Morgunblaðið - 25.11.2000, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 25.11.2000, Qupperneq 47
46 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000 ¥1 STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Framkvœmdastjóri: Hallgrímur B. Geirsson. Ritstjórar: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. SPOR í RÉTTA ÁTT ÞAÐ ER mikið hagsmunamál íbúa höfuðborgarsvæðisins, að sveitarfélögin á þessu svæði sameinist í tvö stór sveitarfélög. Með því sparast verulegir fjármunir vegna yfírstjórnar sveitarfélaganna auk þess sem meiri heildarsýn fæst í skipulagsmálum svæðisins og þjón- usta við íbúa verður samræmdari. Hins vegar hefur legið fyrir frá því að þessar umræður hófust að forystu- menn sveitarfélaganna hvers um sig hafa takmarkaðan áhuga á svo um- fangsmikilli sameiningu og er ekki erfítt að skilja ástæður þeirra fyrir því. Á undanförnum mánuðum hafa staðið yfir viðræður á milli fulltrúa Kópavogs, Garðabæjar, Hafnar- fjarðar og Bessastaðahrepps um sam- einingu og hafa þær farið fram að frumkvæði Bessastaðahrepps. Kópa- vogskaupstaður hefur nú dregið sig út úr þeim viðræðum. Það er skiljanleg afstaða því að Kópavogur á ekki heima í þessum sameiningarviðræð- um. En viðræðurnar hafa jafnframt leitt í Ijós vilja til sameiningar við Bessa- staðahrepp, bæði hjá Garðabæ og Hafnarfirði. Garðbæingar hafa hins vegar ekki áhuga á að sameina þessi þrjú sveitarfélög. Magnús Gunnars- son, bæjarstjóri í Hafnarfirði, hefur markað skýra stefnu í málinu af sinni hálfu. Hann vill sameiningu þessara þriggja sveitarfélaga og er það að mati Morgunblaðsins rétt afstaða hjá bæjarstjóranum í Hafnarfirði. Þótt ekki verði að þessu sinni úr sameiningu nema tveggja sveitarfé- laga, á hvorn veginn sem það verður af hálfu Bessastaðahrepps, er það spor í rétta átt. Þá hefur það gerzt frá því að umræður hófust fyrir nokkrum árum um þetta málefni, að Kjalarnes hefur sameinast Reykjavík og Bessa- staðahreppur annaðhvort Garðabæ eða Hafnarfírði. Næstu áfangar ættu svo að verða þeir að sameina sveitarfélögin tvö, sem þá stæðu eftir sunnan Kópavogs en augljóslega eiga Kópavogur, Sel- tjarnarnes og Mosfellsbær að samein- ast Reykjavík. Vel má vera, að svo miklir hags- munir tengist skiptingu höfuðborgar- svæðisins í mörg sveitarfélög, að erf- itt verði á fá forsvarsmenn þeirra til að hafa forystu um frekari samein- ingu. En er ekki eðlilegt að íbúarnir sjálfir taki þessa ákvörðun? Hvers vegna ekki að efna til atkvæða- greiðslu á meðal íbúanna í sveitarfé- lögunum á höfuðborgarsvæðinu um þá sameiningu, sem hér hefur verið bent á? Sameining sveitarfélaga er dæmigert mál, þar sem eðlilegt er að úrskurðarvaldið sé í höndum íbúanna sjálfra. Forystumenn sveitarfélaganna ættu að hugleiða, hvort þeir geti ekki fallizt á, að kjósendur þeirra eigi að hafa þann lýðræðislega rétt að taka sjálfir ákvörðun í stórmáli af þessu tagi. Þá mundu fara fram ítarlegar umræður um málið, sem vafalaust mundu skýra rökin með og á móti. VIRK ÞÁTTTAKA ÍBÚA VIRK þátttaka íbúa í ákvörðunum um veigamikil málefni, sem varða byggðarlög þeirra er ákáflega mikilvægur þáttur í stjórnkerfi okk- ar. Á undanförnum