Morgunblaðið - 07.12.2000, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000 59,g
Eru kjarakröfur
framhaldsskóla-
kennara sanngjarn-
ar eða óábyrgar?
SEM kennara við
verkfræðideild Há-
skóla Islands er mér
annt um að sem flestir
nemendur, jafnt stúlk-
ur sem drengir, hefji
nám í verkfræði og
raunvísindum og að
þeir komi að náminu
með þann undirbúning
og þroska sem geri
þeim kleift að ráða við
slíkt krefjandi nám. Yf-
irstandandi kjaradeila
framhaldsskólakenn-
ara við ríkið verður
mér tilefni nokkun-a
hugleiðinga um þennan
undirbúning nemenda og kjör þeirra
kennara sem er ætlað að veita hann.
Eg einskorða mig að mestu við
stærðfræði, þar eð hún stendur mér
næst, en orð mín ber þó að túlka svo
að hliðstæð umfjöllun og ályktanir
eigi við um kennara í öðrum greinum
Hvað varðar stærðfræðiiegan
undirbúning nemenda minna fmnst
mér skipta máli að þeir hafi fengið
nokki-a innsýn í eðli stærðfræðilegra
skilgi-eininga og formlegrai- rök-
semdarfærslu, að þeii- átti sig á
gagnsemi stærðfræðilegs táknmáls
en hafi jafnframt öðlast reynslu af að
setja fram stærðfræðilegan rök-
stuðning í samfelldu skiljanlegu
máli, að þeir hafi vanist því að nota
stærðfræðina við að leysa verkefni
úr öðrum raungreinum eða verkefni
sem upp koma í daglegu lífi og að
þeir hafi kynnst því hvemig tölvur
nýtast við lausn margvíslegra stærð-
fræðilegra verkefna og hvernig
stærðfræðin nýtist við að gera ýmsa
tölvuvinnslu markvissari. Það skiptir
mig mun minna máli hvaða tiltekn-
um þekkingaratriðum nemendurnir
kunni skil á. Ég bíð þess þannig ekki
með sérstakri eftirvæntingu að fá
inri í háskólann nemendur sem hafa
farið í gegnum framhaldskólann með
tveggja ára hraðnámi því að ég tel
hættu á að þar verði of mikil áhersla
lögð á að nemendur innbyrði sem
flest þekkingaratriði á sem
skemmstum tíma.
Hvaða menntun og hæfileika þarf
sá kennari að hafa sem á að geta
veitt nemendum slíkan undirbúning?
Hann þarf að hafa mikla fagmenntun
til þess að geta óhikað nálgast sama
viðfangsefni frá mörgum hliðum,
rökrætt við nemendur sína og fylgt
eftir þeim hugmyndum sem þeir
kunna að hafa um lausn verkefna þó
þau fylgi ekki forskrift kennslubók-
arinnar. Hann þarf að hafa áhuga á
að laða fram það besta hjá hverjum
nemanda, fylgjast með þeim mögu-
leikum sem felast í aukinni tölvu-
notkun, nýrri upplýsingatækni og að
nýta sér gagnlegar niðurstöður sem
sívaxandi rannsóknir í stærðfræði-
menntun eru að leiða í ljós. Hann
þarf að hafa metnað fyrir hönd sjálfs
sín, nemenda sinna, skólans og
fagsviðsins.
I framhaldi af þessu leiði ég hug-
ann að því hvers konar kjör skóla-
stjóri þarf að geta boðið slíkum
starfskrafti, ef nokkur von á að vera
til þess að fá hann til starfa. Ég lít þá
á það sem hluta af heilbrigðum
metnaði og sjálfsvirðingu starfs-
manns að hann sætti sig ekki við
annað en að krefjandi og vel unninn
störf séu metin að að verðleikum.
Mitt mat er að byrjunargrunnlaun
verði að nema a.m.k. 180 þúsundum
króna og að skólastjóri þurfi síðan að
hafa umtalsvert svigrúm til þess að
geta hækkað þessi laun upp í a.m.k.
250 þúsundir króna hjá þeim kenn-
ara sem reynist hinu vandasami
starfi vaxinn, helgar skólanum um
langan tíma starfskrafta sína og nær
árangri í starfi sem verður nemend-
um hans og skólanum til framdrátt-
ar. En kjör eru ekki aðeins fólgin í
launum heldur líka
starfsaðstöðu. Ég er
þannig þeirrar skoðun-
ar að það sé óraunhæft
að vera með framan-
greindar væntingar til
framhaldsskólakennar-
ans ef honum er ætlað
að kenna mikið yfir 20
kennslustundir á viku
og vera með bekki sem
eru með mikið fleiri en
20 nemendum.
