð sér, að sögn Auðuns Pálssonar sem býr á Fremstafelli ásamt konu sinni Alfheiði Þórðar- dóttur og þremur börnum. Kálfur- inn sem lifði eldsvoðann af er kvíga og hefur fengið nafnið Eld- ing. Eru þau Auðunn og Álfheiður sannfærð um að Elding eigi eftir að verða framúrskarandi mjólkur- kýr í framtíðinni. Enginn uppgjafartónn Vegna brunans hafa þau Auð- unn og Álfheiður þurft að hafa mun meira fyrir búskapnum en áð- ur. Kýrnar voru strax fluttar að Laugalandi í Eyjafjarðarsveit og þangað þurftu þau að fara tvisvar á dag í um þrjár vikur til að mjólka. Frá Laugalandi voru kýrn- ar, um 45 mjólkandi, svo fluttar í fjósið á Vatnsenda í Ljósavatns- hreppi, skammt frá Fremstafelli. Þar var komið upp rörmjaltakerfí, sem léttir starfíð í fjósinu en að sögn Auðuns er það Aðalheiður sem er yfírfjósameistari. Ekki er enn ljóst hvenær hægt verður að flytja kýrnar heim en ábúendurnir á Fremstafelli vonast til að hægt verði að fara mjólka heima næsta vor, „en því fyrr því betra“. Auðunn og Álfheiður sögðu að það hefði aldrei hvarflað að þeim að gefast upp eftir brunann og Álfheiður sagði að það hefði held- ur ekki gengið upp fjárhagslega. „Það hafa fleiri en við lent í þessu og náð sér á strik á ný og það ætl- um við líka að gera, sagði Aðal- heiður.“ Aðeins búið þarna í nokkra mánuði Sem fyrr sagði er uppbygging komin í fullan gang og hafa smiðir verið þar að störfum í tæpar tvær vikur. Lausagöngufjósið, sem áður var hlaða, verður byggt upp að nýju og lofthæðin lækkuð. Aðeins steyptir útveggirnir standa eftir í hinu fjósinu en allt annað eyði- lagðist, m.a. mjólkurbásinn. Strax eftir brunann tók við hreinsunar- Morgunblaðið/Kristján Álfheiður Þórðardóttir og Auðunn Pálsson á Fremstafelli. Morgunblaðið/Kristj án Uppbygging er komin í fullan gang á bænum Fremstafelli í Köldukinn og í vikunni voru smiðir að reisa grind í lausagöngufjósinu. starf og tók björgunarsveitin í hreppnum það verk að sér og gekk vel. Auðunn sagði að það skipti sköpum að þau hefðu verið nokkuð vel tryggð fyrir tjóni sem þessu. Fjölskyldan á Fremstafelli hefur aðeins búið þar í nokkra mánuði en Auðunn og Álfheiður tóku við búrekstri þar þann I. mars. Þau áttu jörðina Sandhauga í Bárðar- dal fram að þeim tíma og voru þar einnig með kúabúskap. Fulltrúar minnihlutans í bæjarstjórn Akureyrar um fjárhagsáætlun Segja skuldir aukast um milljarð á þremur árum JAKOB Björnsson, oddviti Framsóknarflokks í bæjarstjóm Akureyrar, segir skuldir bæjarsjóðs munu aukast um ríflega einn milljarð króna á þrem- ur árum og þykir honum boginn spenntur tU hins ýtrasta. Fulltrúi Lista fólksins í bæjarstjóm, Oddur Helgi Halldórsson er hins vegar sammáía þvi að lán séu tekin til að halda uppi öfiugum framkvæmdum. Þjónusta við bæjarbúa vegi meira en skuldimar. Jakob Bjömsson sagðist óttast skuldaaukningu, en að hluta hafi lán verið tekin til að auka fram- kvæmdir. Benti Jakob á að skuldir bæjarsjóðs hafi í árslok 1998 verið 282 mUljónir króna, en þær verði 1.320 milljónir í lok ársins 2001 og hafi þannig á þremur ámm aukist um ríflega einn mUljarð króna. „Mér finnst það heldur mikið, ég tel að menn séu að spenna bogann til hins ýtrasta,“ sagði Jakob. Hann sagði bæjarfulltrúa sammála um að halda áfram uppbyggingu við skólana í bænum, en á næsta ári verði 60 mUljónum varið til að hefja framkvæmdir við viðbyggingu Amtsbókasafnsins og 80 mUljónir fari í byggingu á fjölnota íþróttahúsi „Þetta em framkvæmdir sem menn sjá ekki fyrir endann á,“ sagði Jakob. „Mér finnst þetta bera nokkum keim af kosningaskjálfta, menn em að troða inn verkefnum á síðustu stundu til að standa við kosningaloforðin, en næsta ár er síðasta heila árið sem umboð núverandi meirihluta nær tU.