dögum hefur mátt sjá á síðum Morgunblaðsins nokkur skýr dæmi um, að þátttaka íbúa í ein- stökum byggðarlögum í umræðum um hagsmunamál byggðanna er mik- il og virk. Á Egilsstöðum hafa staðið yfir miklar umræður og harðar deilur um brúarstæði. Skoðanir hafa verið skiptar, undirskriftasöfnun farið fram og hvor aðili um sig hefur lagt áherzlu á að koma sínum sjónarmið- um á framfæri. Bæjarstjórn Austur- Héraðs hefur tekið sínar ákvarðanir. Á Hvammstanga standa yfir deilur um byggingu á nýju íþróttahúsi, sem allir eru ekki á eitt sáttir um. Á Vestfjörðum standa yfir miklar umræður um, hvort það henti hags- munum byggðarlaganna þar að selja Orkubú Vestfjarða. Allar þessar umræður, sem hafa endurspeglast á síðum Morgunblaðs- ins að undanförnu, sýna að lýðræðið er virkt, áhugi fólks á málefnum byggðarlaganna mikill og umræður snarpar. Svona á þetta að vera. En jafnframt er það umhugsunar- efni, eins og í tilviki sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, hvort þetta séu ekki málefni, sem eðlilegt sé að íbúarnir geri út um í almennum at- kvæðagreiðslum. Það er tímabært að efnt verði til frekari umræðna um það, hvort við íslendingar getum átt þátt í að þróa lýðræðið áfram á þann veg, að þátt- taka íbúanna í mikilvægum ákvörð- unum verði bein. Það eru allar for- sendur fyrir hendi. Vel menntuð og upplýst þjóð, gott aðgengi að upp- lýsingum. Hinn almenni borgari hef- ur allar sömu upplýsingar undir höndum - eða getur haft - og hinir kjörnu fulltrúar. Hvað stendur þá í vegi fyrir því, að hann taki þessar ákvarðanir sjálfur? Að sjálfsögðu má ekki ofnota þessa aðferð. Þá er hætt við, að kjósendur verði þreyttir á að þurfa sífellt að taka þátt í kosningum og hætti að taka þátt í þeim. í Sviss hefur brydd- að á slíkri þreytu kjósenda. Þess vegna þarf að vanda vel valið á þeim málefnum, sem lögð eru undir al- menna atkvæðagreiðslu. Þótt hér hafi fyrst og fremst verið fjallað um málefni sveitarfélaga er augljóst að þessi aðferð getur líka átt við á landsvísu um einstök málefni. Þar er ekki sízt átt við ákvarðanir í stórmálum eins og þeim sem varða fiskveiðistjórnarkerfið eða virkjanir á hálendinu svo að dæmi séu nefnd. Kjörnir fulltrúar í sveitarstjórnum eða á Alþingi geta stundum lent í erf- iðri stöðu gagnvart hagsmunahóp- um. í almennum atkvæðagreiðslum geta hagsmunaöflin barizt fyrir sín- um sjónarmiðum en að lokum er það atkvæði kjósendanna, sem ræður úr- slitum, en ekki einhver önnur og óskyld sjónarmið. Hundrað börn undir berum himni Þegar þetta nýja hús verður komið undir þak verður bylting í lífí 350 lítilla barna á Indlandi, skrifar Þórhildur Elín Einarsdóttir, og þá mun aldrei framar Hér er greinarhöfundur í góðum hópi. rigna á þau meðan þau sofa. UM SÍÐUSTU mánaðamót ferðaðist ég til Indlands. Þar auðnaðist mér að heimsækja E1 Shaddai sem er heimili munaðarlausra barna sem rekið er af hinu íslenska hjálp- arstarfi ABC. Börnin á heimilinu njóta fjárhagslegs stuðnings fjöl- margra íslendinga sem tryggir þeim fæði, klæði, kennslu, læknis- hjálp - og bráðum - nýtt þak yfir höfuðið. Lítil þúfa Sagan á bak við heimsókn mína til E1 Shaddai er dæmi um hvemig lítið