Morgunblaðið - 07.12.2000, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Siv Friðleifsdóttir umhverfísráðherra um úrskurð sinn um vinnslu úr Mývatni
„Varúðarr eglunni
fylgt í iírskurðinum“
Morgunblaðið/BFH
Horft yfir athafnasvæði Kísiliðjunnar í Helgavogi við Mývatn.
Ráðherra mis-
skilur varúðar-
regluna, sagði
fyrirspyijandi
SIV Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra lagði á það áherslu í fyrir-
spumartíma á Alþingi í gær að farið
hefði verið að hinni svokölluðu var-
úðarreglu í nýgengnum úrskurði sín-
um um mat á umhverfisáhrifum kís-
ilgúrvinnslu úr Mývatni. Lagði hún
jafnframt áherslu á að eðlilega hefði
verið staðið að öllu umhverfismats-
ferlinu varðandi kísilgúrnám í vatn-
inu. Bftir að leitað hefði verið um-
sagnar hjá fagaðilum hefði
skipulagsstjóri ríkisins fallist á kísil-
gúrvinnslu í Syðri-Flóa vatnsins að
uppfylltum ellefu skilyrðum. Hún
hefði síðan staðfest þann úrskurð
með því að bæta við einu starfsskil-
yrði til viðbótar. „Og ef það er ekki
að láta náttúruna njóta vafans þá
veit ég ekki hvað,“ sagði hún.
Tilefni ummælanna var fyrirspum
tveggja þingmanna Vinstrihreyfing-
arinnar - græns framboðs, Stein-
gríms J. Sigfússonar og Kolbrúnar
Halldórsdóttur, um varúðarregluna
sem skilgreind er í Ríó-yfirlýsing-
unni, en sú yfirlýsing var samþykkt á
heimsráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna árið 1992. Með varúðarreglunni
er átt við að náttúran fái að njóta vaf-
ans þegar metin eru umhverfisáhrif
framkvæmda í náttúmnni.
Kveikjan að fyrirspum þingmann-
anna var, að sögn Kolbrúnar Hall-
dórsdóttur, grein Aðalheiðar Jó-
hannsdóttur lögíræðings, sem birtist
í Morgunblaðinu, um miðjan síðasta
mánuð, en þar gerir hún varúðar-
regluna m.a. að umtalsefni og dregur
í efa að henni hafi verið framfylgt í
úrskurðum umhverfisráðherra, frá
því í haust, og skipulagsstjóra ríkis-
ins, frá því í sumar, um mat á um-
hverfisáhrifum kísilgúrvinnslu í
Mývatni.
Reglan ekki lögfest
Fyrirspurn þingmannanna var í
fjómm liðum og las Kolbrún Hall-
dórsdóttir þá upp í fyrirspumartíma
á Alþingi í gær. í fyrsta lagi spurði
hún hvort umhverfisráðherra teldi
íslensk stjórnvöld vera lagalega
bundin af fimmtándu reglu Ríó-yfir-
Iýsingarinnar, sem nefnd hefði verið
varúðarreglan. í öðm lagi hver út-
færsla reglunnar væri og hvort til
stæði að lögfesta þá útfærslu.
I þriðja lagi spurði Kolbrún ráð-
herra að því hvemig hann rökstyddi
að 15. regla Ríó-yfirlýsingarinnar
hefði verið notuð í nýgengnum úr-
skurði um kísilgúrvinnslu í Mývatni.
Og í fjórða lagi spurði Kolbrún ráð-
herra að því hver gmndvallarmun-
urinn væri á framkvæmd varúðar-
reglunnar annars vegar og
framkvæmd reglna um fyrirbyggj-
andi aðgerðir hins vegar með tilliti til
úrskurðar ráðherra.
Sem svar við fyrstu spumingunni,
benti umhverfisráðhema á, að Ríó-
yfirlýsingin, væri ekki þjóðréttar-
lega skuldbindandi fyrir Island eða
önnur þátttökuríki. I yfirlýsingunni
fælist hins vegar stefnuyfirlýsing
sem aðildarríkin ætluðu sér að íylgja
við framkvæmd umhverfismála.
„Varúðarreglan er ein af megin-
reglum umhverfisréttar í Ríó-yfir-
lýsingunni en með tilkomu hennar
var mótuð sú meginstefna sem er
jafnt gmndvöllur löggjafar hér á
Iandi um umhverfismál sem og ann-
ars staðar, þ.e. að umhverfið og nátt-
úran skuli njóta vafans en ekki eins
og áður að framkvæmdir skyldu
njóta hans. Þessi útfærsla hefur ekki
verið lögfest beinum orðum í löggjöf
þótt hún liggi til gmndvallar fram-
kvæmda umverfisslöggjafar,“ sagði
ráðherra.