“ Varðandi þessi tvö stóm verkefni sem ráðast á í á næsta ári, sagði Jakob að farsælla hefði verið, mið- að við fjárhag bæjarins, að forgangsraða verkefn- um. Ljóst væri að bæta þyrfti aðstöðuna á Amts- bókasafninum, en önnur verkefni mættu þá frekar bíða. Loks benti Jakob á að við gerð þriggja ára áætl- unar á liðnu vori hefði ekki verið áætlað fyrir bygg- ingu við Giljaskóla, en nú væri búið að setja 175 milljónir króna í það verkefni. „Mér finnst hafa orðið mikUl viðsnúningur í stefnu Sjálfstæðisflokksins frá síðasta lq'örtímabili. Giljaskóli var fyrst til húsa í leikskóla og í lausum kennslustofum, en þegar við bættum 50 milljónum króna við tU að bæta aðstöðuna hömraðu þeir á því að skuldasöfnun væri hafin á ný. Það em smáaurar miðað við þá skuldasöfnun sem nú viðgengst,“ sagði Jakob. Tilvinnandi að taka lán til að auka framkvæmdir Oddur Helgi Halldórsson á Lista fólksins sagði fjárhagsáætlun eins og við væri að búast, rekstur- inn væri í fóstum skorðum og nánast allt niðumeglt fyrirfram, þannig að svigrúmið væri lítið. Oddur lagði til við umræðu um áætlunina fyrr í vikunni að settar yrðu 25 milljónir króna til kaupa á stofnbún- aði vegna Oddeyrarskóla og leikskólans Iðavalla, en peningar væra ekki inni í áætluninni tU slíkra kaupa. Tillagan var felld. „Við fáum þetta bara í hausinn á næsta ári,“ sagði hann. Þá vUdi Oddur einnig að bætti yrði við einni milljón króna til að nið- urgreiða gjald foreldra, giftra eða í sambúð, vegna gæslu bama hjá dagmæðrum, „en það þótti ekki ástæða til þess,“ sagði Oddur. Loks vildi Oddur stórauka framlög til íþróttamála og lagði tU að KA og Þór fengju 10 milljónir króna hvort á næsta ári, með ákveðnum skUyrðum. Sagði Oddur að sú upp- hæð myndi duga tU að koma rekstri þeirri í betra horf en nú er. Oddur sagðist meta meira að vel væri gert við íbúa bæjarins, búa þeim góða aðstöðu varðandi skólamál, leikskóla, íþróttir, tómstundir og menn- ingu, fremur en að státa af lágri skuldastöðu. „Mér finnst því tUvinnandi að taka lán tíl að auka fram- kvæmdir," sagði Oddur. Hann sagði það sína skoð- un að Akureyrarbær ætti að leggja sitt af mörkum til að viðhalda eða auka þenslu á svæðinu, slíkt virk- aði sem vítamín þegar verið væri að beijast við sáralitla fólksfjölgun. „Þetta er okkar fómarkostn- aður,“ sagði hann. Opið hús hjá Leðursmiðju Lóu OPIÐ hús verður hjá Leðursmiðju Lóu, Álfabyggð 2 á Akureyri nú um helgina og býður Ólöf Matthíasdóttir, sem hana rekur, gestum og gangandi að líta inn og skoða úrvalið frá kl. 10 til 17, bæði laugardag og sunnudag. Ólöf hefur rekið Leðursmiðju Lóu frá því árið 1995, en það ár lauk hún námi í leðurfatasaumi í Svíþjóð og setti smiðjuna upp í framhaldi af því. Ólöf sagðist einkum sauma eftir pönt- unum, en margvísleg