Morgunblaðið - 25.11.2000, Síða 62
LAUGARDAGUR 25. NOVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
*
Alitsgerðin
í GREIN, sem und-
irritaður nefndi „Sátta-
gjörðin", var því haldið
fram, að fískveiðikafli
álitsgerðar auðlinda-
nefndar væri í einu og
öllu ritaður eftir nótum
lénsherra L.I.U. Má
bæta því við, að engu
er líkara en að kaflan-
um sé ritstýrt af emb-
ættismönnum hins op-
inbera. Svo vandlega
er áróðurssveifinni
snúið að vilja valdhaf-
anna.
Auk þess sem um er
rætt í „sáttagjörðinni"
er einkar athyglisvert
að kynna sér viðhorf auðlindanefnd-
ar ríkisstjómarinnar til tveggja
meginþátta sem hvor um sig ræður
úrslitum um að kerfið er ótækt með
öllu. Þetta er nýliðun í stétt útvegs-
manna og brottkast afla.
Um þá staðreynd að íslenzkur
sjávarútvegur er lokaður nýjum
framtaksmönnum í útgerð er að
heita má alls ekkert fjallað. Þar ráða
sægreifarnir lögum og lofum og
verða brátt taldir á fingram ann-
arrar handar ef svo heldur fram sem
horfir. Nú er það grafið og gleymt,
að það voru ungir, sjálfstæðir at-
hafnamenn í sjávarútvegi sem áttu
langdrýgstan þátt í íslenzku fram-
farabyltingu tuttugustu aldarinnar.
Sá sem hér heldur á penna er
fæddur og uppalinn við Djúp vestur,
á Svalbarði í Ogurvík. Hann ólst þar
upp í hópi 11 systkina. Ef þá hefðu
verið í gildi þau ólög, sem nú ráða
um sókn í sjávarafla, hefði orðið að
bera þann barnaskara út í stað þess
að treina í honum líftóruna þar til
hann sylti í hel.
En vegna þess að Hermanni á
Barði leyfðist að sækja björg í bú í
greipar Ægis skipuðust mál á annan
veg. Meðal annars svo að fimm af
þessum Hermannsbömum urðu
skipstjórar á íslenzkum fiskiskipum:
Gunnar á Eldborg frá Hafnarfirði,
Þórður á Ögra og Gísli Jón á Vigra
frá Reykjavík, Halldór á bátum frá
ísafirði og Birgir fiskiskipstjóri hjá
Sameinuðu þjóðunum um árabil og
síðar á íslandi. Og Ögri og Vigri
tóku höndum saman og stofnuðu
Ögurvík sem varð fyrst til þess á Is-
landi að semja um smíði skuttogara.
Ekkert af þessum ævintýrum hefði
prðið undir núverandi ráðstjóm á
íslandi. Enda sækjast ungir menn
-*lkki lengur eftir skipstjómarrétt-
indum. Þeir hafa engan áhuga á að
verða vinnuhjú sægreifa, eigandi
ekki möguleika á að verða sjálfstæð-
ir útgerðarmenn. Stefna Sjálfstæð-
isflokksins um mikilvægi einkafi'am-
taksins er orðin innantómt
froðusnakk.
Kafli auðlindanefndar á bls. 52 og
53 er sorglegt yfirklór í þágu léns-
herranna, þar sem einum alvarleg-
asta meingalla kvótakerfisins er
drepið á dreif og augum lokað fyrir
staðreyndum sem við blasa:
„Fyrir fram er því örðugt að segja
til um hvort brottkast á fiski við
veiðarnar sé meira eða minni [svoj
í aflamarkskerfi með varanlegum
{ aflahlutdeildum en í frjálsum fisk-
veiðum eða veiðum þar sem ann-
NettQL^
ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR
c Babinnréttingar
ars konar stjómun
er beitt. Hins vegar
hvetur aflamarks-
kerfið til veiða á
verðmætari fiski og
eykur þannig gæði
sjávarfangsins.
