Morgunblaðið - 25.11.2000, Síða 83
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000 84.
FÓLK í FRETTUM
Diskurinn llmur af jólum er kominn út
Brjálaður
jólaálfur
Hera Björk fylgdi fyrsta hugboðinu og
gerði jólaplötu, sem er bæði fjölbreytt og
fín. Enda sagði söngkonan Hildi Lofts-
dóttur að hún væri tónlistarlega ástfangin.
SÖNGKONAN góðkunna Hera
Björk hefur nú gefið út jóla-
plötu og kýs að kalla hana Ilm
afjólum. Flestir þekkja prímadonn-
una þá úr sjónvarpsþættinum Stutt í
spunann sem var á dagskrá Sjón-
varpsins í fyrra.
Hera hafði þó glatt
hjörtu landmanna áð-
ur, en hún hefur tekið
þátt í uppfærslu á fjöl-
mörgum söngleikjum,
nú seinast Litlu hryll-
ingsbúðinni og
Kysstu mig Kata
sem enn er á fjöl-
um Borgar-
leikhússins.
„Ég hef verið bakraddadrottning
núna í nokkur ár, auk þess að syngja
í brúðkaupum og jarðarförum," seg-
ir Hera. „Ég fattaði ekki fyrr en ég
fór að pæla í því að það hefur ekki
eitt lag komið út sem ég syng ein.“
Hera, sem reyndar er flutt til Dal-
víkur, notaði hverja helgi sem hún
kom suður til að syngja í leikhúsinu
til að taka upp fyrstu sólóplötuna
sína. En af hverju vill Hera helga
þessa tímamótaplötu jólunum?
1KAf því að ég skemmti mér best
ájólunum. Leiðinlegasti tíminn
er þegar 7. janúar kemur og
ég þarf að taka niður jóla-
skrautið. Ég hef það
uppi út febrúar, og
setþaðuppmjög
snemma því mér
finnst jólaskraut æðislegt.
Ég er brjálaður jólaálfur og
jólaplata var fyrsta hug-
boðið sem ég fékk. Síðan
fór ég hringinn, vildi
gefa út dægurlagaplötu, en ég kom
alltaf aftur niður á fyrstu hugmynd-
ina. Ég hef það reyndar fyrir reglu
að framkvæma það sem mér dettur
fyrst í hug.“
- Hvaðan koma lögin?
„Petta eru bæði lög sem fólk
þekkir og þekkir ekki. Fólk þekkir
Hátíð fer að höndum ein og Sérðu
Stíi'SK.emmtiie,? bai-nesjfiirh
e-rtjh Monnu óia-rsdóttuh
BJoRMlM
ísiensK-í dðns-F)of;K.urinn
Laugardag,
25. nóv 1
Laugardag,
2. des
Sunnudag,
3. des
Laugardag,
9. des
Sunnudag,
10. des
Klukkan 14
á Litla sviöi
Borgar-
leikhússins
Aðeins
fimm
sýningar
Miðasala
568 8000
[j
TÍBRA
Við slaghörpuna
A
Láttu ekki happ úr hendi sleppa!
Gunnar Guðbjörnsson og
Jónas Ingimundarson endurflytja
Vetrarferðina eftir Franz Schubert
í Salnum í kvöld laugardag
25. nóv. kl. 20:00.
Miðasalan opin frá kl. 18:00.
Sími 5 700 400.
Gunnar Guðbjörnsson
é
S a I u r i n n
það sem ég sé sem reyndar er þekkt
á ensku. Helmingur laganna hefur
ekki verið mikið spiluður hér á landi,
en þetta eru allt lög sem ég held
mikið upp á og það er ekki spurning
að hlustendur fá eitthvert lag á heil-
ann, þau eru öll mjög lagræn.“
Færeyski fram-
burðurinn fínn
Lögin eru öll á íslensku nema eitt
sem er á færeysku og nýju textarnir
eru eftir vin Heru, Sigurð Rúnar
Þórsson, og einn texti er eftir söng-
konuna sjálfa. En hvemig ætli fær-
eyska lagið hafi komið til?
