Morgunblaðið - 07.12.2000, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000 39
. Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Bragi Þórðarson
dýrt verk og metnaðarfullt. Á seinni
árum höfum við síðan bætt útgáfu
hljóðbóka við okkur sem er vaxandi
útgáfumáti hjá okkur.“
Þetta er nú gullið mitt, Bragi
Þið eruð í þessu tvö, þú og konan
þín?
„Já við erum tvö og höfum aldrei
haft neitt starfsfólk okkur til aðstoð-
ar. Á álagstímum koma börnin okkur
til aðstoðar, en þau eru í annarri
vinnu en hjálpa til þegar mikið er um
að vera í útgáfunni."
Hefur staða bókaútgefandans
ekki breyst mikið á þessum Qörutiu
árum sem liðin eru frá stofnun
Hörpuútgáfunnar?
„Þetta er mikil breyting sem átt
hefur sér stað á þessum árum. Á
fyrstu árunum kom ég til eins vinar
míns bókaútgefanda sem nú er lát-
inn. Ég gekk um lagerinn hjá hon-
um, og þar voru bókafjöll, og segi við
hann: „Heldur þú að þetta seljist
nokkurn tíma?“ Hann strauk bóka-
staflana svona vel og notalega og
sagði: „Þetta er nú gullið mitt,
Bragi.“ Á þeim tíma voiu bækur í
rauninni góð fjárfesting, meira að
segja á árabili hækkuðu bækur í
verði með verðbólgunni, þannig að
þær voru góð fjárfesting! Margir
áttu vegleg bókasöfn og þetta var
eiginlega þeirra trygging til framtíð-
ar, ef illa færi þá gátu þeir alltaf selt
bækumar sínar. Þetta hefur breyst
mikið núna, alveg gífurlega mildð.
Núna getum við ekki horft á bókina
sem neina sérstaka fjárfestingu. Ég
lít á fjárfestingu í bókaútgáfu sem
fjárfestingu í hugmyndum og hug-
viti, en ekki í sjálfum lagemum. Við
eigum til dæmis ekki mikinn bóka-
lager. Utgáfan er fjömtíu ára og við
emm búin að gefa út rúmlega fjögur
hundmð titla og að gamni má segja
frá því að húsnæðið sem við erum
með lagerinn í hér á Akranesi er
tæpir tjömtíu fermetrar. Það er ekki
meiri lager sem við eigum. Við emm
ekki með nein fjöll af óseldum bók-
um, lagerinn er meira og minna
þessar sígildu bækur sem sejjast all-
an ársins hring.“
En góð bók er gulli betri, eða
hvað?
„Ég held að bókin eigi góða fram-
tíð, það er mikil gróska í bókaútgáf-
unni í dag. Það hefur aldrei komið út
jafnmikið af bókum og núna og það
em margar áhugaverðar bækur á
markaðnum. Umfjöllun um bækur
er góð og verðið er lágt, því þær em
seldar á tilboðum, svoleiðis að það
kemur kaupendunum til góða. Ég sé
fyrir mér að bóksala geti orðið góð
nú í desember. Við höfum hins vegar
á þessum tímamótum, 40 ára afrnæl-
inu, breytt töluvert um áherslur í út-
gáfustarfsemi okkar. Áherslubreyt-
ingin felst í því að við höfum dregið
saman útgáftma fyrir jólamarkaðinn
og leggjum meiri áherslu á heilsárs-
bækumar. Menn geta dregið álykt-
anfraf því!“
Ef við drögum þetta saman má þá
orða það þannig að prentverkið og
bókin sjálf hafi verið ástríða þín allt
frá æskudögum?
„Já, og er enn. Ég myndi kannski
vilja bæta við að þetta ferli frá því að
hugmynd kviknar að bók og þar til
hún kemur í hendur þínar er ákaf-
lega spennandi. Stundum fáum við
hugmynd að bók og ráðum einhvern
til að skrifa hana, ljósmyndara ef því
er tii að dreifa, og einhvem sem ræð-
ur útliti og hönnun. Síðan verður
bókin til og það er mjög stór stund
og áhrifamikil þegar maður tekur
fyrsta eintakið í prentsmiðjunni og
athugar hvernig til hefur tekist. Það
er alltaf jafnáhrifamikil stund að
opna nýja bók, handleika hana og at-
huga hvort allt hefur gengið sem lagt
var upp með. Hvort útlit og umbún-
aður sé eins og til stóð og ef það hef-
ur tekist þá er það geysilega notaleg
tilfinning. Þá líður manni ákaflega
vel. Ég upplifi þetta mjög oft. Þetta
er kannski stærsta augnablikið á
ferli hverrar bókar. Þegar maður sér
að allir þræðimir hafa ofist saman
svo úr verður bók, það er stórkost-
legt! Síðan kemur hinn þátturinn
sem er að selja bókina og það er allt
annar hlutur. Það er auðvitað
markmið að selja mikið og vel en það
er ekki aðalmarkmiðið. Ef bókin er
ekki í lagi er ekkert gaman að selja
hana. Hún verður að vera í lagi og
veita þér ánægju. Núna er ég eigin-
lega farinn að tala á tilfmningalegum
nótum eins og þú heyrir."
