Morgunblaðið - 25.11.2000, Page 34
34 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Kristján Jóhannsson lofar skemmtilegum tónleikum í Háskólabíói í dag og á morgun
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Sjá dagar koma... Sigrún Þorgeirsdóttir, sem stjórna mun Kvennakór Reykjavíkur á tónleikunum, leiðir Kristján Jóhannsson í söng á æflngunni í Ymi í gærkvöldi.
Það eru allir í stuði!
„GÓÐA kvöldið. Fögnr er hlíðin,"
segir Kristján Jóhannsson þegar
hann stormar í salinn. Hátt og
snjallt. Húsið er Ýmir og hlíðin
Kvennakór Reykjavíkur sem stillt
hefur sér upp til söngs. í hönd fer
æfing fyrir tónleika í Háskólabíói í
dagkl. 17 og ámorgunkl. 19þar
sem tenérsöngvarinn mun fylgja
nýrri geislaplötu, Hamraborginni,
úr hlaði. Kristján sveiflar treflinum
aftur á bak og rennir beint í fyrsta
lagið, Vorboðinn ljúfi... Söngurinn
fyllir salinn, tenórinn heldur hvergi
aftur af sér.
„Þið eruð alveg ofboðslega sæt-
ar,“ segir hann að söng loknum og
snýr sér að kórnum, „en hvers
vegna eruð þið svona „siríus"? Þið
vitið að söngurinn lengir lífið. Hvar
er brosið?“
Konurnar skella upp úr.
„Nákvæmlega þetta!“
„ Við erum ákveðin í að gera þetta
rosalega skemmtilegt," segir Krist-
ján skömmu siðar við blaðamann.
„Þetta verður svona bland af gamni
og alvöru. Fólki á vonandi eftir að
líka það sem við höfum upp á að
bjóða. Það eru allir í stuði!“
Tekur Örn lagið?
Einn af þeim er Örn Ámason leik-
ari sem kynna mun tónleikana.
Hann gantast við Kristján og ljóst
er að þeir eru eitthvað að bralla.
Ætla þeir að taka lagið saman?
„Nei, nei. Ég er bara kynnir,"
segir Örn sposkur á svip. Hann við-
urkennir þó að ekkert sé útilokað ef
„tími leyfir í lokin og stemmningin
verður þannig“.
Annar maður sem mun örugglega
syngja á tónleikunum er Jóhann
Friðgeir Valdimarsson tenórsöngv-
ari. Hann er að stíga sín fyrstu skref
í faginu en er hvergi smeykur að
standa á sviði með Kristjáni.
„Þú getur rétt fmyndað þér,“ seg-
ir hann og hlær dátt. „Annars syngj-
um við ekki saman á tónleikunum.
Að minnsta kosti ekki samkvæmt
prógramminu."
Kristján hefur verið óspar á hrós-
yrðin þegar Jóhann er annars vegar
og ungi söngvarinn kann honum
þakkir fyrir stuðninginn. „Það er
meiriháttar að fá stuðning úr þeirri
áttinni. Mjög hvetjandi. Kristján er
líka óspar á góðu ráðin.“
„Jóhann er ósvikinn efniviður. Ég
mun fylgjast grannt með honum í
framtíðinni," trúir Kristján blaða-
manni fyrir þegar Jóhann er kom-
inn á sviðið.
Álag á hljóðhimnur
Glatt hefur verið á hjalla á æfing-
um fyrir tónleikana og engin grið
gefin. Anna Guðný Guðmundsdóttir
pi'anóleikari, sem leikur með á tón-
leikunum, staðfestir það.
„Ég var með þá alla þijá heima
hjá mér í Mosfellsbæ í gær [fimmtu-
dag] og hélt að hljóðhimnumar í
mér ætluðu að springa. Ég brá á
það ráð að opna gluggann og leyfa
sveitungum mi'num að njóta söngs-
ins með mér,“ segir hún hlæjandi.
Anna Guðný segir Öm hafa gefið
tenórunum lítið eftir.
„Ég dró samt aðeins af mér,“ seg-
ir Örn þegar þetta er borið undir
hann. „Annars hefði þeim liðið illa.
