Morgunblaðið - 07.12.2000, Blaðsíða 66
66 FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000
->----------------------------
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Samþykkja foreldrar að skóla-
kerfinu sé látið blæða út?
ÞAÐ hefur vakið at-
hygli hve lítið hefur
heyrst í foreldrum
vegna kennaraverk-
fallsins. Ég hélt að þeir
mætu menntun barna
sinna meira en svo, að
þeir tækju því þegjandi
ef skólagöngu þeirra
væri spillt. Kannski
telja foreldrar að þeir
geti lítil áhrif haft á
lausn deilunnar. Þeir
verða þá að átta sig á
því að deilan snýst ekki
bara um krónur í vasa
kennara, heldur er
skólakerfið nú á kross-
götum. Æ erfiðara er
að manna skólana og nýliðun í kenn-
arahópi er mjög takmörkuð. Ungt
fólk sem gerist kennarar forðar sér
yfirleitt fljótt til starfa sem gefa
betri laun fyrir styttri vinnudag og
minna álag. Þeir sem eftir sitja
reyna að bjarga málum og kenna
meira en þeir vilja og ráða við með
góðu móti. Foreldrar þurfa því nú
**sem aldrei fyrr að láta í sér heyra,
því varla kæra þeir sig um að fram-
haldsskólanum blæði út. Verkfallið
núna er tilraun til að ijúfa þennan
vitahring og hefja skólastarf aftur til
þeirrar virðingar sem því ber.
Frammistaða ríkisvaldsins er
ótrúleg og lýsir skeytingarleysi um
framtíð framhaldsskólans. í rúmt ár
hafa samtök kennara reynt að fá
umræðu um breytta vinnutilhögun
og launakerfi. Samninganefnd ríkis-
ins virðist umboðslaus, aðeins
mættu 1-2 fulltrúar hennar á fundi
íangt fram á haust og viðræðuáætl-
un samkvæmt lögum var þannig
sniðgengin. Því hlaut deilan að enda
með verkfalli. Samt breytir ríkið lít-
ið háttum sínum við samningaborð-
ið, enda heldur fjármálaráðherra
uppi síbyljuáróðri um að ekkert sé
hægt að gera því kennarar krefjist
70% launahækkunar. Þetta gerir
hann þrátt fyrir að hann hafi viður-
kennt að það sé staðreynd að kenn-
arar hafi dregist rúm 30% aftur úr
viðmiðunarstéttum sínum í grunn-
launum. Þau met vill hann ekki jafna
og býður leiðréttingu sem aðeins er
Friðrik Dagur
Arnarson
brot af þessum mun.
Forsætisráðherra
lýsti því yfir að kröfur
kennara séu óhóflegar
og ekki í takt við launa-
þróun í landinu. Þetta
gerði hann þrátt fyrir
að hann vissi mætavel
að meginkrafan hjá
kennurum er að laun
þeirra verði leiðrétt til
samræmis við launa-
þróun sem þegar er
staðreynd meðal ann-
arra háskólamennt-
aðra ríkisstarfsmanna.
Menntamálaráð-
herra harðneitar að
liðka fyrir lausn deil-
unnar. Hann boðar aðra og nýja
launastefnu gagnvart kennurum en
öðrum háskólamenntuðum ríkis-
starfsmönnum. Ríkjandi launastefna
er í raun staðfest í fjárlögum ríkisins
og því tæpast hægt að segja að það
sé óeðlilegt að kennarar fái að njóta
hennar líka. Það þykir ráðherranum
samt og hann vill láta kennara
standa skör neðar en aðra. Með því
setur hann sig í fararbrodd þeirra
sem hindra vilja vöxt og viðgang
framhaldsskólans.
Sigríður Anna Þórðardóttir, for-
maður menntamálanefndar Alþing-
is, telur kjarna málsins þann að
meðaltalsheildarlaun kennara séu
ekki nema 10% lægri en samanburð-
arhópanna. Skiptir þar litlu að
þeirra er aflað með óhóflegri yfir-
vinnu. Þar með lítur hún alveg fram-
hjá þeirri staðreynd, að þrátt fyrir
öll meðaltöl hefur ekki tekist að
halda kennurum í starfi, hvað þá að
átt hafi sér stað eðlileg endurnýjun
stéttarinnar með ungu fólki.
Kennarastéttin er því í raun að
deyja út, í bókstaflegri merkingu.
Flestir telja menntun grundvöll
framfara og nýsköpunar og góða
menntun því mikilvæga fyrir fram-
tíð þjóða. Að öllu samanlögðu hljóta
menn því að spyrja hvort mennta-
stefna ríkisstjómarinnar miðist við
það eitt að gefa hvergi eftir gagn-
vart kröfum launþega á hendur rík-
inu, án tillits til þjóðhagslegs ávinn-
ings þess að þær næðu fram að
Armúla 1, sími 588 2030 - fax 588 2033
2ja herb.