atvik getur leitt af sér mun lengri at- burðarás og í þessu tilviki til góðs fyrir alla aðila máls. Vinkona mín ein sá sér leik á borði þegar hún vissi að ég væri á leið til Indlands og bað mig að póstleggja þar bréf. Hún tók nýlega að sér lítinn dreng fyrir milligöngu ABC-hjálp- arstarfsins. Hún sér honum fyrir fæði, klæði og menntun með mánaðarlegri upp- hæð sem léttir hennar pyngju óverulega en skiptir sköpum fyrir munaðarlaust bam í þeim heims- hluta sem Indland er. Vegna þess að þessi vinkona mín er hjartahlý kona og vandar sig við það sem hún gerir, þá vildi hún gjarnan senda drengn- um nokkrar línur svo hann fengi hugmynd um að einhversstaðar væri einhver sem léti sig hann varða. Bréf sent héðan frá Islandi yrði sjálfsagt óralengi til Chennai þar sem drengurinn býr. Chennai? Ég var einmitt á leið þangað, ég gæti bara skutlað umslaginu inn um lúguna prívat og persónulega. I framhaldi þessa samtals datt okkur stöllunum í hug að þetta bréf gæti kannski orðið dálítið stærra, jafnvel að pakka með einhverju smálegu. Höfðum samband við skrifstofu ABC til að fá hugmynd um hvað litlu barni svona langt í burtu kæmi vel að fá. Það var nú reyndar sitt af hverju og svo áttuð- um við okkur líka á því að það gæti orðið leiðinlegt fyrir hin börnin á barnaheimilinu að fá ekki neitt. Eins og hendi væri veifað vorum við komnar í fullt starf við að finna til glaðning fyrir eitt hundrað og þrjá- tíu börn. Til að gera langa sögu stutta tók það þetta litla bréf ekki nema tvo eða þrjá daga að breytast í meira en hundrað kíló af barnavör- um, með góðri hjálp einstaklinga og fyrirtækja. Allt í einu hafði dekur- rófuferðin mín öðlast mikilvægt markmið og mér leið skyndilega eins og konu með háleitar hugsjónir. Önnur veröld Eftir langt ferðalag og lítinn svefn komum við loks í kæfandi hita til Chennai. Dagana á undan höfðum við dvalið í Delhí þar sem mér hafði opnast nýtt vitundarsvið: Heimur þess mikla fjölda fólks sem lifir við aðstæður sem ég áður hafði bara lesið um og kannski séð í sjónvar- pinu. Það daglega líf barna og ful- lorðinna að eiga sér heimili á um- ferðareyjum og þiggja lífsbjörgina í formi ölmusu. Nýi áfangastaðurinn staðfesti þennan veruleika en nú í ýktari mynd. Öllu ægði saman: Þessi setning öðlaðist nýja mynd í huga mér. Þar sem fimm hæða skrifstofubygging sem skartaði marmaraklæðningu og einkennisk- læddum dyraverði var öðrum megin við götuna var breiða af pappa- hreysum hinum megin og böm sem léku sér berfætt og nakin í ræsinu. Fagrar saríklæddar frúr tóku ekki eftir hundshræinu sem lá á gangstéttinni en stikuðu kátar áfram. Heilagar kýmar líktust á engan hátt þeim sællegu kusum sem á Islandi spæna í sig grængresið, en minntu fremur á risavaxnar rottur þar sem þær lágu jórtrandi við götu- Ijósin og virtust einna helst lifa á sorpi. Én hér var sumsé á ferð íslensk kona með æðra takmark en fá við- stöðulaus áföll yfir því sem fyrir augu, eyru og kannski einna helst nef bar. Ég hafði mælt mér mót við Evu Alexander, konuna sem sér um barnaheimili ABC í Chennai, E1 Shaddai. Á tilsettum tíma kom hún að sækja okkur, þ.e. mig og Hönnu, ferðafélaga minn einn, sem ég vélaði með mér í þetta litla ferðalag. Eva er kona á miðjum aldri og viðmót hennar lýsir sjálfstrausti og hlýleika. Fas hennar og framkoma sýnir manneskju sem hefur séð nógu margt í lífinu til að ekkert kemur henni lengur á óvart en hefur jafn- framt varðveitt þá dýrmætu ein- lægni sem sumir fullorðnir þekkja bara úr bókum. Ferð okkar Hönnu og Evu var heitið á tvo staði. Aðalviðkomustað- ur okkar var E1 Shaddai sem er u.