Morgunblaðið - 25.11.2000, Síða 36
36 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Nýjar bækur
• UTerkomin
bókin Engin
venjuleg kona -
Litríkt líf Sigrún-
ar Jónsdóttur
kirk.julistakonu
eftir Þórunni
Valdimarsdóttur.
Ævi Sigrúnar
Jónsdóttur hefur
verið einstaklega
litrík. Hún er
þrígift og hefur gengið gegnum
skilnaði og missi. Lífskjör hennar
hafa sveiflast milli andstæðra póla:
Einstæð móðir hóf hún námsferil
sinn grunlaus um ævintýri framtíð-
arinnar sem frú fransks aðalsmanns í
sænskum kastala. Tvisvar hefur hún
tekist á við krabbamein og haft sigur.
Frásögnin er áhrifamikil og óvenju-
leg þvi að Sigrún hlífir sér hvergi.
Sigrún hefur fylgt sannfæringu
sinni hvort sem er í lífinu eða listinni.
Ævintýrakonan Sigrún hefur ferðast
víða um lönd og tekið þátt í al-
þjóðlegu starfi kvennahópa. Hún á
fjölda listaverka í kirkjum, stofnun-
um og heimahúsum víða um heim.
Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson
dómkirkjuprestur skrifar bókarauka
um kirkjulistaverk Sigrúnar.
Útgefandi er JPV forlag. Bókin er
306 bls., prýdd fjölda mynda. Bókln
er prentuð í Prentsmiðjunni Odda hf.
Skaparinn hannaði kápu. Leiðbein-
andi verð: 4.280 krónur.
• UT er komin bókin Iinoðri litli
eftir Önnu Vilborgu Gunnarsdótt-
ur.
I fréttatilkynningu segir: „Hnoðri
er lítill andarungi sem skríður úr
eggi við Tjörnina í Reykjavík. Þar er
margt sem vekur forvitni hans en
líka ýmsar hættur sem þarf að var-
ast. Og einn daginn kemst Hnoðri í
hann krappan. Anna V. Gunnars-
dóttir segir söguna af Hnoðra í fjör-
ugri frásögn og fallegum myndum
sem munu gleðja yngstu börnin og
fuglaskoðara á öllum aldri.“
Útgefandi erMál ogmenning.
Bókin erprentuð íDanmörku og
leiðbeinandi verð er 1.490 krónur.
• ÚT ER komin bókin Hundrað og
ein ný vestfirsk þjóðsaga, 3. hefti, í
samantekt Gísla Hjartarsonar, rit-
stjóra á ísafirði.
í fréttatilkynningu segir: „Þjóð-
sögurnar eru brandarar og
skemmtisögur að vestan og ætlaðar
til að kalla fram bros og jafnvel hlát-
ur. Sögurnar eru heilsusamleg lesn-
ing fyrir alla og eru sumar þeirra
sannar en aðrar lognar. Skemmtileg
tilsvör, furðulegar uppákomur ög
hlægileg mistök á hverri síðu sýna,
að Vestfirðingar kalla ekki allt
ömmu sína í þeim efnum.“
Útgefandi er Vestfirska forlagið á
Hrafnseyri. Bókin er unnin íAs-
prenti/POB á Akureyri oger 116 bls.
Leiðbeinandi verð er 1.700 krón ur.
Þórunn
Valdimarsdóttir
Sjónarhorn trúðsins
BÆKUR
Þýdd skáldsaga
TRÚÐURINN
Eftir Heinrich Böll. Þýðandi Franz
Gíslason. Reykjavík 2000. Nýja
bókafélagið. 288 bls.
HIN dýpri rök mannlífsins birtast
stundum í skáldsögum. Höfundum
tekst þá vel upp með efni sitt og það
laðar fram óvænt sjónarhom sem
maður hefur ekki hugsað út í eða
maður hefur ekki séð farið með efnið
með jafnsnjöllum hætti. Heinrich
Böll tekst óvenjulega vel upp í skáld-
sögu sinni Trúðurinn sem nú er kom-
in út á íslenzku.
I sögunni er sagt frá trúði og lífi
hans. En það eru engir trúðleikar í
sögunni, engin ódýr brögð, sjón-
hverfmgar eða yfirborðsleg fyndni.
