Morgunblaðið - 25.11.2000, Side 75
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000 75-
FRÉTTIR
Eldvarna-
vika hefst á
mánudag
LANDSSAMBAND slökkviliðs- og
sjúkraflutningamanna efnir til eld-
varnaviku við upphaf jólamánaðar-
ins sem að þessu sinn er vikan 27.
nóvember-3. desember.
Slökkviliðsmenn munu heimsækja
nær alla grunnskóla landsins hver á
sínu starfssvæði og eru lögð fyrir
nemendur sérstakt verkefni ásamt
eldvarnagetraun og rætt um eld-
vamir og neyðarútganga úr skóla-
stofu æfð. í landinu er u.þ.b. 160
gi-unnskólar, þar af 56 á Reykjavík-
ursvæðinu, með samtals tæplega 5
þúsund grunnskólabörnum í þriðju
bekkjar deildum þ.e. 8 ára börn.
Jafnhliða heimsóknum í skólana
er afhent sérstakt verkefni með
eldvamagetraun í tilefni af eldvarna-
vikunni. Dregið verður úr innsend-
um lausnum í janúar og verðlaun
veitt.
Verðlaunaafhending fer fram í
slökkvistöðvum víðs vegar um land-
ið.
Forvarnablaði slökkviliðs-
manna dreift um land allt
Forvarnablaðið Slökkviliðsmaður-
inn er nú sérstaklega helgað Bmna-
varnaátaki LSS og er gefið út í
64.000 eintökum og verður dreift við
upphaf eldvamaviku til landsmanna
með Morgunblaðinu laugardaginn
25. nóvember nk. Blaðið hefur að
geyma margvíslegan fróðleik og
heilræði sem gagnast öllum almenn-
ingi ekki síst um jól og áramót til að
fækka eldsvoðum og fyrirbyggja
slysin.
Ókeypis nám-
skeið í hu g-
leiðslu
BOÐIÐ verður um helgina upp á
námskeið í hugleiðslu á vegum Sri
Chinmoy miðstöðvarinnar. Á þess-
um sjálfstæðu kynningum verður
kynnt hvemig við getum notað hug-
leiðsluna í okkar daglega lífi. Hvem-
ig við könnum okkar innri mann,
hvað hann hefur að geyma og hvern-
ig við getum nýtt okkur það, segir í
fréttatilkynningu.
Kenndar verða einfaldar en
áhrifaríkar hugleiðslu- og einbeit-
ingaræfingar sem er ætlað að kyrra
hugann og sýna hvað innra með okk-
ur býr. Einnig verður fjallað um
tónlist og íþróttir út frá markmiðum
hugleiðslunnar, segir ennfremur.
Kynningamámskeiðin fara fram
föstudaginn 24. nóvember kl. 20-22,
laugardaginn 25. nóvember kl. 15-17
og sunnudaginn 26. nóvember kl. 10-
12 og 15-17 í Tónskóla Sigursveins,
Hraunbergi 2 (við hliðina á Gerðu-
bergi).
Það nægir að mæta á eitt af ofan-
töldum námskeiðum en síðan verður
boðið upp á ókeypis framhald vikuna
á eftir.
Norrænar
barnakvik-
myndir í Nor-
ræna húsinu
KVIKMYNDASÝNING fyrir börn
verður í fundarsal Norræna hússins
á morgun, sunnudag, kl. 14.
Fyrst verða sýndar finnskar
teiknimyndir, þar sem farið verður í
ævintýraferð með nokkmm kunnug-
um dýram úr finnskum þjóðsögum -
biminum, refnum, úlfinum, músinni,
hestinum og hundinum.
Síðan verður sýnt tónlistar-
myndband með hljómsveitinni
„Fröbelin palikat“, sem í era fjórir
leikskólakennarar frá Helsinki. Allt
frá árinu 1987 hafa þeir skemmt
bæði bömum og fullorðnum með
fjöragri tónlist, þar sem áhersla er
lögð á þátttöku áheyrenda.
Aðgangur er ókeypis.
Slökkviliðsmenn munu heimsækja nær alla grunnskóla landsins og er lagt fyrir nemendur sérstakt verkefni
ásamt eldvamagetraun. Rætt er um eldvamir og neyðarútganga úr skólastofu æfð.
Morgunblaðið/Ásdís
Starfsmenn Laura Ashley-verslunarinnar, frá vinstri: Herdís Snorra-
dóttir verslunarstjóri og Björg Alfreðsdóttir.
Nýir eig-
endur að
Laura Ashl-
ey-verslun
BREYTINGAR urðu á rekstri Kist-
unnar ehf. 1. júní sl. Eigendur
hennar til margra ára, systumar
Rannveig og Inga Jóna Hall-
dórsdætur, seldu verslunina.
