Morgunblaðið - 25.11.2000, Page 74
*r74 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
BRIDS
fJmsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsfélag
' Kópavogs
Fjórða og síðasta kvöldið í baro-
meter keppni félagsins var spilað
fimmtudaginn 23. nóvember. Besta
skori kvöldsins náðu:
Guðrún Jóhannesd. - Sævin Bjamas. 31
Þorsteinn Berg - Guðm. Grétarss. 28
UnnurSveinsd.-IngaLáraGuðmundsd. 27
Lokastaða i keppninni varð þessi:
Sigurður Sigurjónss. - Ragnar Bjðmss. 84
Unnar A Guðmss. - Leifur Aðalsteinss. 68
Runólfur Jónss. - Stefán Garðarss. 65
Guðrún Jóhannesd. - Sævin Bjamas. 54
Fimmtudaginn 30. nóvember
-* hefst þriggja kvölda jólatvímenning-
ur og gilda tvö bestu kvöldin til sig-
urs þannig að menn geta átt eitt
slæmt kvöld eða ekki komist eitt
kvöldið án þess að skerða vinnings-
möguleika sína. Veitt verða verðlaun
fyrir þrjú efstu sætin en auk þess
verða veitt verðlaun fyrir sigur á
hverju kvöldi fyrir sig. Einnig verða
dregin út aukaverðlaun á hverju
spilakvöldi.
Við hvetjum alla áhugasama spil-
ara til að mæta og taka þátt í
skemmtilegu j ólamóti.
Spilað er í Þinghól við Álfhólsveg
og hefst spilamennska kl 19.45.
Bridsfélag SÁA
'f Síðastliðið sunnudagskvöld var að
venju spilað hjá Bridsfélagi SÁÁ.
Þessi pör urðu efst eftir snarpa
keppni:
Guðlaugur Sveinss. - Erlendur Jónss. 106
Jóhannes Guðmannss. - Aðalbj. Bened.s. 103
Jón Stefánss. - Magnús Sverriss. 92
Spilamennska í félaginu hefst ki
19.30 á sunnudagskvöldum og eru
allir velkomnir.
Eins kvölds keppnir, skráð á
staðnum. Spilað er í HreyfUshúsinu
við Grensásveg, 3. hæð.
Nettaiu^
ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR
FATASKÁPAR
á fínu veröi
ALLTAÐ 30% AFSLÁTTUR
rHFriform
| HÁTÚNI6A (I húsn. Fðnix) SlMI: 552 4420
Bridsdeild Félags eldri
borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði Glæsibæ. Fimmtud. 16. nóv-
ember 2000. 23 pör. Meðalskor 216
stig.
Árangur N-S:
Þorsteinn Erlingss. - Ingibj. Kristjánsd. 252
KristjánÓlafss.-EysteinnEinarss. 250
HilmarValdimarss.-Magnús Jósefss. 243
Árangur -A-V:
Hannes Ingibergss. - Bjöm E. Péturss. 279
Auðunn Guðm.s. - Albert Þorsteinss. 240
Ingibjörg Stefánsd. - Þorsteinn Davíðss. 239
Tvímenningskeppni spiluð mánud.
20. nóvember. 21 par. Meðalskor 215
stig.
Arangur N-S:
Jón Stefánss. - Sæmundur Bjömss. 267
Kristján Ólafss. - Eysteinn Einarss. 257
ÞorsteinnLaufdal-MagnúsHalldórss. 243
Árangur A-V:
Margrét Jakobsd. - Kristinn Gíslas. 249
Auðunn Guðm.s. - Albert Þorsteinss. 247
BergljótRafnar-SoffíaTheódórsd. 238
11 borð í Gullsmára
Tuttugu og tvö pör tókust á í tví-
menningi í Gullsmáranum fimmtu-
daginn 23. nóvember sl. Efst vóru:
NS
Kristján Guðm.s. - Sigurður Jóhannss. 208
Kristín Guðmundsd. - Karl Gunnarss. 191
AmdísMagnúsd.-HólmfríðurGuðm.d. 182
AV
Unnur Jónsd.-JónasJónss. 231
AnnaJónsd.^Óla Jónsd. 187
GuðmundurÁGuðm.s.-JónAndréss. 181
Gullsmárabrids alla mánu- og
fimmtudaga. Skráning kl. 12,45.
Spilamennskan hefst ki. 13.00.