Hérlendis hafa
nokkrar rannsóknir
farið fram á umfangi
brottkasts hjá ís-
lenskum fiskiskip-
um. Þær rannsóknir
sýna ekki með
óyggjandi hætti að
brottkast sé meira
Sverrir hjá skipum af einni
Hermannsson tegund en annarri,
t.d. að togarar fleygi
meira af afla sínum en minni skip
og bátar. Rannsóknirnar hafa
ekki heldur sýnt hvaða áhrif til-
koma aflamarkskerfisins hafi haft
á brottkastið. Þá hefur heldur
Vantar þig nýtt og betra
bab fyrir jólin?
Nú er lag, því vib
bjóbum allt ab
afslátt af öllum gerbum.
Þab munar um minna
Friform
HÁTÚNI6A (í húsn. Fönix) SlMI: 552 4420
Kvótinn
Spurningin er ekki
hvort íslenzka brott-
kastið nemur milljörð-
um að verðmæti árlega,
segir Sverrir
Hermannsson, heldur
hversu mörgum tugum
milljarða króna.
ekki verið kannað hvort kvótalitl-
ar útgerðir séu líklegri til að
henda fiski en þær sem ráða yfir
meiri kvóta.“
Allur kaflinn í álitsgerðinni um
brottkast afla er þessu marki blekk-
inganna brenndur og er hann einn
út af fyrir sig næg ástæða til að
leggja álitsgerðina til hliðar sem
fimbul-famb. Nefnd, sem sat að
störfum á þriðja ár, hefði átt að hafa
haft tíma til að kynna sér ólygna
reynzlu Færeyinga af kvótakerfinu
og áhrif þess á brottkast afla en
Færeyingar lögðu kerfið af vegna
hins gegndarlausa brottkasts sem
það knúði fiskimenn til.
Spurningin er ekki hvort íslenzka
brottkastið nemur milljörðum að
verðmæti árlega heldur hversu
mörgum tugum milljarða króna.
Það þarf engum blöðum um það
að fletta, að núverandi fiskveiði-
stjómarkerfi gengur sér til húðar
innan tíðar. Þó er líklegt, að varð-
hundum kerfisins takist að viðhalda
því unz gripdeildarmönnunum hefir
tekizt að hrammsa til sín eins og ein-
um litlum 300 milljörðum króna,
300.000.000.000.00 - þrjúhundmð-
þúsundmilljónumkróna; og skjóta
því mestöllu undan skatti, m.a. til út-
landa eins og dæmin sanna.
Sú fjárhæð mun sitja eftir sem
skuld á útgerðinni og almenningur
neyðist til að borga úr eigin vasa ef
íslendingurinn ætlar að halda áfram
að sækja sjó í framtíðinni.
Höfundur er formaður
Frjálslynda flokksins.
Merkar hraðamælingar
NU
NYVERIÐ
sakfelldi HæstiréUur
ökumann sem ákærð-
ur hafði verið fyrir að
aka of hratt. Þessi
sami maður hafði hins
vegar verið sýknaður
af sömu ákæm hjá
Héraðsdómi Austur-
lands. Niðurstaða
Hæstaréttar er sigur
fyrir umferðareftirlit
lögreglunnar og þá
sérstaklega fyrir fjöl-
mörg embætti hennar
á landsbyggðinni.
Hraðamælingu
mótmælt
Hugi
Hreiðarsson
Forsaga málsins er sú að lög-
reglumaður, í umdæmi
sýslumannsins á Eskifirði, stöðv-
aði ökumann á um 105 km hraða.
Á þessum stað er leyfður há-
markshraði 90 km en fram kemur í
lögregluskýrslu, sem ökumaður
staðfesti með undirskrift, að hon-
um hafi verið sýndur mældur
hraði.
Hann neitaði hins vegar sakar-
giftum eftir að ákæra um umferð-
arlagabrot hafði verið gefin út og í
bréfi sínu til sýslumanns tiltekur
hann nokkur atriði. Meðal þeirra
er að lögreglumaðurinn hafi verið
eins síns liðs, aksturskilyrði slæm
og að umferð hafi verið bæði fyrir
aftan sem og framan við bifreið
hans.
Málið fór fyrir Héraðsdóm og
hinn 7. júlí sl. var ökumaður sýkn-
aður af ákærunni. Fram kom fyrir
dómi að umræddur lögreglumaður
teldi að ekkert hefði átt að hafa
áhrif á umrædda radarmælingu,
hvorki önnur umferð, færð eða
mannvirki.