þ.b. 50 kílómetra utan við Chennai en í leiðinni þangað fórum við í heimsókn á ungbamaheimilið sem er í litlu einbýlishúsi inni í borginni sjálfri. Þar eru nú eitthvað um 15 smáböm 0-3 ára. Daginn sem okkur bar að garði var verið að halda upp á tveggja ára afmæli einnar prinsess- unnar. Sennilega var þetta ekki af- mælið hennar í raun og vera því fæst þessara barna era svo rík að eiga löggilt fæðingarvottorð. Þess- vegna er bara skáldaður á hvert bam fæðingardagur og því slegið íostu að árlega þennan dag eigi að halda upp á afmælið. Nú eram við Hanna svo lánsamar að hafa fengið að taka þátt í einni svona veislu. Bömin voru öll klædd í sparifötin í tilefni dagsins og fengu tertu og svaladrykk. Þau sátu á þunnum mottum í aðalherbergi hússins, stór- eyg og opinmynnt yfir þessum krít- hvítu gestum sem þama voru mætt- ir. Konurnar sem halda þeim heimili era sumar fyrrverandi vændiskonur því hugsjónastarf Evu Alexander hófst upphaflega á björgun þeirra lánlausu kvenna sem neyðin hrekur til að selja sjálfa sig. Þær vora ekki síður en bömin feimnar við okkur. Smátt og smátt vann forvitnin bug á óframfæmi krílanna og brátt varð það keppikefli þeirra að sitja í fang- inu á okkur. Eftir allt of stutta við- dvöl urðum við að halda ferð okkar áfram ef okkur átti að takast að fara John er eitt barnanna sem eiga fósturforeldra á íslandi. Börnin gleðjast yfir gjöfunum frá íslandi. þetta á einum degi. Ungunum þótti greinilega ekkert gaman að þurfa að hætta að toga í hárið á þessum ein- kennilegu konum, því grátkórinn fylgdi okkur langt úr hlaði. Að eiga meira en hundrað systkini Eftir dágóðan akstur í gegnum borgina og út úr henni um þröngar götur og troðninga komum við loks til E1 Shaddai. Umhverfið er gróin sveit og flatlend. Ur fjarska virðist heimilið fremur reisulegt einbýlis- hús. Þegar nær kemur sjáum við að þakið er fléttað úr einhverskonar stráum svo frekar er um skýli en hús að ræða, enda var okkur tjáð að í rigningartíð væri lítið þurrara inni en úti. Þennan dag vorum við svo heppn- ar að sólin skein, en það hlýtur að vera nöturlegt að fóstra öll þau börn sem þarna búa þegar rignir bæði úti og inni. Fyrir innan dymar er frem- ur skuggsýnt þar sem rafmagnsljós er af skornum skammti og gluggaop byrgð með pokum og hlerum en ekki rúðum. Stór salur er í húsinu miðju og er honum skipt í tvennt með þunnum millivegg. í þessum sal er borðað, sofið, leikið oglært. Börnin, 3-15 ára, biðu okkar prúð og fögnuðu komu okkar með sam- taka kveðju og eins og á smábarna- heimilinu klæddust þau öll sínu fín- asta pússi eins og við værum þjóðhöfðingjar á ferð. Stálpaðir drengir bára hinn fyrirferðarmikla farangur okkar í hús en allt í einu fundust mér þessar töskur vera allt