sýnishom af framleiðslu hennar verður að finna á opna húsinu um helgina. Bæði er um að ræða leður- og mokkafatnað, en að þessu sinni leggur Ólöf áherslu á mokkafatnaðinn. Ólöf saumar nánast allan fatnað, hatta og húfur, jakka, vesti, vettlinga og skó svo dæmi séu tekin. Ólöf sagði að meðal viðskiptavina sinna væri fólk af heimasvæðinu, en hún hefði einnig tekið þátt í samsýn- ingum og efnt til einkasýninga á höf- uðborgarsvæðinu og alltaf væri nokk- uð um að pantanir bærast þaðan. Morgunblaðið/Kristj án Ólöf Matthíasdóttir í Leðursmiðju Lóu verður með opið hús um helgina. U nglingalandsliðið í alpagreinum í æfíngabúðum á Dalvík Æft af krafti frá morgrii til kvölds UNGLINGALANDSLIÐ íslands í alpagreinum á skíðum er í æfinga- búðum á Dalvík þessa dagana og er æft af miklum krafti frá morgni til kvölds, að sögn Gunnlaugs Magnús- sonar, eins af þjálfuram liðsins. Alls era 26 skíðamenn á aldrinum 14-16 ára í unglingalandsliðshópn- um og af þeim vantar aðeins fimm til Dalvíkur. Skíðakrakkarnir í hópnum koma víða að, þrettán era af höfuð- borgarsvæðinu, tólf úr Eyjafirði og einn frá Neskaupstað. Hópurinn kom saman á Dalvík sl. fimmtudags- kvöld en krakkanir halda til síns heima á morgun, sunnudag. Gunnlaugur sagði að ekki væri mikill snjór í Böggvisstaðafjalli en þó nægur snjór til æfinga. Hann sagði æfingar hafa gengið vel og að allir væra ánægðir en þreyttir. Gist er í skíðaskálanum í Böggvisstaða- fjalli. Auk Gunnlaugs eru þjálfarar liðs- ins þeir Fjalar Úlfarsson, Sveinn Torfason og Kristinn Hauksson. Útgáfutónleikar Bjargar og Daniels Eyfirsk lög og ljóð BJÖRG Þórhallsdóttir sópran- söngkona og Daníel Þorsteinsson píanóleikari koma ffam á þrenn- um útgáfútónleikum í Eyjafírði um helgina, en í dag, laugardag- inn 25. nóvember, kemur út hljómdiskur þeirra; Það ert þú! Eyjafjörður - Ijóð og lag. Fyrstu tónleikamir verða í dag, laugardag, á Hólum, sal Menntaskólans á Akm’eyri, og hefast þeir kl. 16. A mánudags- kvöld, 27. nóvember, verða tón- leikar í Ólafsfjarðarkirkju og hefjast þeir kl. 20.30. Þriðju tón- leikamir í röðinni verða á Mel- um í Hörgárdal á þriðjudags- kvöld, 28. nóvember, einnig kl. 20.30. A hljómdiskinum era 14 lög en bæði lög og Ijóð eiga rætur að rekja til tón- og ljóðskálda í Eyjafirði. Harður árekstur á hringtorgi M JÖG harður árekstur varð á hring- torginu á gatnamótum Hlíðarbraut- ar og Borgarbrautar í hádeginu í gær. Jeppa á leið vestur Borgar- braut var ekið inn í vinstri hlið minni jeppa sem var á leið suður Hlíðar- braut og kastaðist hann yfir umferð- areyju og upp á gangstétt. Ókumennirnir, sem voru einir í bílum sínum, vora fluttir á slysadeild FSA til aðhlynningar. Ökumaður stærri jeppans slasaðist lítið og fékk að fara heim að lokinni skoðun en ökumaður minni jeppans var enn til rannsóknar seinni partinn í gær en hann þurfti að klippa út úr bíl sínum. Báðir bílarnir eru mjög mikið skemmdir. -----f-f-t---- Aglow-fundur AGLOW, kristileg samtök kvenna, halda fund í Félagsmiðstöðinni í Víðilundi 22 á Akureyri næstkom- andi mánudagskvöld, 27. nóvember, kl. 20. Ingibjörg Baldursdóttir flytui’ ræðu kvöldsins. Söngur, lofgjörð, fyrirbænaþjónusta og kaffihlaðborð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.