Af öllu þessu sem þú segir má
greina að Hörpuútgáfan hafi veitt
ykkur hjónum ófáar ánægjustundfr
á þessum fjörutíu árum sem liðin eru
frá stofnun hennar?
„Já, við höfum verið ákaflega lán-
söm með útgáfuna. Við höíum haft
góða afkomu, okkur hefur gengið vel
og við látum hvergi deigan síga.“
„Ég hef tekið viðtöl við þær og
séð hvaða aðstæður það eru sem
hafa gert Island að girnilegum
kosti. Mun betri en að leggja fyrir
sig einhvers konar vændi. Þótt þær
hafi verið fátækar búa þær yfir of
mikilli sjálfsvirðingu til þess. En það
hentar okkur af einhverjum ástæð-
um að líta svo á að þær eigi allar
sama bakgrunn. Og það er kannski
ekki skrítið. Það þarf ekki annað en
að fara á Netið, á spjallrásir um
kynlíf, til að sjá karla sem hafa verið
í Taflandi skrifast á og mikla sig af
því að konurnar sem þeir hafa verið
að gamna sér með þar hafi litið út
fyrir að vera tólf ára. Mér finnst það
segja ógeðfellda hluti um þá karl-
menn sem eru að stæra sig af þessu
en þær konur sem eiga enga mögu-
leika í sínu landi - því eins og við
vitum bitnar kynjamisréttið alltaf
mest á þeim konum sem eru fátæk-
ar - eiga jaftivel ekki í sig og á.
En þær tælensku konur sem ég
talaði við hér voru bæði þakklátar
og ánægðar með það sem þær höfðu
hér - jafnvel hluti sem við íslenskar
konur kynnum ekki að meta. Engu
að síður voru þetta nyög vandaðar
manneskjur sem kunna að spjara
sig.“
Síðan er vinkona Napassorn, Sinj-
ai, sem á allt annan bakgrunn og er
vægast sagt býsna seig. Þær eru æði
ólíkar.
„Já, það er af ásettu ráði. Hjóna-
band hennar og Bjössa gengur samt
mjög vel. Mig langaði að stilla upp
andstæðum til að draga fram það
sem skiptir máli í samskiptum Guð-
mundar og Napassorn og líka til að
sýna fram á að þessi hjónabönd geta
gengið mjög vel.“
Þú ert líka í og með að afhjúpa
fordóma sem íslendingar gerast oft
sekir um, ekki satt? „Jú, ég er
hlynnt því að fá sem kryddaðast
þjóðfélag. Mér finnst oft illa farið
með nýbúa hér á Islandi. Það er til
dæmis alveg dæmigert að hámennt-
aður skurðlæknir fái bara að skera
steinbít hérna, vegna þess að hann
er með svarta húð. Þeir einstakling-
ar sem flytja hingað eru oft hæfi-
leikaríkt fólk sem flytur alls konar
skemmtilegheit með sér en við setj-
um þá alla undir sama hatt og miss-
um af því sem þeir hafa að gefa.“ Þú
ert þá ekki hrifin af hugmyndinni
um hreina islenska stofninn?
„Nei, við eigum á hættu að verða
eins og Golden Retriever-hundar
sem eru orðnir svo hreinræktaðir
að þeir eru með skakkan hrygg og
eymaexem og þurfa að vera með
kraga um hálsinn. Þeir eiga líka til
einkennilegar geðsveiflur sem stafa
af hreinrækt. Eg held að bastarð-
arnir séu bestir." Hvernig myndir
þú sjálf skilgreina þema bókarinn-
ar?
„Rétt eins og í fyrri bókinni
minni, Stjómlausri lukku, snýst
þemað um unga stúlku í leit að betri
tilvem."
Þau voru bæði syfjuð og pakk-
södd svo ekkert varð af kvöld-
kaffinu. Napassom fór bein-
ustu leið inná baðherbergi til að þvo
sér en Guðmundur beið í stofunni á
meðan og tottaði pípuna. Hann horfði
um stund á myndina sem var merkt
Stórval og því næst hvörfluðu augun
að Búddaaltarinu. Kertið var hálf-
brunnið og reykelsisaskan lá á dúkn-
um en Búdda hafði hvorki smakkað
vott né þurrt því vatnið lá óhreyft í
glasinu og vínberin voru á sínum
stað. Guðmundur flissaði, saug reyk-
inn djúpt ofan í sig og velti svo græn-
um glerfroskinum fyrir sér; þvflík
sérviska að dröslast með þennan
ljóta hlut á milli heimsálfa - en konur
eru duttlungafullar og kannski þótti
henni vænt um styttuna. Hann geisp-
aði syfjaður og ætlaði að loka augun-
um þegar hann sá skyndilega fíl í
einu homi stofunnar. Guðmundur
gapti hlessa og virti fílinn fyrir sér.