Ég fæ ekki betur séð
en að kjarakröfur
kennara í yfirstandandi
verkfalh séu vel innan
ofangreinds ramma. Ef
ég leyfi mér að horfa fram hjá for-
sögu deilunnar er ég því afdráttar-
laust þeirrar skoðunar að þær séu
bæði eðlilegar og sanngjarnar. Ég á
sér í lagi erfitt með að sjá fyrir mér
þann forstjóra ríkisstofnunar eða
einkafyrirtækis sem er í dag að leita
að starfsmanni með hliðstæða
menntun og færni en hafni því alfar-
ið að ræða við umsækjanda sem set-
ur fram slíkar kjaraóskir á þeirri for-
sendu að þær séu órækur vitnis-
bm’ður um óraunsæi hans og
ábyrgðarieysi.
Það er svo annar handleggur
hvort þeir sem mestu ráða um launa-
þróun í landinu, og þar koma vissu-
lega fleiri til sögunnar en ráðherrar
ríkisstjórnarinnar, meti það svo að
ríkið hafi ekki efni á því greiða fram-
Kennarar
Hitt er svo annað mál,
segir Sven Þ. Sigurðs-
son, hvort ríkið telji sig
hafa efni á þvi að greiða
framhaldsskólakenn-
urum slík laun.
haldsskólakennurum slík laun. En
þá verða bæði þeir og ég að horfast í
augu við eftirfarandi framtíðasýn.
Allt of fáir ungir hæfir kennarar
munu fást til starfa og margir af best
menntuðu kennurunum sem fyrir
eru munu hverfa til annarra starfa
enda úr ýmsu að velja í upplýsinga:
og þekkingarsamfélagi nútímans. í
kjölfarið mun þeim smátt og smátt
fara fækkandi sem treysta sér til að
takast á við nám í verkfræði og raun-
vísindum eða annað krefjandi nám á
háskólastigi. Nýsköpun í atvinnu-
vegum þjóðarinnar og aukning í
þjóðarframleiðslu verði minni en efni
standa til og fjármálaráðherrar
framtíðar munu þá enn sjá sig knúna
til þess að halda því fram að það sé
uppi í skýjunum að ríkið geti borgað
framhaldsskólakennurunt sam-
keppnisfær laun.
Höfundur er reiknifræðingur og
prófessor við tölvunarfræðiskor
Háskóla íslands.
Sven Þ. Sigurðsson
Þekkingarbókhald
T
Alheimsvæðing
markaða og viðskipta-
vina, nýsköpun, upp-
lýsingatækni og rafræn
viðskipti eru hugtök
sem eru einkennandi í
umræðu um hið nýja
hagkerfi. Óáþreifanleg-
ar eignir svo sem þekk-
ing, nýsköpun, við-
skiptaverðmæti og
ferlar leika lykilhlut-
verk í framleiðslu og
þjónustu fyrirtækja.
Leiðandi fyrirtæki eru
farin að gera sér grein
fyrir mikilvægi þess að
skrá óáþreifanlegar
eignir og færa í bók-
haldið. Engar skýrar reglur eru hins
vegar til um hvernig það er gert og
þar er stórt verkefni sem tekist verð-
ur á við á næstunni.
Eiga fyrirtæki að mæla
þekkingu?
Grundvallarástæða þess að fyrir-
tæki mæla þekkingu er sú að óefnis-
legar eignir fremur en áþreifanlegar
eignir skapa meiri verðmæti. Sam-
kvæmt fyrrum ritara OECD Jean-
Claude Paye eru óefnislegar eignir
gi’undvöllur efnahagslegrar velsæld-
ar hveirar þjóðar. Skrásetning á
þekkingu fyrirtækja kom fram í
fyrsta skipti í skýrslufomi kringum
1990. Síðan þá hafa fyrirtæki eins og
Skandia í Svíþjóð og Ramboll í Dan-
mörk unnið með skrásetningu á
þekkingarverðmætum.
Samnorrænt verkefni Nordika
sem hefur það markmið að leggja
mat á óefnislegar eignir í fyrirtækj-
um hefur verið sett af stað hér á
landi. Nú þegar hafa fjögur fyrirtæki
hér á landi: Islandsbanki-FBA, E JS,
Miðheimar og Sjóvá-Almennar lagt
mat á þekkingarfjármagn og eru að
hefja skýrslugerð á óefnislegum
eignum sem liggja í fyrirtækinu.
Fróðlegt verður að fylgjast með
frumkvöðlavinnu þessara fyrirtækja
hér á landi.
Vinna með óefnislegar eignii’ er
viðamikið verkefni því ekki er til við-
urkennd aðferð við reikningsskil eða
meginreglur í bókhaldi sem fyrir-
tæki geta stuðst við. En jafnframt er
það orðið sérhverju fyrirtæki mikil-
vægt að geta sýnt fram á fyrir hvað
þau standa og hvemig þau þróa og
hagnýta þekkingu. Erfitt er fyrir
fjárfesta að bera saman óefnislegar
eignir þegar mat á
þekkingarverðmætum
eru ekki unnin út frá
ákveðnum reglum eða
viðmiðunum. Því er að-
kallandi verkefni að
staðla mæliaðferð sem
notuð verður við mat á
óefnislegum eignum.