Það er mjög mikilvægt að tenómm
líði vel!“
Miðar á tónleikana í dag seldust
upp á skömmum tíma og í gær-
kvöldi vom aðeins örfáir miðar
lausir á seinni tónleikana á morgun.
„Það stefnir allt í að við fyllum hús-
ið í tvígang. Menn verða að drífa sig
ætli þeir að fá miða. Þessar viðtökur
gleðja mig,“ segir Kristján áður en
hann dregur sig í hlé.
Skagfirska söngsveitin.
Tónleikar Skagfírsku
söngsveitarinnar
Nýjar bækur
AFMÆLISTÓNLEIKAR Skag-
firsku söngsveitarinnar verða
haldnir í Langholtskirkju í dag,
laugardag, kl. 17.
Skagfirska söngsveitin heldur
upp á 30 ára afmæli sitt um þessar
mundir og er haldið upp á það með
ýmsu móti. Um síðustu helgi voru
haldnir tvennir tónleikar í Skaga-
firði.
Skagfirska söngsveitin var stofn-
uð í Reykjavík á haustdögum 1970.
í kórnum hefur alltaf verið mjög öfl-
ug starfsemi þar sem samvinna kór-
félaganna og stjómandans hefur
fært kórinn í fjölda söngferða inn-
anlands sem og erlendis. Á þessum
30 árum hafa verið gefnar út fimm
vínflplötur og tveir geisladiskar,
Kveðja heimanað 1994 og Nú Ijómar
vorsins ljós 1999, og hafa báðir notið
mikilla vinsælda. Frá upphafi hafa
tveir stjómendur starfað við kórinn
en einn af stofnendum var
Snæbjörg Snæbjarnardóttir söng-
kona og stjórnaði hún kórnum í 13
ár eða til ársins 1983 en þá tók
Björgvin Þ. Valdimarsson við.
Á afmælistónleikum kórsins, sem
helgaðir eru Skagafirði, verða flutt
lög og/eða ljóð eftir skagfirska höf-
unda: Lagahöfundar: Pétur Sig-
urðsson, Jón Björnsson, Eyþór
Stefánsson, Geirmundur Valtýsson
og Kristján Stefánsson frá Gilhaga.
Ljóðahöfundar: Stephan G. Steph-
ansson, Ólafur B. Guðmundsson,
Friðrik Hansen, Guðbrandur Þ.
Guðbrandsson og Bjami Stefán
Konráðsson. Einsöngvarar með
kórnum verða: Kristín R. Sigurðar-
dóttir, sópran, Guðmundur Sigurðs-
son, tenór, og Óskar Pétursson frá
Álftagerði, tenór. Stjómandi:
Björgvin Þ. Valdimarsson. Undir-
leikari: Sigurður Marteinsson.
• ÚT er komin bókin Heimur
vínsins eftir Steingrím Sigur-
geirsson, sem er fyrsta íslenska
alfræðiritið um vín og vínmenn-
ingu. Steingrímur hefur skrifað
greinar um vín
í Morgunblaðið
um árabil. Bók-
in er að hluta
byggð á Morg-
unblaðsgrein-
unum og er
gefin út í sam-
vinnu við blaðið
en bókaforlagið
Salka er út-
gefandi. Stein-
grímur segir að
það hafi blund-
að í sér um nokkurn tíma að fjalla
um þetta áhugamál sitt með
ýtarlegri hætti en í blaðagreinun-
um. Á ákveðnum punkti hefði hann
síðan talið sig hafa nægilegan
gmnn til að byggja verk af þessu
tagi á.
Steingrímur sagði að markmiðið
með bókinni væri að miðla á auð-
skilinn og aðgengilegan hátt
reynslu þeirri sem hann hefði öðl-
ast gegnum árin, m.a. með því að
heimsækja öll helstu vínræktar-
héröð heims. Steingrímur sagði
ljóst að áhugi á víni færi hraðvax-
andi hér á landi; það mætti sjá af
úrvali vína og áhuga á umfjöllun
um þessi mál. „Það er spennandi
að hafa upplifað þetta og bókin er í
raun afleiðing þess,“ sagði Stein-
grímur.
Hann bætti við að hægt væri að
lesa bókina í einum rykk eða nota
hana sem uppflettirit „hvort sem
fólk vill lesa um sérstöðu vína frá
Bordeaux, einstök svæði í Banda-
ríkjunum eða ákveða hvaða vín
eigi að velja með nautasteikinni."
