Morgunblaðið - 07.12.2000, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sprengjan er gerð fyrir 60 min
sprengjuvörpu. Líklegt þykir að
hún hafi á sínum tíma verið tek-
in úr skotfærakassa.
Virk sprengja
til skrauts á
skrifborði
SPRENGJUSÉRFRÆÐINGAR
Landhelgisgæslunnar fengu á mánu-
dag tilkynningu frá manni í Mosfells-
bæ vegna sprengju sem hann
geymdi í bílskúr sínum. í Ijós kom að
um var að ræða 60 mm sprengju fyr-
ir sprengjuvörpu. Sprengjan var
virk og hafði aldrei verið skotið.
Gylfi Geirsson, forstöðumaður
tæknideildar Landhelgisgæslunnar
segir að svo virðist sem sprengjan
hafi gengið manna á milli síðan á
stríðsárunum og að hún hafi um tíma
verið höfð til skrauts á skrifborði.
„Þetta eru stórhættulegir hlutir.
Þetta er framleitt til að eyðileggja og
drepa og það er nákvæmlega það
sem þetta gerir,“ segir Gylfi. Þrátt
fyrir að sprengjan hafi verið komin
til ára sinni hafi hún síður en svo ver-
ið hættuminni en þegar hún var ný.
Öryggisbúnaður getur verið ónýtur
og því þurfi minna til að hleypa af
stað sprengingu.
Hjúkrunarfræðingar ræða einkarekstur í heilbrigðisþjónustunni
TR greiddi 3,3 milljarða til
sjálfstætt starfandi aðila
Morgunblaðið/Jim Smart
Fjölmenni sat fund Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um einkarekstur í heilbrigðisþjúnustu í gærkvöld.
„ÉG tel tímabært að láta reyna á
önnur rekstrarform í heilbrigðis-
þjónustunni á höfuðborgarsvæðinu.
Markmið þess fyrirtækis gæti verið
að veita úrvalsþjónustu fyrir sjúkl-
inga með skilvirkni og hagræðingu
að leiðarljósi," sagði Sigríður
Snæbjörnsdóttir, fyrrverandi hjúkr-
unarforstjóri Sjúkrahúss Reykjavík-
ur, á fundi um einkarekstur í heil-
brigðiskerfinu sem Félag íslenskra
hjúkrunarfræðinga efndi til í gær.
Fram kom á fundinum að
Tryggingastofnun ríkisins greiddi á
síðasta ári 3,3 milljarða króna til
sjálfstætt starfandi aðila í heilbrigð-
iskerfinu.
Ásamt Sigríði fluttu þingmennirn-
ir Ásta Möller og Þuríður Backman
framsöguerindi svo og Ragnheiður
Haraldsdóttir skrifstofustjóri í heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneyt-
inu.
Þjónustan hagkvæm
í erindi Sigríðar kom fram að um
8.000 sjúklingar væru á biðlistum um
land allt og nokkurt hlutfall þeirra
væru óvinnufærir á meðan. Spurði
hún hvort við hefðum leyfi til að
neita þessum sjúklingum um þjón-
ustu ef lagðar væru fram raunhæfar
tillögur um hvemig leysa mætti mál
þeirra af einkaaðilum. Sigríður sagði
að með einkarekinni heilbrigðis-
stofnun með lítilli yfirbyggingu,
stuttum boðleiðum og skjótri
ákvarðanatöku mætti auka heil-
brigða samkeppni, valmöguleika og
koma í veg fyrir hugsanlega einokun
á þjónustu.
Asta Möller nefndi í erindi sínu að
Tryggingastofnun ríkisins hefði á
síðasta ári greitt 3,3 milljarða króna
vegna sjálfstætt starfandi aðila í
heilbrigðisþjónustu en heildarupp-
hæðin væri 4,5 milljarðar ef hluti
sjúklinga væri einnig meðtalinn. Til
samanburðar nefndi hún að kostnað-
ur við Landspítala - háskólasjúkra-
hús væri um 20 milljarðar á ári. Alls
væru 1,6 milljarðar af þessari upp-
hæð greiðslur til lækna og er hluti
sjúklinga þá ekki meðtalinn, 1,1
milljarður til tannlækna en 74 millj-
ónir til hjúkrunarfræðinga í einka-
rekstri, 20 milljónir vegna iðjuþjálf-
unar og 30 milljónir vegna fæðinga.
Ásta sagði hafa reynst erfitt að fá
fleiri leyfi fyrir sjálfstætt starfandi
hjúkrunarfræðingum. Sagði hún í
umræðum í lok fundar það hafa kom-
ið í ljós við könnun að þjónusta þess-
ara hjúkrunarfræðinga væri í háum
gæðaflokki og hagkvæm. Nefndi hún
sem dæmi að kostnaður vegna þjón-
ustu þeirra við börn væri aðeins
þriðjungur af því sem hann væri
þegar bömin lægju á sjúkrahúsi og
heimaþjónusta væri aðeins einn
sjötti af kostnaði við krabbameins-
sjúklinga sem væru á sjúkrahúsi.
