Morgunblaðið - 25.11.2000, Side 84

Morgunblaðið - 25.11.2000, Side 84
&£ LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Rokksveitin Miðnes gefur út plötu yMesta rokkband Islaiidssögunnar“ I haust ákvað hljómsveitin Miðnes að gefa út breiðskífu fyrir jólin. Ber hún hið fróma nafn Reykjavík, helvíti og verður henni foúgt úr hlaði í kvöld með útgáfutónleikum á Grand Rokk. Arnar Eggert Thoroddsen fékk sér kaffí og kruðerí með strákunum. NÆTURGESTIR á gamla Grand Rokk muna ábyggilega eftir sveit- inni (eða ekki), hvar hún lék sveitt og sæl fram á dauða nótt um flest- allar helgar. Þá var veitingahúsið staðsett á Klapparstígnum, þar sem nú er rekið annað veitingahús, Sirkus. Ekkert bflskúrsband „Það er spurning hvort við ætt- um að segja sögu nafnsins eða h!jómsveitarinnar,“ segir Freyr Eyjólfsson, gítarleikari, þegar þeir félagar eru beðnir um formlegar upplýsingar um eðli og inntak sveitarinnar. Þrír liðsmanna henn- ar, þeir Freyr, Stefán og Venni eru einnig meðlimir í Geirfuglunum og fyrir stuttu bættist trommuleikar- inn Andri í hóp þeirra Miðnes- manna, en hann er búinn að vera í sveitinni í tæpar tvær vikur og „þarf ekki lengur að bíða í röð á Kaffibarnum" að sögn Freys. Hann heldur áfram. „Miðnes er þrír að við hittumst með fjóra kassagít- ara áður en við fórum að spila. Svo fórum við á Grand Rokk og spiluð- um frá ellefu til fimm yfirleitt. Eft- ir það fórum við oftast nær í partí, drukkum bjór og héldum áfram að spila á gítara.“ Miðnesmenn neita því að þeir hafi spilað fullir á tónleikum. „Við drekkum aldrei þegar við ei'um að spila. Aðeins á milli laga og fyrir og eftir tónleika," staðhæfir Freyr. Nýja platan heitir eins og áður segir Reykj-dvík, helvíti. „Við tókum hana upp hratt og einsettum okkur að halda þessu hráu og fersku,“ segir Freyr. „R&R Músík gefur út en við kostum hana algerlega sjálf- ir og tökum sjálfir upp. Okkur finnst gott að hafa heildarsýn yfir verkefnin." Freyr fer mikinn. „Og með þess- ari útgáfu lýsum við stríði á hendur stærstu útgáfufyrirtækjunum. Til dæmis er eina frjálsa útvarpsstöðin í dag Rás 2, það eru einhverjir kapítalistar sem eiga hinar útvarps- stöðvarnar á þessum svokallaða „frjálsa" markaði, þar sem tónlistin sjálf skiptir ekki neinu máli.“ Þar hafið þið það. Að öðru leyti lofa piltarnir partíi allra tíma í kvöld. strákar úr Geirfuglunum sem fundu sig knúna til að spila vagg og veltu (e. rock ’n’ roll). Venni valdi þetta nafn, í höfuðið á uppáhalds drykknum sínum. Við héldum okk- ur uppi í námi með því að spila. Við urðum ekki til í bflskúr, við urðum til á krá - sóðabar, og það var aldrei æft. Það átti hver sín uppá- haldslög og við bara hittumst og spiluðum þau.“ Söguritara rekur minni til að hafa séð Ottó nokkurn Tynes á trommunum einhverju sinni á síð- kvöldi og finnst eins og meðlima- skipan hafi verið ansi óræð. „Það hefur verið eftir þijú, “ segir Freyr og hlær. „Ég er mjög ánægður að þetta band hafi orðið til á svona sóðaknæpu af því að ég held að rokk og ról hafi orðið til á sóða- knæpum. Bandið varð ekki til í ein- hverjum bflskúr hjá ríku millistétt- arfólki." Stefán segir frá degi í lífi Mið- ness. „Venjulegt kvöld var þannig Morgunblaðið/Kristinn Miðnes: Fundu sig knúna til að spila rokk og