„Ég pr gift hálfum Færeyingi.
Hann Óli minn kom með þessa hug-
mynd og ég hélt nú ekki, hélt hann
væri eitthvað verri... í hálfa mínútu,
en þá fór ég að hugsa þetta og leist
auðvitað mjög vel á þessa frábæru
hugmynd. Ég fór á hlusta á fær-
eyskar plötur og þetta lag, Aldurnar
í tær, var þriðja lagið sem ég hlust-
aði á og féll alveg fyrir því. Og ég er
mjög montin af því hvernig mér
tókst upp,“ segir Hera, sem í stað
þess að leita sér aðstoðar við fram-
burð færeyskunnar skrifaði textann
niður eins og hún heyrði söng-
varann fara með hann, en fékk
svo grænt ljós hjá tengdamóður
sinni. „Þetta er ofsalega fallegt^
lag og er í skemmtilegum djask-
fíling svo ég hélt útsetningunni í
grófum dráttum. Og það sama á
við um mörg laganna, þau era
svo fallega útsett að það var
hvorki hægt að gera betur né
verr, svo við héldum okkur við
grindina á nokkrum þeirra."
Sat með hroll
„Ég fékk algjöra snillinga
með mér. Óskar Einarsson
píanóleikari stjórnaði upptökum
með mér, hann var betri en eng-
inn, hann var frábær. Hann út-,
setti og stjómaði þessu af mik-
illi snilld og Gunnar Smári
Helgason hljóðblandaði plötuna.
Jóhann Asmundsson bassa-
leikari spilar með mér, Einar
Valur Scheving er trommuleik-
ari, Jón Elfar Hafsteinsson leik-
ur á gítar, Óskar Guðjónsson á
saxófón, Gunnar Gunnarsson
spilar á orgel og Margrét Eir
syngur einn dúett með mér. Svo
er ég með góðar bakraddir og
kór og fína fiðlusveit. Ég er tón-
listarlega ástfangin af öllu
þessu fólki,“ segir Hera, hæst-
ánægð með samstarfsfólk sitt.
„Við tókum fyrst upp grunn-
anna: píanó, bassa og trommur,
og þá bjó Einar Valur til nokkra
takta innan þess ramma, og ég
sat bara með hroll, mér fannst
þetta svo æðislegt. Hann spurði
mig alltaf álits og mér fannst ég
mjög stoltur framkvæmdastjóri
með allt á hreinu, en svo var allt svo
æðislegt að ég hefði aldrei getað val-
ið á milli,“ segir Hera hlæjandi.
Mtjög „Heruleg“ plata
„Mér fyndist mjög skemmtilegt ef
eftir tíu ár yrðu ennþá spiluð ein-
hver lög af plötunni minni og fólk '
kæmist í jólaskap við það. Þau
myndu jafnvel vekja minningar um
jólin 2000, þá yrði ég ánægð.'
Platan er mjög „Heruleg" og ég á
erfitt með að lýsa henni öðruvísi.
Hún er mjög ljúf, rennur vel og ég
er orðin ofsalega sátt við hana, eig-
inlega hæstánægð. Margt við plöt-
una er svolítið gamaldags; Walt
Disney-stemmning, gospel, djass,
sumt er séríslenskt, og ég held að
þess vegna eigi Ilmur afjólum eftir
að eldast mjög vel,“ segir Hera
Björk og býður alla velkomna á
heimasíðuna sína www.hera.is.
Sannir kökugerðarmenn byrja jóla-
baksturinn með ferð í Byggt og búið
þar sem þeir fá bókstaflega allt fyrir
jólabaksturinn á góðu verði.
byggtogbúió
'"Kringlunni
Bökunaráhöld
í jólabaksturinn