Það er raunar ekki mikið af fyndni
yfirleitt í þessari sögu en þar sem
hún kemur fyrir er vel farið með
hana. Það em dregin fram nokkur
andlit trúðs en það sem er mest
áberandi í sögunni er ástarsorg
trúðsins, depurðin, þunglyndið og
hjálparleysið sem iðulega einkennir
ástarsorg.
Þetta er sennilega ekki það sem
maður býst við í sögu um trúð en höf-
undurinn gerir þetta að aðalatriði
Bók-
menntir
með tón-
listarívafí
BÓKAFORLAGIÐ Salka og
Kaffileikhúsið standa fyrir bók-
menntakvöldi þar sem útgáfu-
bækur Sölku verða kynntar í
Kaffileikhúsinu í Hlaðvarpan-
um annað kvöld, sunnudags-
kvöld, kl. 20.30.
Lesið verður úr nýjum bók-
um forlagsins t.d. Kossinum
eftir Kathryn Harrison, Á
lausu eftir kímniskáldið Mari-
anne Eilenberger og Matar-
sögum en í þeirri bókgefa 17 ís-
lenskar konur matampp-
skriftir og segja sögur og
leyndarmál úr eldhúsinu. Einn
af höfundunum úr Matarsög-
um, Sigrún Hjálmtýsdóttir,
Diddú, mun einnig kynna nýja
diskinn sinn og syngja af hon-
um nokkur lög.
Kynnir kvöldsins er Vala
Þórsdóttir leikkona.
sögunnar og tekst vel að spinna þann
vef atburða sem lýsir því hugarást-
andi sem smám saman heltekur
trúðinn, Hans Schnier. Þessi bók
kom út árið 1962 og atburðarásin á
sér stað á þeim tíma í Vestur-Þýzka-
landi eftirstríðsáranna, nánar tiltek-
ið í Bonn. En þaðan er Hans upp-
ranninn og þar býr hann þegar
sagan endar. Hann er kominn af
mikilli auðmannafjölskyldu sem á að
vera áberandi í opinbem lífi Vestur-
Þýzkalands, faðirinn mikill fjármála-
maður og í stjórnmálum og móðirin í
ýmsum félagsmálum, á að vera í
nefnd eða félagi sem fjallar um kyn-
þáttamál. Hans á tvö systkyni, syst-
ur sem dó í lok stríðsins og bróður
sem gerist kaþólskur prestur en
sjálfur er hann mótmælandi eins og
öll hans fjölskylda.
Hans verður ástfanginn af Maríu
sem er fátæk, kaþólsk stúlka, býr hjá
foður sínum, Derkum, sem er eini
maðurinn í bókinni sem Hans kann
að meta að verðleikum. Hans hættir í
skóla og tekur ekki stúdentspróf, fer
að búa með Maríu og vinna fyrir sér
með því að leika trúð. Þau lifa á hót-
elum og flytja sig til eftir því sem
Hans fær verkefni. En þau giftast
ekki og Hans á í erfiðleikum með að
fallast á þau skilyrði sem María og
trú hennar gera til hjónabands með
þeim sem stendur utan trúfélagsins.
Þegar hann er búinn að sættast við
þau þá klúðrar hann þvi að fara fyrst
til fógeta og láta gefa þau saman þar
áður en þau játast hvort öðra í
kirkju. Þetta grefur smám saman
undan sambandi hans við Mariu auk
þess sem hún verður sífellt upptekn-
ari af grandvallaratriðum trúar sinn-
ar. Hún leitar í félagsskap kaþólskra
leikmanna og það verður á endanum
þar sem hún fmnur ástæðu til að fara
frá Hans og taka saman við Zupfner,
einn félagann í hópnum, áhrifamik-
inn mann í kaþólskum trúmálum og
stjórnmálum.
í kringum þessa atburðarás flétt-
ar höfundurinn aðdragandann, sögu
Schnier-fjölskyldunnar og afleiðing-
amar af því að Hans glatar ástinni
sinni. Fjölskyldan er fremur ógeð-
felld, móðirin er eiginlega lítið meira
en skopmynd eða afskræming, hel-
tekin af sjálfri sér og því að lifa
spart, faðirinn geðfelldur en að-
gerðalítill og skilur á endanum ekki
son sinn þegar hann heimsækir hann
í fyrsta sinn, fær ekki af sér að láta
hann hafa fé í óvissa þjálfun og fram-
tíð. Afleiðingar þess að missa Maríu
era afdrifaríkar fyrir Hans vegna
þess að hann elskar hana fólskva-
laust, fær ekki af sér að leita neitt
annað og missir smám saman tökin á
sjálfum sér og umhverfi sínu. Sagan
endar síðan á því að hann heldur út á
götur Bonn til að betla, niðurlæging-
in er fullkomnuð.
