Morgunblaðið - 07.12.2000, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Frestað að setja Augusto Pinochet, fyrrverandi forseta, í stofufangelsi
Yfírmenn í
Chile-her krefj-
ast samráðs
Santiago. AFP.
YFIRMENN hersins í Chile hafa
krafist þess að vera hafðir með í ráð-
um um örlög Augustos Pinochets,
fyrrverandi einræðisherra, en áfrýj-
unarréttur í Santiago hefur frestað
fyrirskipun um, að hann verði
hnepptur í stofufangelsi vegna ásak-
ana um mannréttindabrot. Ricardo
Lagos forseti segist munu verða við
kröfunni og kveðja saman svonefnt
þjóðaröryggisráð. Þar eiga sæti
helstu ráðamenn þjóðarinnar en
einnig fulltrúar hersins.
Lagos sagðist þó ekki myndu kalla
ráðið saman fyrr en dómstólar hefðu
fjallað um stofufangelsisúrskurðinn.
Juan Guzman, dómari, sem er að
rannsaka ásakanir um, að það hafi
verið að undirlagi Pinochets, að 75
andstæðingum herstjórnarinnar var
rænt og þeir síðan myrtir árið 1973,
úrskurðaði einræðisherrann fyrr-
verandi í stofufangelsi sl. föstudag.
Lögfræðingar Pinochets áfrýjuðu
úrskurðinum og héldu því fram, að
fyrst hefði átt að yfirheyra hann og
kanna heilsufar hans eins og lög
kveði á um. Féllst áfrýjunarréttur-
inn á það og hefur frestað fyrirskip-
uninni um stofufangelsi. Mun hann
taka lögmæti hennar fyrir í dag.
Kurr í hernum
Yfirmenn í Chileher brugðust illa
við úrskurðinum um, að Pinochet
skyldi settur í stofufangelsi og áttu í
fyrradag fund um málið með Lagos
og Mario Femandez varnarmála-
ráðherra. Fóru þeir fram á, að þjóð-
aröryggisráðið yrði kvatt saman til
að fjalla um það.
Yfirmenn hersins eru mjög
Pinochet mótmælt við hús hæstaréttar í Santiago. Dómarinn Juan
Guzman telur, að Pinochet beri ábyrgð á dauða 75 manna, sem „Dauða-
lestin" svokallaða myrti eftir valdaránið 1973.
óánægðir með tilraunir til að koma
lögum yfir Pinochet og kalla það til-
ræði við friðinn í landinu. Þó er talið
víst, að þeir muni ekki grípa til
neinna örþrifaráða hver sem fram-
vindan verði.
Framhaldið ræðst
af læknisskoðun
Ákvörðun Guzmans dómara um að
hneppa Pinochet í stofufangelsi kom
lögfræðingum hans í opna skjöldu.
Þeir höfðu talið víst, að það yrði ekki
gert fyrr en að lokinni læknisskoðun.
Guzman segir, að komi í ljós, að Pin-
ochet sé við góða heilsu, muni hann
yfirheyra hann en samkvæmt chil-
eskum lögum fellur málarekstur því
aðeins niður, að sakborningur sé
ekki heill á geði eða þjáist af elli-
glöpum.
Pinochet var handtekinn í Bret-
landi í október 1998 vegna kröfu
spænsks dómara, sem vildi draga
hann fyrir rétt vegna mannréttinda-
brota og pyntinga. Var hann 503
daga í gæslu þar til breskur dómari
úrskurðaði, að hann væri of gamall
og veill til að standa fyrir máli sínu á
Spáni.
Kúariða
utan úr
geimnum?
London. AFP.
TVEIR vísindamenn í Bret-
landi segja að kúariðubakter-
ían hafi ef til vill borist með
loftsteinum utan úr geimnum.
Chandra Wickramasinghe er
stærðfræðiprófessor við
Wales-háskóla og hefur hún
ásamt hinum þekkta prófessor
Fred Hoyle í Cambridge varp-
að kenningunni fram. Segja
þau að nautgripir gætu hafa ét-
ið gras sem mengað hafi verið
geimryki er borið hafi örver-
una til jarðar. Slíkt ryk berist
einkum til jarðar á vetuma.
Vetrarbeit nautgripa sé algeng
í Wales enda hafi kúariðan ver-
ið skæðari þar en annars stað-
ar.
Wickramasinghe segir að æ
fleira bendi til þess að líf hafi
borist til jarðar utan úr geimn-
um. Hún bendir á að fundist
hafi bakteríur er legið hafi í
dvala í 250 milljón ár og þær
geti því lifað af geimferðir.