Morgunblaðið - 25.11.2000, Side 86
86 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Edda Heiðrún Backman fer með eitt af aðalhlutverkunum í Kirsuberjagarðinum
Allireiga
sinn kirsu-
berjagarð
„Allir eiga sinn kirsuberjagarð, ég reyni að
gera mér sem besta mynd af mínum garði
og í hann sæki ég náttúru þeirra tilfinninga
sem ég kem með inn á sviðið,“ segir Edda
Heiðrún Backman um þátttöku sína í Kirsu-
berjagarðinum eftir Anton Tsjekhov. Heiða
Jóhannsdóttir spjallaði við hana um sam-
starfíð við leikstjórann Tuminas og áhrifa-
mikla túlkun hennar á óðalsfrú Ranevskaju.
EDDA Heiðrún þekldr Kirsuberja-
garðinn vel, en hún lék persónuna
Vörju í uppsetningu Frú Emilíu á
verkinu árið 1994. „Ég varð þá strax
alveg heilluð af þessu verld,“ segir
Edda Heiðrún. „Ég lék þá m.a. á
móti Kristbjörgu Kjeld sem var
Ranevskaja, auk þess sem Ingvar
Sigurðsson lék þá sama hlutverk og
hann leikur nú. Við áttum öll mjög
góðar stundir í þeirri uppsetningu
og hún tókst mjög vel. Þegar mér
bauðst að leika frú Ranevskaju í
uppsetningu Rimasar gat ég ekki
annað en þegið það, þótt ég sé í
yngri kantinum fyrir hlutverkið.
Þetta er magnað hlutverk sem
krefst einlægrar túlkunar og það
fannst mér ögrandi."
- Hvernig persóna er frú Ran-
evskaja?
„Leikritið gerist fyrir tæplega
hundrað árum og lýsir tímamótum í
samfélagsgerð Rússlands, þegar
gamli aðallinn er að víkja fyrir upp-
gangi hagsýnnar millistéttar. Oð-
alsfrúin er fulltrúi þessarar deyjandi
hefðarstéttar, en hún kemur í leik-
ritinu til ættaróðals síns, bernsku-
heimilisins, og kveður það áður en
það fer undir hamarinn. Þar fer
fram mikið tilfinningalegt uppgjör,
því þótt Ranevskaja sé góð mann-
eskja á hún sínar dökku hliðar. Hún
hafði flúið til Parísar eftir andlát
sonar síns og ástmaður hennar elti
hana þangað. Heima á óðalssetrinu
mætir hún fjölskyldu og vinum sem
öll vilja henni vel en hafa þó eflaust
dæmt hana í hljóði. En líkt og við
þekkjum í nútímafjölskyldum getur
reynst erfitt að tala um vandamálin,
hvað þá að taka á þeim.“
Pólitíkin í listinni
- Nú leggur leikstjórinn mikla
áherslu á dramatík í uppsetning-
unni.
„Já, mér finnst það vera hans
köllun. Hann krefst endalausrar
leitar á dýptina og gerir enga mála-
miðlun. Hann stjórnar ferðinni.
Þetta finnst mér áhugavert. Þótt
verkið lýsi áveðnum samfélagsleg-
um umbrotum fjallar það ekki síður
um innra líf persónanna. Það gerist
voðalega lítið í leikritinu en samt
fjallar það um nánast allt sem við-
kemur mannlegum tilfinningum.
Allar leita persónurnar að því sem
þær telja fela í sér hamingju og það
er ekki endilega alltaf það hag-
kvæmasta í stöðunni. Það er líka
mikill tregi og söknuður í verkinu.
Ranevskaja er þar að kveðja
bemsku sína, fjölskyldu sína og allt
það sem hefur gert hana að því sem
hún er. Hún kveður kirsuberjagarð-
inn, stolt óðalssetursins, sem táknar
allt það sem hún hefur átt og misst.
Hún kveður sjálfa sig. Allir eiga sinn
kirsuberjagarð, hann er garðurinn í
hjarta hvers manns. En það er um-
hugsunarvert," bætir Edda Heiðrún
við, „að þótt Rimas þvertaki fyrir að
ræða um pólitík í tengslum við list-
ina finnast mér sýningar hans allar
mjög pólitískar. Þær örva áhorfand-
ann til að velta fyrir sér sínu eigin
lífi, stöðu, samskiptum og viðhorfum
til þjóðfélagsins um leið og fylgst er
með því sem er að gerast á sviðinu."
i|
M'
/
/
v
JólatiWoð
Leðuríófasett - margir lítír
Sófasett 3+1+1 Sófasett3+2+l
kr.159.000.-stgr.
kr. 179.000.-stgr.
Opiðídagfrákl. 10-16
□□□□□□
HUSGAGNAVERSLUN
REYKJAVÍKURVEGI 66 HAFNARFIRÐI SÍMI 565 4100
- Átt þú þér kirsuberjagarð?