Bridsfélag
Fjarðabyggðar
Þriðjudagskvöldið 21. nóvember
var spiluð fimmta umferðin í aðal-
tvímenningi Bridgefélágs Fjarða-
byggðar og urðu úrslit þessi:
EinarÞorvarðars.-ÓttarGuðmundss. 58
ÁsgeirMetúsaiemss.-KristjánKristj.s. 55
ÓliGeirSverriss.-JóhannÞórarinss. 36
ÞorbergurHaukss.-ÁmiGuðmundss. 28
Staða efstu manna að loknum
fimm umferðum er á þessa leið:
Svavar Bjömss. - Oddur Hanness. 136
PéturSigurðss.-JónE. Jóhannss. 126
Einar Þorvarðars. - Óttar Guðmundss. 73
ÞorbergurHaukss.-ÁmiGuðmundss. 65
Bókavefur á mbl.is
Á mbl.is er að finna bókavef þar
sem nær allar útgefnar bækur
síðustu ára eru kynntar.
Þar eru einnig umsagnir um
bækur og fréttir af útgáfum.
Smelltu þér á mbUs
og finndu jólabókina í ár!
t
BÆKUR Á
mbl.is
*>,// jrtff
Fremri röð frá vinstri: Harpa Ingólfsddttir, Guðmundur Kjartansson og Áldís Rún Lárusdóttir. Aftari röð
f.v. Jón Viktor Gunnarsson, Dagur Arngrímsson, Bragi Þorfinnsson, Stefán Kristjánsson og Haraldur
Baldursson liðsstjóri.
Sjötta skákmót
Guðmundar
Arasonar hafíð
SKAK
Félagsheimili TR
SÖTTA GUÐMUNDAR
ARASONAR-MÓTIÐ
24.-26. nóvember 2000
GUÐMUNDUR Arason hefur
reynst íslensku skáklífi ómetan-
legur á undanförnum árum með
því að standa fyrir hverju alþjóð-
lega skákmótinu á fætur öðru.
Sjötta skákmótið hófst hægt og
hljóðlega á fimmtudaginn án þess
að mikið veður væri gert út af því í
fjölmiðlum. Fyrirkomulag mótsins
er mjög breytt frá fyrri árum, en
að þessu sinni er mótið landslið-
skeppni unglinga milli Sviss og f s-
lands.
Mótin hafa frá upphafi verið
hugsuð sem tækifæri fyrir unga
og efnilega skákmenn tíl að taka
þátt í alþjóðlegum skákmótum. í
tilefni af glæsilegum sigri íslands
á Ólympíumóti 16 ára og yngri ár-
ið 1995 kom Guðmundur Arason
fyrrverandi forseti Skáksam-
bandsins með þá hugmynd að
halda mót sem þessi og hefur
hann verið aðalstyrktaraðili þeirra
upp frá því.
Keppninni er skipt £ þrjá flokka:
20 ára og yngri og 16 ára og yngri
þar sem eru fjórir keppendur í
hvorum flokki og svo stúlkna-
flokkur 20 ára og yngri þar sem
tvær stúlkur keppa frá hvorri þjóð
og munu þær tefla tvöfalda um-
ferð. íslensku keppendumir eru:
20 ára og yngri
1. Jón Viktor Gunnarsson (2.400)
2. Stefán Kristjánsson (2.405)
3. Bergsteinn Ólafur Einarsson
(2.300)
4. Bragi Þorfinnsson (2.250)
vm. Sigurður Páll Steindórsson
(2.190)
16 ára og yngri
1. Halldór Brynjar Halldórsson
(1.930)
2. Guðjón Heiðar Valgarðsson
(1.925)
3. Dagur Amgrímsson (1.910)
4. Guðmundur Kjartansson (1.865)
Stúlkur
1. Harpa Ingólfsdóttír (1.545)
2. Aldís Rún Lárasdóttir (1.415)
vm. Anna Lilja Gísiadóttir
Búast má við hörku keppni enda
mikið um sterka skákmenn í báð-
um liðum. Áhorfendur em því
hvattir til að fjölmenna á skákstað
og veita þannig íslensku keppend-
unum stuðning.
íslenska liðið tapaði í fyrstu
umferð með minnsta mun, ð'/z-ðVá.