of fáar og litlar, þegar ég leit þennan stóra hóp. Þarna voru saman komin þau 130 börn sem þarna búa. Að í þessu eina litla húsi rúmist svo Alls dvelja 130 börn á E1 Shaddai, heimili ABC-hjálparstarfs í Chennai á Indlandi. börnunum þeirra. Eftir skemmtiatriðin gáfum við börnunum innihaldið úr töskunum okkar. Hér heima höfðu þetta virst heil ósköp, en í þessari bamafjöld blygðuðumst við okkar fyrir að hafa ekki komið með meira. Allir fengu þó eitthvað nyteamlegt og eitthvað skemmtilegt. Ókjör af ritföngum, stílabókum, litum og límmiðum hurfu eins og dögg fyrir sólu og brátt vora þessi vel uppöldu börn í engu frábragðin þeim íslensku hér heima þar sem þau töluðu hvert í kapp við annað og báru saman sitt dót og það sem aðrir höfðu fengið. John Og svo fékk ég tækifæri til að af- henda bréf vinkonu minnar til litla drengsins „hennar“, bréfið sem var upphaflega ástæðan fyrir vera okk- ar þarna í E1 Shaddai. Drengurinn heitir John, er þriggja ára stúfur og bræddi umsvifalaust í mér hjartað með stóra brúnu augunum og sínu ljúfa viðmóti. Helst hefði ég viljað stinga honum undir handlegginn og taka hann með mér heim til Islands. Hann hinsvegar skildi ekkert í þessari furðulegu konu sem allsendis ókunnug knúsaði hann með tárin í augunum. Hvaða væmni var þetta, var hann ekki nýbúinn að fá alls kyns fínirí? Nýtt þak Áður en við héldum heim úr sveit- inni fylgdi Eva okkur um landskik- ann ásamt dóttur sinni, Grace, sem einnig hefur helgað líf sitt þessu starfi. Skamman spöl frá núverandi húsaskjóli er hálfbyggt hús sem ætl- unin er að verði framtíðarheimili bamanna. Auk þeirra bama sem fyrir era verður hægt að bjóða fleiri nauðstödd böm velkomin, en um hríð hefur það verið nánast útilokað vegna plássleysis. Enn vantar þó fjármagn til að Ijúka byggingunni. Ámorgunkl. 14-17 stendur ABC- hjálparstarf fyrir basar og kaffisölu í Veislusalnum í Sóltúni 3 þar sem safnað verður fyrir múrsteinum í bygginguna. Þeir sem þangað leggja leið sína og kaupa fyrir and- virði múrsteins leggja lóð sitt á vog- arskálar til hjálpar okkar minnstu bræðra og systra. Þegar þetta nýja hús verður komið undir þak verður bylting í lífi þrjú hundruð og fimm- tíu lítilla barna á Indlandi þar sem þau munu eignast varanlegt heimili. Þá mun aldrei framar rigna á þau meðan þau sofa. Höfundur er grafískur hönnuður. margar sálir finnst mér eftir á að hyggja ótrúlegt. Koma okkar hafði greinilega ver- ið undirbúin vel. Bömin sátu öll kyrr og hljóð og svo hófst sérstök skemmtidagskrá okkur til heiðurs. Þau sungu fyrir okkur og dönsuðu í litlum hópum. Ekki var það free- style og engir samkvæmisdansar, heldur túlkuðu þau í hreyfingum sínum litlar sögur sem sungnar vora undir. Allt á okkur framandi tungu þannig að söguþráðurinn fór fyrir ofan garð og neðan, en það var unun að horfa á þessa krakka njóta þess að skemmta og segja frá. Eins og á smábamaheimilinu voru þau öll vel nærð og hrein. Ur augum þeirra skein forvitni og lífs- gleði. Áður tók ég það sem sjálf- sagðan hlut að böm séu forvitin og lífsglöð þangað til ég horfði í gama- lmennaaugu götubamanna sem hvorki ganga í skóla né leika sér fijáls, heldur hafa það