„Já, og ég hef kynnst honum bet;
ur í gegnum vinnuna með Rimas. í
garðinum mínum er allt það besta
sem hefur hent mig og komið mér til
manns, og í hann sæki ég þegar ég
kem með sársauka minn og mína
gleði inn á sviðið.“
Eins og að setjast á skólabekk
Litháíski leikstjórinn Rimas Tum-
inas og samlandar hafa haft talsverð
áhrif á íslenskt leikhús með upp-
setningum sínum hér, enda miklir
fagmenn. Þegar Edda Heiðrún er
spurð út í samstarfið við Rimas seg-
ir hún það hafa verið ákaflega lær-
dómsríkt. „Vinnan með Rimas er
allsendis ólík því sem maður á að
venjast hér heima. Hann hefur
ákveðnar hugmyndir um leikhúsið
og fylgir ýmsum hefðum. Segja má
að hann líti á listina og leikhúsið sem
e.k. rannsóknarstofu um mannlegt
eðli. Við byrjum t.d. á þvi að fara í
gegnum mikinn undirbúning fyrir
þau tilfinningalegu átök sem hlut-
verkið felur í sér með því að kanna
til hlítar bakgrunn og forsögu hverr-
ar persónu. Þannig skáldar hann í
eyðurnar út frá því sem kemur fram
í textanum, það er meira að segja
spáð í hvað verði um persónumar
eftir að leikritinu lýkur. Þannig má
segja að Rimas ali okkur á heilmiklu
fæði áður en tekist er á við hlutverk-
in,“ segir Edda Heiðrún. „Það ligg-
ur nefnilega ekki alltaf ljóst fyrir
hvaða ábyrgð hvílir á leikaranum
þegar hann stígur inn á sviðið. Hann
þarf að gera áhorfandanum kleift að
skynja tilfinningalegt bakland per-
sónunnar og allt það sem hún hefur
gengið í gegnum. Frú Ranevskaju
fylgir mikill slíkur farangur, og ég
þarf að gæta þess að hann fari allur
með mér inn á sviðið. Það getur því
verið erfitt að bíða frammi á gangi,
þar sem maður lendir í því að spjalla
um gemsann sinn, reikninga eða
aðra hversdaglega hluti, áður en
stormað er inn á sviðið, hundrað ár
aftur í tímann," bætir Edda Heiðrún
við og hlær.
- Hvernig leggjast þessar vinnu-
aðferðir í íslensku leikarana?
„Þarna eru á ferðinni ýmsar
reglur og hefðir sem við höfum öll
Morgunblaðið/Ásdís
gott af því að komast í kynni við.
Mikil virðing er t.d. borin fyrir svið-
inu og því ekki boðið upp á hvað sem
er. Þá kalla hefðimar á ákveðna
auðmýkt og hlýðni sem er holl
reynsla fyrir okkur íslendingana
sem alltaf viljum vera mest og best.
Ég ákvað frá fyrstu stundu að gera
mitt besta til að skilja þessar vinnu-
aðferðir og fara þessa leið með Rim-
as. Mér fannst oft eins og ég væri
sest á skólabekk á ný. Ég efast ekki
um að ég hafi lært margt af þessu og
eins gekk það oft nærri mér. Edda
Heiðrún vísar nú aftur í þær rann-
sóknir á mannlegu eðli sem Rimas
leggur áherslu á. „Ef við leikarar
viljum leggja okkur fram verðum við
að starfa eins og vísindamenn, við
verðum að kanna okkar eigin tilfinn-
ingar og reyna að skilja þær til þess
að geta miðlað tilfinningum ann-
arra.“
Jólin með fjölskyldunni
- Eru áhorfendur móttækilegir
fyrir þessu dramatíska tilfmninga-
fiæði?
„Það er mjög ákveðin stefna tekin
í þessu leikriti og ég vona að sjálf-
sögðu að það skili sér til áhorfenda.
Margir em mjög hrifnir af verkinu,
en aðrir ekki. Mér finnst það hins
vegar vera hlutverk Þjóðleikhúss og
Borgarleikhúss að þjóna hinni dýru
list, eins og hún er kölluð, burtséð
frá vinsældum, það er garður sem
þarf að rækta. Sama er að segja um
leikarann, það þarf að hlúa að leik-
aranum, leiðrétta launin, stækka
flómna. Það þarf að vera pláss fyrir
sérkennilegar jurtir í garði leiklist-
arinnar. Og leikarar eiga ekki held-
ur að þurfa að vera hræddir við að
skipta um jarðveg."
- Hvað er á döfínni hjá þér á
næstunni?
„Ég hef verið fastráðin hjá Þjóð-
leikhúsinu síðastliðin fjögur ár. Það
hefur verið mikið að gera hjá mér,
þar sem ég hef verið ein af aðal-
leikkonum stóra sviðsins. Nú er ég
hins vegar að fara í smáæfingafrí og
ætla að nota þann tíma til þess að
vera með fjölskyldu minni og sinna
áhugamálum mínum. Ég hlakka til
jólanna því að það er langt síðan ég
hef átt frí um jól.“
vísindalegt *
náttúruval
LGC-geriamir hafa mesta
mótstöðuafl þekktra geria í
heilbrigðum meltingarvegi
manna. Þeir veita vöm gegn
• • áhrifum álags og streitu og
j§gí koma lagi á meltinguna.
UStjtp
fyrir Mla virkni!