ról. Hjólabrettamót BFR haldið í kvöld Skötuhúsið kvatt f DAG er sorgardagur í hugum reykvískra hjólabrettakappa þegar þeir kveðja „Skötuhúsiö" þar sem þéir hafa haft aðstöðu síðastliðna 10 mánuði. f kvöld fer fram hinsta hjólabrettamót Brettafélags Reylyavíkur, BFR, í Skötuhúsinu og á að kveðja húsnæðið með pompi og pragt. Mótið hefst klukkan fimm og verður keppt í ýmsum greinum enda er aðstaða í húsinu fýrir BMX-hjólara, línuskautamenn og loftspreylistamenn auk hjólabretta- iðkenda. I ár verður keppt á svoköll- uðum „mini-ramp“, eða dvergpalli, og var það síðast gert í Húsafelli 89 að sögn Arnars, aðstandanda BFR. „Við fengum þetta hús sem ákveðna bráðabirgðalausn á okkar húsnæðisvanda og erum nú að missa það og horfir ekki fram á fjárveit- ingu á næsta ári.“ sagði Habbi for- maður BFR. „Við erum að beijast fyrir því að þetta vandamál verði leyst almennilega, ogþá með varan- legpi lausn.“ Aðspurðir um hvað tæki við þeg- ar BFR missir aðstöðu sína varð Habba að orði: „Ekki neitt, nema kannski að fara í bflageymslur, en það er nauðsynlegt að hafa innan- húsaðstöðu svo þessi partur menn- Það herðir hugarvfl að Habba og Arnari, en þeir, og aðrir með- limir BFR, fá ekki að halda að- stöðu sinni i Skötuhúsinu. ingarinnar fái að dafna. I Skötuhús- inu höfum við haft fasta aðstöðu og þar þurfum við ekki að færa pallana okkar hveija heigi [líkt og í bfla- stæðahúsum], höfum betri og stærri palla og þeir liggja ekki undir skemmdum. Okkur dreymir um að fá stærra og betra húsnæði en þessi menning hefur verið úti f kuldanum undanfarið. Við fáum ekki fjárveit- ingu fyrir næsta ár og verða að- standendur okkar þar með aðstöðu- lausir.“ Skötuhúsið er að Eyrarslóð 1, í Örfirisey, skammt frá Grandakaffi. Aðgangur að mótinu er ókeypis og allir velkomnir. Skífuþeytarar munu sjá um tónlist á mótinu og verður almenn gleði fram á kvöld. LEIKFELA6 KEFUKKR sýnir „Krummaskuð” Höfundur og í Frumleikhúsinu leikstjóri: /ÍMASKUB > Guðjón Sigvaldason. 7. sýning laugardaginn 25. nóvember kl. 17. 8. sýning sunnudaginn 26. nóvember kl. 17. Sýningum fer fækkandi. Miðapantanir í síma 421 2540 Start félagar fá aðgöngumiðann á 1.000.- Miðasala opnar kl. 16 sýningardagana > Miðaverð kr. 1.300.- Hressandi tilbreyting frá Heiðu o g félögum Morgunblaðið/Golli Svarið er fyrsta sólóplata Heiðu. TONLIST (íeislaplata SVARIÐ Svarið, sólóplata Heiðu Eiríks. Lög og textar Heiða Eiríks Upptaka og upptökustjórn Birgir Örn Thoroddsen. Hljóðfæraleikur: Birgir Örn Thorodddsen gítar og ýmis fríkhljóð, Þorvaldur H. Gröndal trommur, Sverrir Ás- mundsson bassi, Sigurður Björn Blöndal bassi, Birgir Baldursson trommur,Guðni Finnsson bassi, Ólafur G. Ölafsson trommur Valdi Kolii bassi, Stefán Magnússon gítar, Freyr Eyjólfsson mandóh'n, Vernharður Jósepsson bassi, Sigurjón Kjartansson gítar, Samúel J. Samúelsson básúna, Lára Lilliendahl Magnúsdóttir trompet, Hildur Guðnadóttir selló, Úlfur Eldjárn farfísa, Jóhann Jóhanns- son. Tekið upp í stúdíó Rusli 2000. Útgefandi: Japis. Platan er styrkt af tónskáldasjóði FTT. EINN dropi jólaplötuflóðsins 2000 er sólóplata Heiðu Eiríks. Þykir mér dropi þessi reyndar vera í stærra lagi og spái plötunni töluverðri athygli, jafnvel vinsældum. Ég myndi síður en svo lasta það ef platan yrði söluhá, því