Um aðra spurninguna sagði ráð-
herra að þótt íslensk stjómvöld
væm ekki lagalega bundin af Ríó-
yfirlýsingunni og varúðarreglan, ein
og sér, sem slík hefði ekki verið lög-
fest hér á landi hefði í löggjöf á síðari
ámm verið tekið mið af markmiðum
hennar. Ráðherra sagði í þessu sam-
bandi að komið hefði til tals í ráðu-
neytinu að lögfesta varúðarregluna
en við nánari skoðun hefði verið fall-
ið frá því að setja hana í sérstök lög
en fella hana fremur inn í alla þá lög-
gjöf sem við ætti eins og gert hefði
verið.
Fallist á vinnslu með skilyrðum
í svari sínu við þriðju spurning-
unni benti ráðherra á að það væri
hlutverk umhverfisráðherra að
kveða upp úrskurði samkvæmt lög-
um nr. 106/2000 um mat á umhverf-
isáhrifum. „I úrskurðum sínum verð-
ur ráðherra að styðjast við lögmæt
sjónarmið," sagði ráðherra og las
síðan upp úr úrskurði sínum um kís-
ilgúrvinnslu úr Mývatni. „Regla 15 í
Ríó-yfirlýsingunni vai- samþykkt á
heimsráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna um umhverfi og þróun í Ríó de
Janero og fjallar um varúðarregluna
en hún hljóðar svo: í því skyni að
vemda umhverfið skulu ríki í ríkum
mæli beita varúðarreglunni eftir því
sem þau hafa getu til. Skorti á vís-
indalegri fullvissu, þar sem hætta er
á alvarlegu eða óbætanlegu tjóni,
skal ekki beitt sem rökum til að
fresta kostnaðarhagkvæmum að-
gerðum sem koma í veg fyrir um-
hverfisspjöll.“
Benti ráðherra því næst á að í úr-
skurði skipulagsstjóra ríkisins, varð-
andi kísilgúrvinnslu, frá því í sumar,
hefði verið fallist á námuvinnslu með
ákveðnum skilyrðum. „Skilyrðin
kveða á um að auknar rannsóknir
eigi að fara fram um vöktunaráætl-
anir og þá skyldu framkvæmdaraðila
að gera tillögu að viðmiðunum um
hvenær grípa skuli til mótvægisað-
gerða. Auk þess sem gerð er krafa
um að framkvæmdaraðili leggi fram
útfærðar hugmyndir og áætlanir um
prófanir mögulegra mótvægisað-
gerða varðandi ákveðna þætti áður
en til framkvæmda kemur," sagði
hún.
„Með hliðsjón af íramansögðu er
það mat ráðuneytisins að varúðar-
reglunni hafi verið fylgt í hinum
kærða úrskurði skipulagsstjóra. Ég
endurtek, það er mat mitt að varúð-
arreglunni hafi verið fylgt því ekki
má gleyma að í úrskurðinum segir að
kísilgúrnám á svæði tvö muni ekki
hafa í för með sér umtalsverð um-
hverfisáhrif að uppfylltum þeim tólf
ítarlegu skilyrðum sem sett eru fram
í úrskurðinum og fylgja ber.“
Að lokum sagði ráðherra um
fjórðu fyrirspumina að varúðarregl-
an gerði ráð fyrir því að umhverfis-
áhrif væru metin áður en ráðist væri
í framkvæmdir og að á grundvelli
þeirra gagna sem aflað væri í mats-
ferlinu væri ákvörðun tekin. „Hins
vegar eru fyrirbyggjandi aðgerðir til
dæmis mengunarvarnir af öðrum
toga ætlaðar til þess að ná tilteknum
umhverfismarkmiðum og koma í veg
fyrir umhverfisskaða," bætti hún
við.
Skoðanir mismunandi
Eftir að umhverfisráðherra hafði
svarað fyrirspurnunum kom Stein-
grímur J. Sigfússon, þingmaður
Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs á Norðurlandi eystra, í
pontu og fullyrti að ráðherra væri
nokkurn veginn einn um þá skoðun í
landinu að náttúran hefði fengið að
njóta vafans í umræddum úi-skurði.