Þetta var metershá tréstytta, dökk-
brún og glansandi, og ansi fyrirferð-
armikil. Napassom hlaut að hafa
komið með fflinn nýlega, annars hefði
hann tekið eftir honum. Guðmundur
reis forviða á fætur, gekk að stytt-
unni og brá enn meira þegar hann sá
verðmiðann á rana fflsins. Gripurinn
hafði kostað 35.000 krónur. Hvemig
datt hagsýnni stúlkunni í hug að
kaupa sér ffl á 35.000 krónur? Það var
ofar hans skilningi.
Hún hafði fengið útborgað um
mánaðamótin og hann hélt að hún
hefði sett peningana sína inn á ör-
ugga bankabók og borgað inn á
skuldina fyrir ferðalaginu til íslands
- en hann hafði ekki órað fyrir að hún
myndi kaupa ffl.
Úr Annað líf
Gleðileg
Jól
Á leið til
jötunnar
BÆKUR
Barna - og ungl-
ingabók
FJÓRTÁNJÓLASÖGUR
Þýðandi: Sr. Hreinn S. Hákonarson.
Umbrot: Skerpla ehf. Prentun: Gut-
enberg ehf. Utgefandi: Skálholtsút-
gáfan 2000.
DENNIS Pepper valdi þessar sög-
ur úr The Oxford Book of Christmas
Stories. Látlausar og snjallar era þær
flestar, sumai- mjög fallegar, t.d. Jóla-
gjöfin; Týndi drengurinn; Nóg af
kryddkökum.
í sögunum takast á Ijós og myrkur,
- og ljósið sigrar. í þeim er græðgi
lýst; undrun snáða, er það rennur upp
fyrir honum, að jólasveinninn er leik-
inn af manni; sagt frá komu Krists til
jarðar, reynt að skilja hughrif Maríu;
sagt frá heilaþvegnum böðlum; sagt
frá, hvemig kærleikurinn sigrar ön-
ugheit; sagt frá hungri þess er í gulla-
hrúgunni situr og mörgu, mörgu
fleiru.
Eins og bent er á í eftirmála henta
þessar sögur vel sem kveikja um-
ræðna milli bams/unglings og fullorð-
ins. Æskulýðsleiðtogar kirkjunnar
ættu því að veita þessari bók athygli,
hún gæti orðið þeim hjálp í starfi. Nú,
foreldrar sitjandi á rúmstokki bams,
er spennt bíður jóla, ættu líka að
renna augum til bókarinnar.
Þýðing er oftast þokkaleg, að vísu
þreytu merkt á stundum. Dæmi: ...
spennti hann sleða fyrir hestana ...
(9);... dálítið uppburðarlítil inni í mér.
(27); Hann gretti sig ekki í andliti ...
(83); Bamið sem fæðist reynist vera
drengur en hann er dáinn þegar í
heiminn er komið. (102). Mér var ung-
um kennt, að slík vera væri andvana
fædd. Mál er að linni.
Prentverk er vel unnið. Eg hefi
aldrei séð bókarkápu nýtta á þann
hátt, sem hér er gert. Víst er þetta
nýtni, en sleppt hefði eg eftirmálan-
um, - birt ritningarorðin þar.
Smekksatriði. En svona er að verða
gamall, nýjungum er mætt með tor-
tryggni. Góð bók.
Sig. Haukur
JAKKAFATADAGAR
50—80% læsra ver®
á merkjavöru og tískufatnaði
Veródæmi áður nú
(Ný sending)
Obvius jakkaföt 29r@O0 9.500
Henry skyrtur 2^990" 990
Hudson spariskór Sr9eo 1.900
Studio dragtir 14r460 6.600
Trend hælaskór s^ee- 500
Zinda stígvél L5c90D 2.900
Everlast úlpur &©oo- 1.900
Fila skór &^ecr 1.900
Levis buxur &9SCT 3.500
DKNY sportskór 2.900
OUTLET 10
+++merki fyrir minna+++
(Faxafeni 10, s. 533 1710 i
Gildir sem 10% aukaafsl. til 16/12 d
Opið:
Mánudaga - fimtudaga 11.00-18.00
Föstudaga 11.00-19.00 Laugardaga 11.00-17.00
Opiö sunnudag 13.00-17.00