Þuríður Backman benti í erindi
sínu á að mikilvægt væri að kanna
áhuga meðal hjúkrunarfræðinga á
einkarekstri áður en lögð væri mikil
vinna í að koma á slíku fyrirkomu-
lagi. Nefndi hún að í skoðanakönn-
unum hefði komið í ljós að almenn-
ingur væri hlynntur öflugri
samfélagsþjónustu í heilbrigðiskerf-
inu og spurði af hverju sjónarmið
hjúkrunarfræðinga skyldu vera önn-
ur. Hún sagði öfluga heilsugæslu
geta dregið úr kostnaði í öðrum þátt-
um heilbrigðiskerfisins, m.a. sjúkra-
húsarekstri. Kvaðst hún vilja leggja
áherslu á eflingu velferðarkerfisins
með öflugra starfi heilsugæslunnar.
Læknastöðvar stofna félag um hagkvæmmathugun
Undirbúa miðstöð í
heilbrigðisþj ónustu
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Syngja undir stjórn
föður síns
SYSTKININ Garðar Thór og
Nanna María Cortes koma í fyrsta
sinn fram sem einsöngvarar undir
stjórn föður síns, Garðars Cortes,
á tónleikum Kórs Islensku óper-
unnar í Langholtskirkju á laugar-
dag og sunnudag kl. 16. Flutt
verður óratórían Elía eftir Mend-
elssohn og verður Kristinn Sig-
mundsson í titilhlutverkinu.
Garðar Thór og Nanna María
eru bæði við framhaldsnám í söng
í Bretlandi og eru samhliða því að
stfga sín fyrstu skref sem atvinnu-
menn í faginu. Faðir þeirra fagnar
því að systkinin skuli hafa fetað í
fótspor sín en þvertekur fyrir að
hafa beitt þau þrýstingi. „Ákvörð-
unin er alfarið þeirra. Ég hef frek-
ar latt þau en hitt. Þau hefðu held-
ur ekki náð svona langt ef hugur
fylgdi ekki máli,“ segir Garðar.
LÆKNASTÖÐVAR í Reykjavík
hafa ákveðið að stofna félag til að
kanna hagkvæmni þess að lækna-
stöðvarnar sameinist um nýja mið-
stöð fyrir sérhæfða heilbrigðis-
þjónustu. Stefnt er að því að veita
þá þjónustu sem nú er veitt á stof-
um en einnig sjúkrahúsþjónustu
vegna aðgerða, rannsókna eða
meðferðar sem krefst styttri inn-
lagna á sjúkradeild.
Samkvæmt upplýsingum frá for-
svarsmönnum nýja félagsins hafa
sérfræðingar sinnt umfangsmikilli
læknisþjónustu utan spítala og er
sú starfsemi stunduð á allmörgum
læknastöðvum í Reykjavík sem
sérfræðingarnir reka sjálfir. Sú
þjónusta sem krefst innlagnar á
sjúkrahús hefur hins vegar verið
rekin alfarið af hinu opinbera. Á
undanförnum árum hefur bið eftir
aðgerðum lengst og læknar átt í
vaxandi erfiðleikum með að leysa
vandamál sjúklinga sinna með
nauðsynlegum aðgerðum og rann-
sóknum innan ramma hins opin-
bera sjúkrahúskerfis.
Þó svo að stóru sjúkrahúsin í
Reykjavík fái nú til umráða um 20
milljarða króna á ári virðist engin
viðunandi lausn fram undan á
þessu aðkallandi vandamáli, að
mati forráðamanna félagsins.
Leita eftir samningum við
Tryggingastofnun
Þau fyrirtæki sem eiga aðild að
hinu nýja félagi eru Læknasetrið
og Rannsóknarstofan í Mjódd,
Læknisfræðileg , myndgreining,
Læknastöðin í Álfheimum 74,
Læknastöðin í Álftamýri 5, Lækn-
ing í Lágmúla 5, Læknastofan í
Síðumúla 37, Lasersjón í Ármúla
24, Barnalæknaþjónustan, Domus
Medica hf., Hjúkrunarþjónustan í
Álfatúni 20, Vefjarannsóknastofan
í Álfheimum 74 og Speglun ehf. í
Álfabakka 12.
Tilgangur félags þessara fyrir-
tækja er, samkvæmt upplýsingum
þess, að kanna hagkvæmni þess að
læknastöðvarnar í Reykjavík sam-
einist um nýja miðstöð fyrir sér-
hæfða heilbrigðisþjónustu. Þar
yrði unnt að leita til sérfræðinga í
flestum greinum lækninga á einum
stað og leitast við að bjóða full-
komnustu tæki til greiningar og
meðferðar sem völ er á. Stefnt yi'ð1
að því að veita bæði þá þjónustu
sem nú er veitt á stofum en einnig
sjúkrahúsþjónustu vegna aðgerða,
rannsókna eða meðferðar sem
krefst styttri innlagna á sjúkra-
deild. Leitað verður eftir samningi
við Tryggingastofnun ríkisins um
greiðslu fyrir slíka þjónustu.
Sérblöð f dag
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
íMmmimOlTOíiiDi.
Morgunblaðinu J
ídagfylgir
jólablað frá Jack !
& Jones. Blaðinu J
verður dreift á ;
suðvestur- •
horninu. J
Stjórn UMFÍ samþykkti
viðræður við ÍSI/Bl
Manchester United með
góða stöðu /B4
Scrblaö um viQskipti/atvinnulif