Halldór Blöndal, þingmaður Sjálf-
stæðisflokks á Norðurlandi eystra,
kvaddi sér einnig hljóðs og lýsti yfir
ánægju sinni með „þróun kísilgúr-
mála í Mývatnssveit“. Sagði hann
byggðina þar standa og falla með því
að það fólk sem þar byggi hefði at-
vinnu. Fullyrti hann jafnframt að
kísilgúrvinnslan í Mývatnssveit væri
náttúruvæn.
í máli sínu lagði Jóhann Ársæls-
son, þingmaður Samfylkingarinnar,
m.a. áherslu á að í málefnum kísil-
gúrvinnslunnar stönguðust á skoð-
anir náttúruverndarsinna og vís-
indamanna um það hvort heimila
ætti kísilgúrvinnslu úr Mývatni. „Ef
það er ekki vafi sem ætti að túlka
náttúrunni í vil,“ sagði hann, „spyr
ég hvenær er hann þá“.
Um svör umhverfisráðherra, sem
hér hafa verið rakin, sagði Kolbrún
Halldórsdóttir að sér virtist sem ráð-
herra skildi ekki eða misskildi illi-
lega varúðarregluna. Reglan snerist
um það að þegar vísindalegur vafi
léki á því hvort nýting náttúrunna
væri sjálfbær eða ekki þá bæri að
láta náttúruna njóta vafans. „Hér
ríkir sannanlega vísindaleg óvissa,"
sagði Kolbrún. „Þess má geta að allir
lögboðnir ráðgjafar og undirstofnan-
ir hæstvirts ráðherra hvöttu til var-
úðar og það gerðu frjáls félagasam-
tök líka. AJlir þessir aðilar lýstu því
yfir að um verulegan vafa væri að
ræða,“ sagði hún ennfremur. „Eftir
því fór hæstvirtur ráðherra ekki í
úrskurði sínum sem styður þau orð
mín...að hún virðist í öllu falli mis-
skilja ef ekki sýna fullkominn skiln-
ingsskort á þessari reglu.“
Siv Friðleifsdóttir sagði það al-
rangt að hún misskildi varúðarregl-
una og ennfremur að það væri ekki
rétt að allar stofnanir ráðuneytisins
hefðu mælt gegn úrskurði ráðherra.
„Það er alrangt að allar stofnanir
ráðuneytisins hafi mælt gegn þess-
um úrskurði," sagði hún og hélt
áfram. „Skipulagsstofnun er undir-
stofnun umhverfisráðuneytisins.
Það er sú stofnun sem fór yfir allt
málið. Það er sú stofnun sem heldur
utan um það, kallar eftir umsögnum
og fer yfir umhverfismatið.“
ALÞINGI
Vilja eyða
villtum
minki
FJÓRIR þingmenn stjórnarflokk-
anna hafa lagt fram á Alþingi til-
lögu til þingsályktunar um eyðingu
villts minks hér á landi og um rann-
sóknir á minkastofninum. Segir í
greinéirgerð með tillögunni að flest
bendi til þess að minkurinn sé mun
meiri vágestur í lífrikinu en hingað
til hafi verið talið. Frekari út-
brciðsla minks geti til að mynda
haft mjög skaðleg áhrif á ýmsa
fuglastofna hér á landi.
Meginefni tillögunnar, sem Ámi
Gunnarsson varaþingmaður Fram-
sóknarflokksins í Norður-
landskjördæmi vestra flytur, er að
Alþingi álykti að fela umhverfis-
ráðherra að skipa ncfnd sem geri
tillögur um stórauknar aðgerðir til
eyðingar villiminks. Jafnframt
verði nefndinni falið að gera tillög-
ur um fjármögnun aukinna minka-
veiða og frekari rannsókna á
minkastofninum og áhrifum hans á
islenska náttúru.
I greinargerð tillögunnar er m.a.
vísað til þess að náttúruvísinda-
menn og veiðimenn séu sammála
um að flest bendi til að minkastofn-
inn hér á landi stækki enn.
Afþingi
Dagskrá
ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl.
10.30 í dag en kl. 13.30 verður ut-
andagskrárumræða um ráðstafanir
1 húsnæðismálum. Málshefjandi er
Ogmundur Jónasson en félagsmála-
ráðherra, Páll Pétursson, verður til
andsvara.
Að öðru leyti verða eftirfarandi
mál á dagskrá:
1. Forvarnir gegn krabbameinum,
beiðni um skýrslu.
2. Eftirlit með útlendingum.
Frh. 1. umr.
3. Þjóðminjalög. 1. umr.
4. Safnalög. 1. umr.
5. Húsafriðun. 1. umr.
6. Menningarverðmæti. 1. umr.
7. Greiningar- og ráðgjafarstöð
ríkisins. 1. umr.