mai-kmið eitt að fá að borða. Ég komst ekki hjá því að velta fyrir mér hver hefði get- að orðið framtíð þeima barna sem þarna sýndu mér kátan dans. ðll eru þau munaðarlaus eða yfirgefin af foreldram sínum. Foreldrar þeirra yfirgefnu vora ekki endilega svona vont fólk en aðstæðurnar sem þeim voru búnar eru okkur óskiljanlegar. Ógift móðir á Indlandi á sér til dæm- is ekki viðreisnar von. Henni er alls staðar útskúfað, meira að segja af fjölskyldu sinni og hefur nánast enga leið til að framfleyta sér og barninu. Þetta samfélag, Indland, sem er svo ríkt af sögu og menningu og á sér fjölskrúðugra mannlíf en víðast þekkist virðist okkur all- snægtarfólkinu stundum snautt af samfélagshjálp og umburðarlyndi þegar kemur að þeim sem höllum fæti standa: fátækum konum og Dagbókarblöð ••••••••••*•••••« Kannski Shakespeare hafi verib sadisti í adra röndina, hver veit? MEDEA minnir dálítið á Títus Shakespeares; Harmleikurinn með þeim eindæmum að eng- um dettur í hug að þvílíkt og annað eins geti gerzt í lífi okk- ar; að kona drepi börn sín til að sanna ást sína á eiginmanni sem hún hatar. Títus er blóð- ugasta leikrit Shakespeares og er þá mikið sagt. Verkið er ógnlegt og utan allrar skyn- semi. Nú hefur verið gerð eftir því stórmynd samnefnd með Anthony Hopkins og Jessicu Lang í aðalhlutverkum. Hopk- ins er óborganlegur eins og ævinlega, en engu er líkara en efnið sé samið af sadista. Kannski Shakespeare hafi ver- ið sadjsti í aðra röndina, hver veit? í þessari kvikmynd eru súrrealistísk áhrif og engu lík- ara en ráðgátur Dalis og tígris- dýr hans séu notuð þar eins og bindiefni til að halda sögu- þræðinum í réttu horfi. Medea er með öðrum hætti. Hún er stutt leikrit, einskonar einþáttungur og minnir á að leikhúsið er ekki raunverulegt, því að allt gerist þetta innan hauskúpunnar. Það er þar sem leikhúsið fer fram, en ekki endilega á sviðinu. Enginn upplifir leikverk eins og annar. Við getum hugsað hvað sem er, án þess framkvæma það. Á þeim forsendum getum við horft á leikrit sem fjallar um fjöldamorð móður á börnum sínum vegna ástar, haturs og afbrýði. Að öðrum kosti væri allt slíkt svo fáránlegt að engu tali tæki. Það myrðir engin kona þrjú börn sín til að ná sér niðri á eiginmanni sínum. En það er hægt að ímynda sér það og allt annað innan þess sem við gætum kallað leikhús hug- ans. Þannig er einnig hægt að hugsa sér goðsögulegan fjar- stæðuheim þeirra ævintýra sem fjallað er um í ásatrúar- kvæðum Eddu. Imyndunaraflið er með ýms- um hætti og ólíkt frá einum heila til annars. Gagnrýnandi skrifar það sem honum finnst, en ekki endilega það sem er. Gagnrýni er þannig persónuleg upplifun og kemur raunar eng- um við nema gagnrýnandanum. Samt bíða allir eftir henni með andagt! Það heitir markaðs- lögmál! Ef gagnrýnandinn er sjálfur mikill listamaður eða hugsuður getur verið hnýsilegt að vita afstöðu hans og álit. Að öðrum kosti er gagnrýnin eins- konar dægurfluga sem veltist um í gluggakistu fjölmiðlanna og reynir að draga að sér at- hyglina með suðinu einu. Ut- gefendur, leikhús og listamenn elska þetta suð - ef það er gott suð. En vont suð getur líka orðið eins og loftbor í eyrum