Bókin er tvískipt. í fyrri hluta
hennar er farið yfir ýmis almenn
atriði er snerta vín og vínneyslu.
Ferli víngerðar er rakið og útskýrt
hvernig ákvarðanir fagmanna á
ólíkum stigum hafa áhrif á lokanið-
urstöðuna. Útskýrt er hvernig
hægt er að nálgast vín við smökk-
un þannig að menn fái sem bestan
skilning á gæðunum. Farið er yfir
þær upplýsingar sem flöskumiðar
veita og hvernig ber að lesa þá.
Sagt er frá helstu þrúgum, svo
sem Cabernet Sauvignon, Chard-
onnay og Merlot og munurinn á
eiginleikum þeirra skýrður. Farið
er yfir hvernig best er að geyma
vín, hversu lengi er æskilegt að
geyma þau og hvaða tegundir
henta best til geymslu. Einnig er
útskýrt það hlutverk sem eik og
korkur gegna varðandi bragð og
góð ráð gefin um samsetningu á
mat og víni.
í síðari hlutanum er farið um
helstu víngerðarsvæði veraldar,
allt frá Bordeaux, Elsass og Búrg-
und í Frakklandi til Coonawarra
og Hunter Valley í Ástralíu. Varp-
að er ljósi á sérstöðu hvers svæðis
og brugðið upp svipmyndum af
víngerðarmönnum.
Bókin Heimur vínsins er 200
blaðsíður. Hún er prentuð í Guten-
berg en framleiðsludeild Morgun-
blaðsins sá um hönnun og umbrot.
Leiðbeinandi verð er 5.480.
• ÚT er komin bókin Austfírðinga-
þættir og aðrar frásagnir. Gfsli
Helgason i Skógargerði eftir Indr-
iða Gíslason.
í þessari bók hefur Indriði Gísla-
son tekið saman margvíslegt efni frá
föður sínum, Gísla Helgasyni í Skóg-
argerði. Fjöldi Ijósmynda prýðir
bókina.
Útgefandi er Mál og mynd. Bókin
er 407 bls., prentuð i Steinstórsprent
- Gutenberg ehf., en bókband var
unnið hjá Bókfelli. Leiðbeinandi
verð: 4.990 krónur.
M-2000
Laugardagur
25. nóvember
FÉLAGS-OG ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐVAR í
REYKJAVÍK
Kynslóðir mætast - uppskeruhátíð
Hátíðin hefst með opnun kl. 13-14 í
Miðbæjarbarnaskólanum.
Kynslóðir mætast byggist á sam-
vinnu 14 félags- og þjónustumið-
stöðva í Reykjavík ogl4 grunnskóla í
Reykjavík. Verkefnið er spunaverk-
efni þar sem ungir og aldnir hafa unn-
ið saman að því að leiða kynslóðir
saman og halda nú afþví tilefni upp-
skeruhátíð. Á millikl. 14ogl7munu
14 félags- og þjónustumiðstöðvar
eldra fólks iða affjöri, fræðslu og
fjölbreyttum menningarviðburðum
sem hinir eldri ogyngri hafa skapaö í
sameiningu. Umsjónarmaður verk-
efnisins erÁsdís Skúladóttir.
TJARNARBÍÓ KL.15
Prinsessan í hörpunni
Úrgamalli sögn hefur Böðvar Guð-
mundsson smíðað brúöuleikrit fyrir
alla fjölskylduna. Sagan segirafdótt-
ur Sigurðar Fáfnisbana, sem flýr
ásamt fóstra sínum undan ðvildar-
mönnum, falin í hörpu. Það er Leik-
brúöuland sem setur upp Prins-
essuna íhörpunni. Næstsíðasta
sýning.
Sjónþing
2000
ELLEFTA sjónþing vísiakadem-
íunnar verður opnað í Nýlistasafninu
í dag, laugardag, kl. 16.
Sjónþingið er stórt í sniðum að
þessu sinni, haldið í öllum salarkynn-
um safnsins. Litið verður yfir farinn
veg vísiakademíunnar sem hefur
verið í þróun síðastliðin 12 ár.
Steingrímur
Sigurgeirsson.