8. Vinnumarkaðsaðgerðir.
l.umr.
9. Réttindagæsla fatlaðra.
l.umr.
10. Málefni aldraðra. 1. umr.
11. Heilbrigðisáætlun til ársins
2010. Fyrri umr.
12. Tollalög. 1. umr.
13. Lokafjárlög 1998.
Frh. 1. umr.
14. Breyting á XI. viðauka við
EES-samninginn. Fyrri umr.
15. Endurgreiðslur vegna kvik-
myndagerðar á íslandi. 1. umr.
16. Dýrasjúkdómar.l. umr.
17. Lax- og silungsveiði.
l.umr.
Bindur vonir við fund
deilenda í Kanada
SIV Friðleifsdóttir umhverfisráðherra kvaðst, í
utandagski-árumræðu á Alþingi í gær, telja mikl-
ar líkur á því að niðurstaða næðist í deilum ríkja
um Iosun gróðurhúsalofttegunda á loftslagsráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna sem væntanlega
verður haldin í Bonn í Þýskalandi í maí á næsta
ári. Engin niðurstaða fékkst hins vegar í þessum
deilum á loftslagsráðstefnu SÞ í Haag í Hollandi,
í lok síðasta mánaðar, eins og kunnugt er.
Ráðherra greindi jafnframt frá því að nú
stæði yfir fundur í Kanada milli fulltrúa nokk-
urra þeirra ríkja sem deildu í Haag í síðasta
mánuði. A fundinum væru með öðrum orðum
fúlltrúar Evrópusambandsríkjanna og fulltrúar
regnhlífahópanna svokölluðu. ísland tilheyrii-
síðamefnda hópnum auk átta annarra ríkja, svo
sem Bandaríkjanna, Kanada, Ástralíu og Nor-
egs. „Hugmyndin er sú að reyna að ná niðui’-
stöðu milli þessara tveggja ríkjahópa sem ef til
vill yrði hægt að staðfesta á væntanlegum fundi
umhverfisráðherra ESB 18. desember nk. Náist
samkomulag milli þessara ríkja mun forseti ráð-
stefnunnar (í Haag), Jan Pronk, og umhverfis-
ráðherra Hollands, geta nýtt það sem hluta af
lokalausn sem við vonandi samþykkjum í maí,“
sagði Siv.
Málshefjandi umræðunnar í gær var Þórunn
Sveinbjamardóttir, þingmaður Samfylkingar-
innar, og spurði hún ráðherra m.a. að því hvað
hún teldi að gera þyrfti til að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda. í svari ráðherra kom
m.a. fram að hópur ráðuneytisstjóra undir for-
ystu umhverfisráðuneytisins væri nú að vinna
að framkvæmdaáætlun um aðgerðir til að draga
úr losun gróðurhúsalofttegunda. Ætti sú áætlun
að ná til næstu fimm ára.
Þómnn benti á í umræðunum í gær að allir
væm sammála um að minnka þyrfti losun gróð-
urhúsalofttegunda út í lofthjúp jarðar. „En það
er bara ekki alveg sama hvemig það er gert,“
sagði hún. „Það er sama hvernig háttvirtir
stjómarliðar láta. Það verður hverfandi minnk-
un á losuninni með því að reisa álver á Islandi,
hverfandi minnkun hnattrænt. Við getum gert
svo miklu meira með því að einbeita okkur að þrf
að minnka losun í öðmm geimm. En þetta virð-
ist hæstvirt ríkisstjóm ekki skilja."
Siv Friðleifsdóttii’ benti m.a. á í sínum mál-
flutningi að losun gróðurhúsalofttegunda á ís-
landi væri um þrjátíu prósent lægri en í Evrópu-
sambandinu að meðaltali. í ESB notuðu menn
kol, olíu og kjamorku sem orkugjafa. „Ég hlýt
að spyija Samfylldnguna og Vinstri græna hvað
viljið þið? Þið viljið nota vistvæna orku. En hvað
er vistvæn orka? Það er jarðvarmi og vatnsorka.
Þið viljið ekki nota kol, þið rfljið ekki nota olíu og
þið rfljið ekki nota kjamorku. Þá spyr ég: af-
hveiju styðjið þið ekki sérákvæði Islendinga?
Með þrf emm rfð að biðja um nákvæmlega
þessa orkugjafa," sagði hún og rfsaði þar til þess
að Islendingar væm með sérákvæðinu að biðja
um vistvæna orku.