Höfundurinn notar fölskvaleysi
trúðsins til að draga fram hræsni
þeirra forystumanna kaþólskunnar
sera birtast á síðum þessarar bókar.
Þeir réttlæta það að hafa áhrif á
Maríu í þá átt að hún fari frá Hans á
hreinum formsatriðum, gleyma því
að reglur þeirra sjálfra um einkvæni
byggjast einmitt á ást af því tagi sem
trúðurinn ber til Maríu. Sömuleiðis
er fróðlegt að sjá hvernig höfund-
urinn lýsir afstöðunni til nazismans
sem í raun var áberandi í samfélagi
Vestur-Þjóðverja á þessum tíma.
Hans hatar afstöðu- og uppburðar-
leysi foreldra sinna til nazistans sem
heimtaði að elzta systir hans tæki
þátt í stríðsrekstrinum og hann hat-
ar þennan nazista þegar hann lýsir
iðran sinni og yfirbót eftir stríðið en í
raun hefur ekkert breyzt, hann er
jafntilfinningalaus og áður. En
merkilegust er myndin af trúðnum
sjálfum, einþykkum, smekkvísum,
gagnteknum af eigin eymd og ein-
semd en þegar til alls er tekið geð-
felldur og heilbrigður en í miklum
erfíðleikum með að sætta sig við um-
hverfi sitt. Þetta er merkileg saga og
sem flestir ættu að lesa hana.
Bókin er smekklega út gefin, káp-
an falleg, þýðingin hefur tekizt vel og
fáar prentvillur.
Guðmundur Heiðar
Frímannsson
Jarðnesk-
ar leifar
Giottos?
KALKSTYTTAN á myndinni er af
mörgum talin gefa raunhæfa
mynd af hinum þekkta ítalska
endurreisnarlistamanni og arki-
tekt Giotto. Andlitsdrættir og höf-
uðlag styttunnar byggjast á rann-
sóknum á hauskúpunni sem
einnig má sjá á myndinni, en hún
fannst undir gólfhellum dómkirkj-
unnar í Flórens fyrir einum þrjá-
tíu árum.
Ekki eru þó allir sammála urn
að hér sé um höfuðkúpu Giottos
að ræða og er bandaríski forn-
leifafræðingurinn Franklin Toker,
sem þátt tók í uppgreftrinum, til
að mynda þeirrar skoðunar að
svo sé ekki. Borgaryfirvöld í Flór-
ens láta það sig þó litlu varða og
hafa fullan hug á að greftra með
viðhöfn jarðneskar leifar Giottos í
byrjun janúar á næsta ári.
Að rótfesta
nýjan sið
BÆKUR
AlþýðlBg trúarkvæði
VÍSNABÓK GUÐBRANDS
Jón Torfason og
Kristján Eiríksson sáu um
útgáfuna. Bókmenntafræðistofnun
HÍ 2000 - 491 bls.
VÍSNABÓK Guðbrands Þorláks-
sonar biskups kom út árið 1612 og
var henni ætlað að efla kunnáttu
fólks á heilagri ritningu og í kristi-
legu líferni. Guðbrandur gerði sér
grein fyrir mætti prenttækninnar og
beitti sér fyrir því að upplýsinga-
tækni síns tíma væri notuð nýjum sið
til framdráttar. Eitt af fyrstu verkum
Guðbrands var einmitt að efla
prentsmiðjuna á Hólum sem var á
vegum biskupsstólsins. Guðbrandur
gaf út Sálmabók (1589) og Grallara
(1594) en alls era varðveittar um 79
bækur sem prentaðar vora í tíð Guð-
brands. Sjálfur er hann talinn höf-
undur ellefu bóka og talinn hafa þýtt
ríflega 30.