Tvær umferðir voru tefldar í gær
og mótinu lýkur svo með 4. um-
ferð í dag, laugardag, og hefst
taflíð klukkan 13. Teflt er í húsa-
kynnum TR, Faxafeni 12. Úrslit
fyrstu umferðar:
Jón V. Gunnarss. - R. Zenklaus-
en 1-0 Stefán Kristjánss. - F.
Hindermann 0-1 Bergsteinn Ein-
arss. - M. Rufener 1-0 Bragi Þor-
finnss. - R. Roelli 0-1 Halldór
Halldórss. - S. Papa 0-1 Guðjón
Valgarðss. - N. Ferrari 1-0 Dagur
Arngrímss. - S. Widmer V2-V2 Guð-
mundur Kjartanss. - O. Kurmann
0-1 Harpa Ingólfsdóttir - M. Seps
1-0 Aldís Rún Lámsdóttir - C.
Roelli 0-1
Eftirfarandi skák var tefld á
þriðja borði í fyrstu umferð.
Hvítt: Bergsteinn Einarsson
Svart: Paphael Roelli
Kóngsindversk vöm
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4.
e4 d6 5. f3 0-0 6. Be3 e5 7. d5 Re8
8. Dd2 f5 9. exf5 Bxf5?
Svisslendingurinn er ekki með á
nótunum í byTjuninni. Fyrrver-
andi heimsmeistari, Mikhail Botv-
innik, sagði eitt sinn, á tímum So-
vétríkjanna sálugu, að sérhvert
barn í landinu vissi, að það ætti að
drepa með peði á fö í svona stöð-
um.
Aðalókosturinn við leik Roellis
er sá, að nú fær hvítur riddari
óskastöðu á e4 bardagalaust.
10. 0-0-0 c6 11. g4 Bd7 12. Re4
Ra6 13. Kbl c5 14. h4 Hb8?!
Svartur teflir of rólega. Hann
varð að reyna að spoma við að-
gerðum hvíts með 14. - Rf6, t.d.
15. Rc3!? (15. Rxd6?! Ba4 16. b3
Dxd6 17. bxa4 e4! er óljóst) 15. -
De8 16. Rh3 Hb8 17. Rf2 Df7 18.
Be2 b519. cxbð Rc7 20. a4 Hb7 21.
Rfe4 með yfirburðastöðu fyrir
hvít.
15. h5 Rf6
Svartur á varla betri leik í stöð-
unni.
16. Rxf6+ Bxf6
Eða 16. - Dxf6 17. Bg5! Df7 18.
hxg6 hxg6 19. Dh2 Hfc8 20. Dh7+
KfS 21. Bd3 og hvítur á vinnings-
stöðu.
17. hxg6 hxg6 18. Bd3 -
18. - b5
Svartur er vamarlaus. Önnur
leið er 18. - Kf7 19. Hh7+ Bg7 20.
Bg5 Dc8 21. Bh6 Hg8 22. Bxg6+!
Kxg6 23. Hxg7+! Hxg7 24. Dg5+
Kf7 25. Dxg7+ Ke8 26. Df8+ mát.
19. Dh2 Hf7
Ekki gengur 19. - Kí7 20.
Bxg6+! Kxg6 21. Dh7+ mát.
20. Bxg6 bxc4 21. Bxf7+ Kxf7
22. Dh5+
og svartur gafst upp, því hann á
gjörtapað tafl, eftir 22. - Kf8 23.
Dg6 Be8 24. Bh6+ Ke7 25. Dh7+
Bf7 26. g5 Bh8 27. g6 o.s.frv.
Heimsmeistarakeppnin
hefst á mánudag
Heimsmeistarakeppni FIDE,
alþjóðlega skáksambandsins,
hefst á mánudaginn. Stórmeist-
arinn Hannes Hlífar Stefánsson
verður fulltrúi íslands á mótinu og
mætir Viktor Bologan í fyrstu um-
ferð. Bologan er stigahærri, en
þrátt fyrir það er Hannesi spáð
sigri og svo skemmtilega vill tíl, að
þetta er eina einvígið í fyrstu um-
ferð heimsmeistarakeppninnar
þar sem stígalægri keppandinn er
talinn eiga betri möguleika en sá
stigahærri. Anand er hins vegar
talinn eiga langbesta möguleika á
sigri í mótinu. Það má þó ekki
gleyma því, að þetta eru stutt ein-
vigi þar sem allt getur gerst.
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson