Morgunblaðið - 25.11.2000, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000 29
ERLENT
Nýskipaður menntamálaráðherra í vandræðum vegna ummæla um lögmann Færeyja
Þórshöfn. Morgnnblaðid.
Kallaði Kallsberg
„skósvein Dana“
TÓRBJ0RN Jacobsen, nýskipaður
menntamálaráðherra í færeysku
landstjóminni, á ekki sjö dagana
sæla um þessar mundir eða eftir að
hann kallaði samráðherra sinn,
Anfinn Kallsberg lögmann, „skó-
svein Dana“.
Færeyska blaðið Sosialurin átti
viðtal við Jacobsen í síðustu viku og
þar kallaði hann Kallsberg „skó-
svein Dana, sem tæki við fyrirmæl-
um frá Poul Nyrup Rasmussen, for-
sætisráðherra Danmerkur“. Hefur
Jacobsen, sem er í Þjóðveldis-
flokknum, orðið að biðja Fólka-
flokksmanninn Kallsberg afsökun-
ar á þessum orðum og vegna
óánægju meðal hans eigin flokks-
manna er hugsanlegt að ummælin
kosti hann ráðherrastólinn.
Sagan hófst með því að Jacobsen
sendi öllum skólum í Færeyjum til-
kynningu um að nemendur fengju
framvegis ekki frí 5. júní, á þjóðhá-
tíðardegi Dana. Þess í stað skyldu
þau fá frí 1. maí, á alþjóðadegi
verkalýðsins. Kallsberg lögmaður
brást hart við tilkynningu Jacob-
sens og lýsti yfir að 5. júní væri frí-
dagur lögum samkvæmt og óþol-
andi væri að landstjórnarmaður
tæki upp hjá sér að brjóta lögin.
Jaeobsen svaraði með því að kalla
Kallsberg „skósvein Dana“ eins og
fyrr sagði og fullyrti að hann tæki
við fyrirskipunum beint frá Rasm-
ussen.
Úr öskunni í eldinn
Jacobsen hefur nú beðið Kalls-
berg afsökunar en umræðu um
þessa uppákomu er ekki lokið innan
Þjóðveldisflokksins. Það, sem gerir
málið verra eða neyðarlegra fyrir
Jacobsen en ella, er, að eftir að
Sosialurín birti viðtali lýsti hann því
yfir að hann hefði „aldrei haft þessi
orð um Kallsberg og aldrei látið sér
það til hugar koma“. Blaðamaður
Sosialurin átti hins vegar viðtalið á
segulbandi og nú hefur verið spilað
af því í færeyska sjónvarpinu.
FRÍTT
BENSÍN
í B&L
Þú getur einnig haft heppnina með þér ef þú kemur
og reynsluekur öðrum bílum sem við bjóðum í B&L,
Grjóthálsi l.
í hverri viku fær einn heppinn reynsluökumaður 250
litra af bensíni að gjöf. En ekki nóg með það því einu sinni
i mánuði fær einn þeirra sem staðfesta kaup á nýjum bíl
hjá B&L 250 þúsund króna innborgun upp i bílinn.