Morgunblaðið - 07.12.2000, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000 43
Farsinn á tímum blygðunarleysisins
LEIKLIST
L e i k f é I a f>
Ólafsfjarðar
EF VÆRI ÉG
GULLFISKUR
Höfundur: Árni Ibsen. Leikstjóri:
Þröstur Guðbjartsson. Leikendur:
Guðni Harðarson, Helgi Reynir
Árnason, Fjóla Bláfeld Stefánsdótt-
ir, Sigríður Ingimundardóttir,
Birkir Guðnason, Hafdís Kristjáns-
dóttir, Kolbeinn Arnbjörnsson,
Auður Ósk Rögnvaldsdóttir, Halla
Jóhannesdóttir og Valgerður
Stefánsdóttir. Sunnudaginn 3.
desember 2000.
EF VÆRI ég gullfiskur er ákaf-
lega metnaðarfull tilraun til að skoða
íslenska þjóðarsál í spéspegli farsa-
formsins. Að mörgu leyti ættum við
að vera nokkuð gott viðfang íyrir
slíka athugun. Græðgin og yfirborðs-
mennskan, þörfin íyrir að sýnast ann-
að en við erum, taumleysið í leitinni
að skyndisvölun hvatanna. Og öllu
þessu gerir verkið ágæt skil. Hins
vegar virðast vera brotalamir í því
hvemig farsinn er smíðaður sem
valda því að til að viðhalda spennunni
í fléttunni þarf fyrirgang og læti sem
tæpast er innistæða fyrir hjá persón-
unum. I minningunni var frumflutn-
ingur Leikfélags Reykjavíkur á verk-
inu þessu marki brenndur og svo er
líka með sýningu Leikfélags Ólafs-
fjarðar nú.
Báðar ná þær að skemmta áhorf-
endum sínum, þótt áreynslan sé oft-
ast óþarflega sýnileg.
I farsa þarf einhver, og helst fleiri
Atriði úr leiksýningu Leikfélags Ólafsfjarðar, Ef væri ég gullfiskur.
en einn, að hafa eitthvað að fela sem
er svo þýðingarmikið að ekki komist
upp að blekkingamar taka á sig æ
fráleitari myndir sem á endanum em
talsvert verri en það sem þær upp-
runalega áttu að dylja. Einn höfiið-
vandinn í Gullfiskunum er að sú pers-
óna sem geymir stærsta
leyndarmálið, ættfaðirinn Pétur sem
er á leið úr landi með illa fengið fé, er
nánast stikkfrí í hamaganginum,
meðan sonur hans, hinn seinheppni
Brynjólfur, fer hamfómm við að fela
og leyna hlutum sem tæpast er trú-
ir á Helga Reyni Ámasyni í hlutverki
Brynjólfs, hins taugaveiklaða og kúg-
aða kennara sem hættir sér út í fyrstu
framhjáhaldstilraun sína með fyrir-
sjáanlegum farsaafleiðingum. Helgi
gerir persónuna á köflum nánast viti
sínu fjær og er iðulega kostulegur
þegar mest gengur á. Hann nær þó
ekki að yfirvinna íyrrgreinda brota-
löm í persónunni, enda varla hægt að
ætlast til þess. Fjóla Bláfeld Stefáns-
dóttir var innlifuð og óhamin sem
kynlífsfíkillinn og tálkvendið Alda,
Halla Jóhannesdóttir var hæfileg
blanda af gribbu og klisjulegum ný-
aldarkuklara og Valgerður Stefáns-
dóttir var algerlega sannfærandi sem
einfeldningurinn Halldóra, full af
innistæðulausu sjálfsöryggi.
Þröstur Guðbjartsson hefur að
mestu leyti náð að halda dampi í sýn-
ingunni. Stundum verður samt hama-
gangurinn til þess að athygli áhorf-
enda beinist annað en þangað sem
hún á erindi. Of oft er of margt að ger-
ast í einu, svo mikilvæg augnablik
fara forgörðum.
Ef væri ég gullfiskur er kraftmikil
sýning og skemmtigildið er fyrir
hendi. Það verður gaman að fylgjast
með hvemig Leikfélagi Ólafsfjarðar
spilast úr þeim kröftum sem óslípaðir
stíga á svið núna. Næsta ár fagnar fé-
lagið íjörutíu ára afmæli en við slík
tækifæri er gjaman ráðist í stórvirki.
Það verður spennandi að sjá.
Þorgeir Tryggvason
verðugt að skipti hann stóm máli.
Vandræðagangur Brynjólfs verður
tæpast hlægilegur, þar sem hann er
lítt trúverðugur.
Ef marka má leikskrá þá er leik-
hópur Leikfélags Ólafsfjarðar að
mestu skipaður lítt reyndu fólki að
þessu sinni. Þeim er því nokkur vandi
á höndum að halda sýningunni og
skemmtanagildinu á floti. Það tekst
þó bærilega, enda leikið af miklum
krafti og á þeim hraða sem hæfir
verkinu, auk þess sem ýmsir leikar-
anna eiga dágóða spretti. Mikið mæð-
BIVKUI 316i
Compocl
Nýskr. 11.2000, 1600cc vél,
3 dyra, sjálfskiptur, vínrauður,
L ekinn 1 þ, spoiler, ABS,
^^spólvörn o.m.fl.
^KVerð 1.890 þ.
Grjóthólsi 1
Sími 575 1230/00
Toppar 989-1.495 kr
Buxur 2.495-2.995 kr
Kióll 2.995 kr
HAGKAUP
Meira úrval - betrikaup