Alþjóðastofnanir
eins og OECD hafa
bent á þörf þess að
samræma aðferðir við
mat á óefnislegum
eignum þannig að hægt
sé að bera saman hlið-
stæð fyrirtæki á þessu
sviði. Því hleypti Nor-
ræni iðnaðarsjóðurinn
af stað samnorrænu verkefni, Nord-
ika, sem hefur það markmið að þróa
aðferð við mat á þekkingarverðmæt-
um í samstarfi við fyrirtæki á Norð-
urlöndum. Nordika-verkefnið hefur
það markmið að byggja brú á milli
verkefna á Norðurlöndum sem þeg-
Rekstur
Þekkingarbókhald,
segir Anna María
Pjetursddttir, er
reikningshald sem
skapar verðmæti.
ar eru í gangi. Verkefninu á að ljúka
árið 2001 með útgáfu á upplýsingum
um hvernig eigi að meðhöndla og
leggja mat á óefnislegar eignir.
Þannig næst samræming á því
hvemig eigi að mæla þessar eignir
þannig að sambærileg fyrirtæki geti
borið sig saman víðs vegar í heimin-
um.
Verkefnið hefur fengið mikla at-
hygli. Flest þeirra fyrirtækja sem
taka þátt eru undrandi yfir þeirri at-
hygli sem þau hafa fengið. Þessi fyr-
irtæki hafa verið beðin um að taka
þátt í ýmsum ráðstefnum og kynna
niðurstöður sínar.
Þróun þekkingarbókhalds
Bilið millli markaðsverðs og bók-
færðs verðs fer vaxandi í fyrirtækj-
um og í dag er munurinn talinn vera
um tífaldur í þekkingarfyrirtækjum.
Dæmi um slíkt fyrirtæki er Micro-
soft þar sem markaðsverðmæti er 14
Anna María
Pjetursdóttir
sinnum hærrra en bókfært verð.
Þennan mismun má rekja til óefnis-
legra eigna sem eru ekki taldar fram
til eigna í hefðbtmdnu bókhaldi.
Þekkingarbókhald er reikningshald
sem skapar verðmæti, því að með
mati á óefnislegum eignum geta fyr-
irtæki stýrt og þróað þekkingarfjár-
magn sitt sem samanstendur af get-
unni og hæfninni til að tileinka og
hagnýta sér nýja þekkingu fljótt.
Mat á þekkingarverðmætum
Verkefni Nordika er að finna að- ,
ferð við að mæla þekkingu og færa til
bókhalds þar sem engin viðurkennd
aðferð er til. Mikið hefur verið ritað
og rætt um hvemig sé best staðið að
því að mæla þekkingu. Sumar að-
ferðimar leggja áherslu á eignir,
aðrar á tölur og enn aðrar á hvemig
sé hægt að brúa bilið milli nútíðar og
framtíðai'. Þetta er ein ástæða þess
að fram hafa komið mörg heiti yfir
sama hugtakið svo sem þekkingar-
fjármagn, óefnislegar eignir og
óáþreifanlegar eignir. Þetta mis-
ræmi á notkun heita yftr sama hug-
takið má rekja til mæliaðferða og
markmiðinu með mati.
Aðferðir við að mæla óefnislegar
eignir og færa til bókhalds em ekki
fullmótaðar hvorki fræðilega né í'fc
framkvæmd. Þó er ekki langt að bíða
eftir að viðurkennd aðferð við að
mæla þekkingarfjármagn verði tek-
in í notkun og mun rödd íslands taka
þátt í því þróunarstarfi með þátttöku
fjögurra fyrirtækja: íslandsbanka-
FBA, Miðheima, EJS og Sjóvár-Al-
mennra. Ráðstefna um mat á þekk-
ingarverðmætum verður haldin á
Grand Hótel 7. desember nk. þar
sem fulltrúar þessara fyrirtækja
munu m.a. miðla af reynslu sinni.
Höfundur er ráðgjnfi Jyá Pricewat-
erhouseCoopers og verkefnisstjóri
Nordika ísland.
Nettoic^
ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR
FATASKAPAR
á fínu verfti
ALLTAÐ 30% AFSLÁTTUR
Friform
| HÁTÚNI 6A (í húsn. Fðnix) S(MI: 552 4420
ÖR & DJÁSN • GAUÐATO8G 7 - GARÐABÆÍ • SÍMI 565 9955 • FAX 565 9977
GLÆSILEG SKARTGRIPA- OG GJAFAVÖRtJVERSI.UN
Á GARÐATORGI 7, VIÐ „ KLUKKUTURNINN “
REVNIR HEIDE
llRSMimiR
kæli- og frystiskápar
Dönsk gæðavara
— cinstök innrétting,
níösterk og rúmgóð
— glerhillur í kæliskápum
— fást í hvítu, úr stáli
cða stálklæddir
Gerið verðsamanburð!
/FQniX
HÁTÚNI 6A REYKJAVÍK SlMI 552 4420
KYNNINGAR-
TILB0Ð
á stimpilpressum
10-25%
afsláttur
f nokkra
daga
Akralind 1,200 Kópavogi,
sími 564 3000