Núverandi eigendur em hjónin
Inga Einarsdóttir og Þórarinn Egill
Sveinsson. Jafnframt var nafni fyr-
irtækisins breytt í Laura Ashley ís-
land ehf., enda er fyrirtækið með
einkaumboð á íslandi frá Laura
Ashley og mun eingöngu versla
með vörar frá því fyrirtæki. Laura
Ashley-verslunin selur m.a. kven-
fatnað, stelpufatnað, lampa, púða,
veggfóður og gluggatjaldaefni.
Fyrirtækið hefur tekið yfír rekst-
ur verslunarinnar á Laugavegi 99.
Á næstunni verður einnig opnuð
önnur Laura Ashley-verslun í mið-
bæ Akureyrar.
Verslunarstjóri í Laura Ashley-
versluninni á homi Snorrabrautar
og Laugavegs er Herdís Snorra-
dóttir. Starfsmenn auk hennar eru
Björg Alfreðsdóttir og Ása Lára
Þorvaldsdóttir. Almennur af-
greiðslutími er virka daga frá kl.
10- 18 og laugardaga frá kl.
11- 14.
Byggbig E1 Shaddai-barnaheimilisins.
Byggingarbasar
og múrsteinakaffi
ÁRLEGUR jólabasar og kaffisala
ABC-hjálparstarfs verður á morgun,
sunnudaginn 26. nóvember, kl. 11—17
í Veislusalnum í Sóltúni 3.
Að þessu sinni verður safnað fyrir
múrsteinum í byggingu E1 Shaddai-
bamaheimilisins við Chennai (Madr-
as) á Indlandi. Alls þarf u.þ.b.
225.000 múrsteina í bygginguna, en
hver múrsteinn, pússaður og kominn
á sinn stað, kostar 10 kr. I einn fer-
metra af veggfleti þarf 132 múr-
steina, sem kosta um 1.300 kr. Lagð-
ur hefur verið grunnur að rúmlega
1.000 fermetra húsi, reistar burðar-
súlur og steypt þak. Eftir er vinna
við veggi, glugga og dyr, raflagnir,
pípulagnir og flísalögn á gólf. Með
basamum og kaffisölunni er gert
átak til að safna fyrir múrsteinum í
veggina og er fólki boðið að koma og
taka þátt í að byggja.
Kakó og vöfflur ásamt öðru góð-
gæti á kaffihlaðborði mun kosta 650
kr. fyrir einstakling eða sem sam-
svarar hálfum fermetra af múrstein-
um auk þess sem úrval glæsilegra
muna verður til sölu á basamum,
segir í fréttatilkynningu.
Mjög áríðandi er að geta lokið við
bygginguna sem fyrst þar sem yfir
100 munaðarlaus og yfirgefin börn
bíða þess við slæmar aðstæður að
geta flutt inn í húsið.
Sérstakur byggingarreikningur
fyrir heimilið er í Islandsbanka nr.
515-14-280000 og vill ABC-hjálpar-
starf benda á, um leið og þakkaður
er stuðningur við fyrri verkefni, að
það munar um hvern múrstein.
Fyrirlestur um
áhrif foreldra í
uppeldinu
FYRIRLESTUR verður í Foreldra-
húsinu, Vonarstræti 4b mánudaginn
27. nóvember kl. 20.30. Fjallað verð-
ur um mikilvægi þess að foreldrar
líti á sig sem fyrirmyndir.
Það sem við geram og hvemig við
geram það hefur afar mótandi áhrif
og mikilvægt er að læra að beita
sjálfum sér meðvitað sem fyrirmynd.
Einnig verður farið yfir að líta á að-
hald og aga sem sjálfsagðan hlut,
þekkja muninn á ákveðni og
óákveðni og öðlast leikni í að gefa af
sér og hvetja bamið sitt, segir í
fréttatilkynningu.
Fyrirlesari er Sæmundur Haf-
steinsson sálfræðingur.
Hollráð bjóða
upp á
aðventuvöku
HOLLRÁÐ freista þess nú að bjóða
fyrirtækjum upp á aðventuvöku þar
sem blandað er saman fræðslu og
umræðum og endað á léttum nótum
með söng og spili. Um er að ræða
inngangsnámskeið í „samskiptum á
vinnustað" en tilvist jólanna og
væntingar þeim tengdar setja sinn
svip á umræðuna.
Lengd dagskrár er 2-3 stundir og
tímasetning getur verið morgunn,
síðdegi, fyrri hluti kvölds ýmist á
vinnustað eða í húsnæði Hollráða.
Lokakaflinn með söng og spili er
hugsaður ásamt léttri aðventuhress-
ingu, óáfengri eða áfengri, segir í
fréttatilkynningu.
SKARTGRJPA VERSLUS
Flt'RS T OG FREMS T
EG Skrifstofubúnaður ehf.
Ármúla 20 sfmi 533 5900 fax 533 5901
f-serin
PHOSPHATiDYLSERINE
BRAINBOW
BETRA MINNI - SKARPARI HUGSUN
BRA1NB0W er fæðubótarefni sem eflir starfsemi
heilans og talið er bæta veralega minnið með þvi
að hjálpa taugaboðum að berast á milli taugamóta.