I dómsniðurstöðu
segir: „Þrátt fyrir að
ekkert það sé fram
komið í málinu sem
bendir til þess að
vitnið Þ.Þ. (lögreglu-
maðurinn) hafi staðið
rangt að hraðamæl-
ingu greint sinn verð-
ur, gegn staðfastri
neitun kærða, ekki
talið að fram hafi
komið lögfull sönnun
fyrir sekt hans. Verð-
ur kærði samkvæmt
því sýknaður af þeirri
háttsemi sem honum
er gefin að sök.“
Undirritun
nauðsynleg
Nú hefur niðurstöðu Héraðs-
dóms Austurlands verið hnekkt
með dómi Hæstaréttar og öku-
manni gert að greiða sekt til ríkis-
sjóðs. I dómsniðurstöðu Hæsta-
réttar segir: „Talið var sannað
með framburði E (ökumanns) og
lögreglumannsins, svo og skýrslu
sem undirrituð var af E á vett-
vangi, að honum hefði verið gerð
grein fyrir niðurstöðu ratsjármæl-
ingar á hraða hans.
Var talið að ekkert hefði komið
fram í málinu, sem gæfi tilefni til
að ætla að ranglega hefði verið
staðið að mælingunni eða að
vefengja bæri niðurstöðu hennar."
Þessi niðurstaða er að mati undir-
ritaðs mikil áfangasigur fyrir lög-
regluna og um leið fyrir umferðar-
eftirlit þessa lands.
161
tilfelli
Víða úti á landi háttar svo til að
einungis er hægt að gera út lög-
Umferðin
Dómur Hæstaréttar er
ekki bara sigur fyrir
löggæsluna, segir Hugi
Hreiðarsson, heldur
einnig fyrir landsmenn
alla.
reglubifreiðar með einum manni.
Kemur þar helst til smæð um-
dæmis, fjárskortur og mannekla.
Sem dæmi má nefna að hjá
Sýslumannsembættinu á Eskifirði
voru árin 1998 og 1999 alls 161 (af
407 kæram) ökumenn kærðir fyrir
of hraðan akstur þar sem að einn
lögreglumaður sá um mælingu.
Hefði Hæstiréttur staðfest úr-
skurð héraðsdóms væri Ijóst að öll
þessi mál væru í uppnámi.
Lokaorð
Með þessum dómi má því ætla
að lögreglumenn á landinu öllu
geti samhæft starfshætti radar-
mælinga sinna enn frekar. Að auki
ætti að vera hægt að efla umferð-
areftirlit til muna þar sem að ein-
ungis þarf einn lögreglumann í
hvern bíl með tilheyrandi sparn-
aði.
Þannig má segja að fyrrnefndur
dómur Hæstaréttar sé ekki bara
sigur fyrir löggæslu landsins held-
ur einnig fyrir landsmenn alla.
Höfundur er markaðsfræðingur.
Bið eftir heyrnartækjum
og tekjuafgangur ríkissjóðs
I VELVAKANDA
Morgunblaðsins 31.
október sl. segir kona
að sig langi til að vekja
athygli á hversu ömur-
lega er búið að fólki
sem farið er að missa
heym, fólk þurfi að bíða
8-9 mánuði eftir að fá
heymartæki. Konan
spyr síðan hver sé
þröskuldurinn í þessu
máli. Konan virðist
samt gera sér grein fyr-
ir hver þröskuldurinn
sé, því hún spyr: „Hvað
ætlar ríkisstjómin að
gera fyrir þetta fólk og
annað fólk sem þarf á
allskonar hjálpartækjum að halda?“
Konan er ekki að ýkja þegar hún
segir af hæversku sinni að fólk þurfi
að bíða 8-9 mánuði. Hinn raunveru-
legi biðtími er meira en eitt ár, því
fyrst þarf að bíða 3-4 mánuði eftir
viðtalstíma hjá Heyrnar- og
talmeinastöð Islands og síðan 8-10
mánuði eftir tækinu.
BARNAFATNAPIIR M O N S O O N
í úrvali, skoðaðu verðið. M A K E U P
Þumalína, s. 551 2136. lifandi litir
Eru vandamál á toppnum?
Ofnæmi, flasa, exem, psoriasis, feitur eða þurr hársvörður?
Turta(y
,.11 Hárvörur leysa vandann
’TTIl OG ÞÚ BLÓMSTRAR.
UTS0LUSTADIR: HEILSUVORUVERSLANIR 0G AP0TEK UM ALLT LAND.
Þegar hringt var í
Heyrnar- og talmeina-
stöðina og spurst fyrir
um heyrnartæki sem
pöntuð vora fyrstu dag-
ana í júní sl. var svarið
að afgreiðslutími yrði
einhverntíma íyrri
hluta ársins 2001 og lát-
ið að því liggja að af-
greiðslutíminn væri
svona langur vegna
þess að tækin væra
smíðuð í útlöndum. All-
ir vita þó að sökudólg-
urinn er ríkisstjórn
Halldór Sjálfstæðisflokksins og
Jakobsson Framsóknarflokksins
með hinn sjálfumglaða
fjármálaráðherra í broddi fylkingar.
Sjálfstæðisflokkurinn
situr á kassanum
Mundu það kjósandi góður sem
hefur beðið mánuðum saman eftir
heymartækjum að það er ekki bara
persónan Geir Haarde sem situr á
kassanum og neitar að flýta af-
greiðslu heldur allur Sjálfstæðis-
flokkurinn. Mundu því við næstu
skoðanakönnun eða næstu kosningar
að refsa Sjálfstæðisflokknum. Þið
hafið þegar refsað Framsóknar-
flokknum með því að láta hann bíða
afhroð í skoðanakönnunum. Nú er
komið að Sjálfstæðisflokknum. Fjár-
málaráðherra kom fram opinberlega
nýlega og lýsti yfir snilld sinni í fjár-
málum ríkisins sem lýsti sér í meira
en 30 milljarða tekjuafgangi ríkis-
sjóðs og hann vissi bara hreint ekki
hvað hann ætti að gera með alla
þessa peninga. Sami maður sagði í
fjölmiðlum að framhaldsskólakenn-
arar sýndu meiri vilja til verkfalls en
vilja til samninga. Þetta leyfði hann
sér að segja eftir að kennarar höfðu
gefið honum meira en heilt ár til að
sýna sinn vilja til samninga. Þessi
ummæli hvor tveggja sýna ótrúlegan
stráksskap og ættu að nægja til þess
Aldraðir
Nú þarf kné að fylgja
kviði, segir Halldór
Jakobsson, og sýna
Sjálfstæðisflokknum í
tvo heimana.
að maðurinn segði af sér embætti
þegar í stað.
Þið kusuð þetta yfír ykkur
Þegar eldri borgarar söfnuðust
saman fyrir framan Alþingishúsið nú
í haust og mótmæltu bágum kjöram,
varð ég var við mann sem sagði við
fólkið sem næst stóð: Hverju erað þið
eiginlega að mótmæla, var það ekki
þetta sem þið kusuð yfir ykkur?
Nokkrir mótmæltu og sögðust ekki
hafa kosið ríkisstjómarflokkana en
aðrir þögðu við og hugsuðu sitt mál.
Nú þarf kné að fylgja kviði og sýna
Sjálfstæðisflokknum í tvo heimana,
að hann komist ekki lengur upp með
að níðast á öldraðum og öryrkjum.
Munið Sjálfstæðisflokknum kinn-
hestinn við fyrsta tækifæri.
Fyrirspurn
Eg spyr Heyrnar- og talmeinastöð
íslands, Háaleitisbraut 1, hvort hún
geti birt skýrslu hér í þessu blaði um
hve margir bíði nú eftir tækjum frá
stöðinni, vegna þess að ríkisstjórnin
dragi að veita fé til málsins, og hve
upphæðin sé stór sem þarf til að af-
greiða allar umsóknir. Ef Heyrnar-
og talmeinastöðin getur af einhverj-
um ástæðum ekki birt þessa skýrslu
hér fyrir 10. desember nk. mun ég
biðja einhvem þingmann eða þing-
menn að nálgast hana.
Höfundur er fv. forstjóri.