samtímans. Sem sagt, óþægi- legt. En samt er það betra en síbyljan í Ijosvökunum að öðru leyti. Fagleg umfjöllun getur að sjálfsögðu verið gagnleg, ef hún á rætur í góðum smekk. En honum fer hrakandi. Senn verður enginn smekkur, engar fagurfræðilegar pælingar, ef fram fer sem horfir; aðeins eitthvert þjóðfélagsgutl. Það er svo sem ágætt því að öld vél- mennanna er að renna upp! Samtíminn er harla holur, það er tómahljóð í honum. Svo hefur alltaf verið, og líklega óhjákvæmilegt; eða þangað til tíminn hefur valið úr honum það sem við köllum arfleifð. Kannski verður hún spennandi, arfleifð vélmennanna - hver veit? En allir samtímar eru glámskyggnir, einnig okkar; ekki sízt. í leikhúsinu innan hauskúp- unnar getur allt gerzt. Og þar gerast öll leikverk - í raun. Þess vegna getum við horft á Títus og Medeu, að öðrum kosti kæmi slíkt ekki til greina. Ef við elskuðum konu náung- ans, gætum við hugsað okkur að drepa hann til að eignast konuna. En við gerðum það ekki. Ef við gerðum það, vær- um við morðingjar. Ef við hugsum glæpinn í leikhúsi hug- ans, gerist ekkert. Og enginn vissi að við hefðum tilhneig- ingu morðingjans. Hefðum framið glæpinn í huganum! Af þessum sökum er hægt að semja fjarstæðuverk eins og Títus og Medeu, óhugsandi að öðrum kosti. Títus Shakespeares er Ijótt leikrit. Þegar ég bar það sam- an við kvikmyndina sá ég að efni myndarinnar fylgir leikrit- inu að mestu. í báðum verkun- um eru börn pínd og drepin, Títus drepur jafnvel dóttur sína. Efnið vekur manni við- bjóð og í huganum hneykslað- ist ég á þessu framúrstefnu- brölti Shakespeares. Hann svífst einskis, var sagt við mig. Hann reynir á allt. Hann reyn- ir á þolrif mannlífsins til hins ýtrasta. Fyrirmyndirnar skort- ir ekki, líttu bara á grísku harmleikina! Já, einmitt, ég hafði þá í huga - og ekki sízt Medeu. Hún drepur börn þeirra Jasonar til að hefna svika hans. Öllu fórnað fyrir hefndina. En í Títusi sem á augsýnilega rætur í Medeu er gengið lengra. Títus drepur syni Tamóra gotadrottningar og matreiðir þá handa fyrir- fólkinu! Þegar það hefur étið sinn skerf segir „kokkurinn" að nú sé konan búin að leggja sér til munns sín eigin af- kvæmi. Þá verður uppnám og endanlegt blóðbað. Þegar yfir lýkur hefur enginn lífið - nema höfundurinn!! En hann skemmtir sér konunglega, að vísu! Einhverju sinni kom ég uppí Gljúfrastein uppúr nýári og sá það lá vel á skáldinu. Hann lék á als oddi, eða: hann lék við hvurn sinn fingur eins og kýrn- ar í kvæðunum hans. Ég spurði af hverju hann væri svona kátur. Jú, sagði hann, ég hef skemmt mér svo vel yfir hátíðirnar því ég hef verið að skrifa svo skemmtilegt leikrit! Ég tók að sjálfsögðu þátt í gleði skáldsins og finnst hún eftir á að hyggja talsvert meiri upplyfting en „skemmtun" Shakespeares! Ég man ekki gjörla hvaða verk þetta var sem Halldór var að skrifa yfir jólin, gæti trúað það hafi verið Silfurtunglið; eða Strompleik- urinn. En það skiptir ekki máli. Svona á að skrifa leikrit. Höfundurinn á helzt að hafa af því mesta ánægju sjálfur. Og kannski hefur Shakespeare þrátt fyrir allt haft það, hvur veit? M. . '
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.