Tilgangur Vísnabókar var að
kveða niður veraldlegan boðskap og
villutrú úr kaþólskri tíð. Form
alþýðukveðskapar skyldi fá nýtt inn-
tak, meðal annars era því í bókinni
kristileg kvæði undir vikivakahætti
og rímur ortar út frá einstökum bók-
um Biblíunnar. Það er eftirtektar-
vert að innrætingaraðferð Guð-
brands biskups, að finna rétt-
trúnaðinum alþýðlegt form og að
nota nýjustu tækni til að koma boð-
skapnum á framfæri, virðist ekki
hafa tekist nógu vel. Rímnakveð-
skapur um sögur Biblíunnar varð
ekki vinsæll til langframa. Það hefur
sjaldnast gefist vel að leggja byrðar
einnar hugmyndafræði á herðar list-
grein sem á rætur í annarri. Um
þetta era fleiri dæmi en tíunda þarf.
Hér er á ferðinni fjórða útgáfa
Vísnabókar. Önnur útgáfa er frá 1748
og sú þriðja frá 1937 og var þá í um-
sjón Sigurðar Nordals. í þessari nýj-
ustu útgáfu hefur verið reynt að
fylgja eftir framútgáfunni frá 1612
eins og kostur er. Metnaður aðstand-
enda Vísnabókar stendur til þess að
gefa verkið út með alþýðlegu sniði án
þess að þurfa að víkja í stóram atrið-
um frá framútgáfunni. Þetta er krefj-
andi verkefni. Bókin er höfð með nú-
tímastafsetningu en þess gætt að
sveigja frá henni ef sérstakar að-
stæður krefjast þess, s.s. rím.
Höfundar Vísnabókar era tíu tals-
ins: Einar Sigurðsson, Jón Hallsson,
Skáld-Sveinn, Jón Arason, biskup,
Sigfús Guðmundsson, Ólafur Guð-
mundsson, Jón Bjamason, Arngrím-
ur Jónsson lærði, Magnús Ólafsson
og Ólafur Einarsson. Þessir karlar
era misjöfn skáld og mishreinir í af-
stöðu til hins nýja siðar sem Guð-
brandur biskup barðist fyrir. Freist-
andi er að draga athyglina
sérstaklega að Einari Sigurðssyni
sem í skáldskap sínum lofsyngur
gjarnan skapara sinn og gæsku með
listilegum hætti.
I Vísnabók er býsna mikið efni og
fjölbreytilegt. Hvernig svo sem vísur
og kvæðaflokkar eru taldir (sem lín-
ur, erindi eða kvæði) er ljóst að hér er
um stórt verk að ræða sem hefur ver-
ið áhrifamikið fyrir fólk á öndverðri
17. öld að fá í hendumar. Þessi fjórða
útgáfa er tæpar 500 bls. að lengd.
Uppsetning bókarinnar er smekkleg.
Fyrir utan formálann er allur textinn
settur í tvo dálka, sem sýnir að hér er
mikið efni á ferðinni.
Bókinni fylgir ýtarlegur inngang-
ur sem Jón Torfason, Kristján Eir-
íksson og Einar Sigurbjömsson rita.
Þar er tilurð Vísnabókar sett í sam-
hengi við siðbreytinguna, einstökum
kvæðum hennar gerð skil sem og Q
skyggnst bak við einstaka höfunda.
Inngangurinn stendur prýðilega einn “
og sér sem skýring á aldarhættinum
sem ól af sér Vísnabókina. T.d. er þar
kaflinn Boðun og lærdómar sem
skýrir hvernig skáldin orðuðu lík-
ingamál kirkjunnar svo að það stæði
mönnum ljóst fyrir hugskotssjónum.
Um 40 bls. skýringakafli er aftast í
bókinni. Þar er hvert kvæði og hver
ríma útskýrð, bæði einstök orð og í
orðasambönd, sem og baksvið ein- i
stakra kvæða.
Vísnabók Guðbrands biskups telst @
tæpast með merkustu listaverkum
okkar, a.m.k. ekki sem heildstætt
verk. Eigi að síður er hún afar merki-
leg. Hún er vitnisburður um ásetning
Guðbrands að rótfesta nýjan sið og
hún er einnig vitnisburður um mörg
ágætlega ort kvæði andlegs eðlis.
Það má því heita vel tímabært að
gefa út Vísnabók Guðbrands á þús-
und ára afmæli kristni hér á landi. ||
Ingi Bogi Bogason 1