mér finnst hún standa undir öllum kröfum sem hægt er um gæði. Heiða er góður lagasmiður og textamir eru alls ekki sem verstir. Fátt er hægt að finna að hljóðfæraleiknum og útsetn- ingamar era hreint ágætar. Lögin em öll mjög frábmgðin hvert öðm og spanna stflbrigðin allt frá órafmagnaðri tilfinningasveiflu yf- ir í argasta pönk. Því er það rödd og söngstíll Heiðu sem heldur plötunni saman og gerir hana minna sundur- leita. Reyndar er það svolítið erfitt að láta plötuna spilast í gegn, því lögin kalla svolítið á mismunandi stemmn- ingar. Það getur tfl dæmis verið erfitt að vera kippt úr hugljúfu lagi í rokk og stuð. Þetta ætti þó að vera hægt að leysa með því að búa til sína eigin lagaröð á geislaspilaranum. Veislur held ég þó að séu hvað bestur vett- vangur fyrir plötuna, því þá geta gest- imir dansað og hvflt sig á víxl. Hún hefur nefnilega á sér allsterkar stuð- hliðar. Heiða sýnir það og sannar hér með að hún er mikil söngkona. Hún hefur breitt raddsvið sem hér nýtur sín vel. Raddanimar em flottar og laglínum- ar hæfa rödd hennar fullkomlega, svo útkoman verður áreynslulaus og beint frá hjartanu. Helsta aðalsmerki plötunnar er enda að mínu mati söng- urinn. I mörgum laganna má heyra and- blæ sem minnir á Unun forðum, sem er bara gott og blessað, en önnur og fersk áhrif em einnig áberandi í þessu stórgóða framlagi Heiðu. Það er eig- inlega ófært að fara að tíunda hvaða lög em best og hvaða lög eru síðri á plötunni. Ég tel það verði að vera hausverkur hvers og eins sem á hana hlýðir. Lögin eru einfaldfega öll góð, en bara svo frábmgðin hvert öðra, svo eðlilega falla þau misjafnlega að smekk manna. Lagið sem mér féll þó best, svona eftir nokkuð skamman áheyrnartíma, er alveg öragglega lag númer þijú. „103 mars“, sem er fallegt dægurlag í mjög smekklegri óraf- magnaðri útgáfu. Einnig finnst mér textinn við það vera sá besti á plöt- unni. Laglínan er svolítið skemmti- lega skandinavísk einhvem veginn, minnir jafnvel á sænska söngvaskáld- ið Komelis Vresvik og hans líka. Algjörlega ófært reynist mér aftur á móti að finna dæmi um slæmt lag á plötunni. Lögin hafa einfaldlega eitt- hvað við sig sem gerir að verkum að manni getur ekki fundist þau vond, jafnvel þó svo að manni lfld þau ekki beinlínis, svona í fljótu bragði. Platan verður svo aftur betri við hverja hlustun. Eftir þennan mikla lofsöng er væg- ast sagt nauðsynlegt að taka fram að verkefnið er stórt. Um það bfl tuttugu manns koma að plötunni með einum eða öðmm hætti. Það er ótvfrætt mönnum til sæmdar að vera bendlað- ir við þessa plötu. Mér finnst nýjasta framlag Heiðu til íslensks tónlistarlífs vera nokkuð framlegt. Þá á ég ekki við frumlegt í þeim skilningi að verið sé að skapa nýjan stfl - enda er margt sígilt í lög- unum - heldur er platan skemmtilega á skjön við þá íslensku tónlist sem hvað mest hefur verið hampað fyrir frumleika síðustu misseri. Þetta gerir það að verkum að hún er mjög hress- andi tilbreyting. Það er í mínum eyr- um að minnsta kosti. Ólöf Helga Einarsdóttir Munið gömlu dansana í Húnabúð, Skeifunni 11, í kvöld, kl. 21.30 Hljómsveitir Þorsteins Þorsteinssonar og Ingvars Hólmgeirssonar leika fyrir dansi. Félag harmonikuunnenda

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.