VATNSSTIGUR - MIÐBÆR
Vorum aö fá í sölu nýuupgeröa íbúö á
Laugavegi 33b (stendur við Vatnsstíg). Ný
eldhúsinnrétting meö keramik-helluboröi,
fataskápar, ný tæki á baði, rúmgott svefn-
herbergi, baðherbergi með sturtuklefa.
Laus. V. 7,7 m. 3966
LAUGAVEGUR - EINSTAKL-
INGSÍBÚÐ
Til sölu ósamþykkt einstaklingslbúa, 40 fm,
innarlega við Laugaveg, I litlu fjölbýlishúsi.
fbúðin er til afhendingar strax. V. 4,9 m. 3985
LAUGAVEGUR
Lítll tveggja herbergja íbúð á tveimur hæðum
innartega við Laugaveg. fbúðin er ósamþykkt.
Til afhendingar strax. V. 5,4 m. 3986
HVALEYRARHOLT - HAFNAR-
FIRÐI
Rúmgóð og falleg 2ja herbergja Ibúð, 64,0 fm,
á 3ju hæð (efstu) é útsýnisstað (litlu fjölb.húsi.
Hús I góðu standi. Næg bilast. V. 8,7 m. 3970
GRETTISGATA - SÉRINN-
GANGUR
Vorum að fá vel uppgerða íbúð í glæsilegu
timburhúsi. Eldhús með nýlegri innréttingu,
baöherbergi uppgert með vönduöum flísum
og kari, boröstofa og rúmgóð stofa, arinn.
Akv. sala. V. 9,5 m. 4011
ASPARFELL
Vorum að fá fallega og rúmgóða 70 fm íbúð á
annarri hæð í lyftublokk. Rúmgóð stofa með
útgengi út á suöaustursvalir, baðherbergi með
nýlegri innréttingu og kari, rúmgott svefnher-
bergi með góðu skápaplássi, eldhús með fal-
legri innréttingu. Ákv. sala. V. 8,2 m. 3993
DALALAND - JARÐHÆÐ MEÐ
SÉRGARÐI
Björt 53,6 fm 2|a herbergja tbúð á jarðhæð 16
íbúða fjölbýli. Sérgarður fylgir fbúðinni. Góð
staðsetning. 4003
TJARNARMÝRI - BÍLGEYMSLA
Mjög faJleg tveggja herbergja 61,1 fm íbúð í
nýlegu húsi. Rúmgóð stofa með útgengi út í
garö, svefnherbergi með fataskáp, baöher-
bergi meö kari, góð sérgeymsla fylgir íbúðinní.
Stæði í bílgeymslu. 3958
MIKLABRAUT
Góð 2ja herbergja 68 fm Ibúð á jarðhæð aust-
arlega við Miklubraut. (búðin er f góðu ásig-
komulagi. V. 7,2 m. 3932
HVERFISGATA
Vel staðsett 58 fm hæð í járnklæddu timbur-
húsi. Sameiginlegur inngangur með risi. Til af-
hendingar fljótt. V. 5,8 m. 3832
Kennarar
Meginkrafan hjá kenn-
urum er sú, segir
Friðrik Dagur
Arnarson, að laun
þeirra verði leiðrétt
til samræmis við
launaþróunina.
ganga. Augljóst virðist að ekki eigi
að semja fyrr en búið er að veita
kennurum ærlega ráðningu, þrátt
fyrir að barátta þeirra snúist ekki
síst um framtíð framhaldsskólans.
Þetta er þeim mun merkilegra fyrir
þær sakir að í jafnmikilvægu máli
hefði mátt búast við að þeir sem
bera ábyrgð á framtíðarþróun sam-
félagsins tækju glaðir höndum sam-
an við kennara sem standa vilja vörð
um skólaþróun, nýsköpun og eflingu
menntunar. Það hlýtur að véra krafa
foreldra að ríkisvaldið geri svo með
þvi að veita stóraukið fjármagn inn í
skólakerfið, í stað þess að reyna að
skapa úlfúð og tortryggni í garð
kennaranna.
Andstæðingar kennara hafa gefið
í skyn að engir góðir kennarar séu
eftir í skólunum og því ástæðulaust
að hækka þar laun. Þeir hljóta því að
vera sáttir við slíkt ástand ef þeir
telja ekki breytinga þörf.
Enginn neitar þvi að kennarar eru
misjafnir. Kennaraskortur leiðir til
þess að slakir kennarar eru ráðnir,
því skólastjórnendur vona eðlilega
að það sé skömminni skárra að hafa
lélegan kennara en engan. Núver-
andi launastefna ýtir undir að slík-
um kennurum fjölgi hlutfallslega,
þegar aðrir og betri gefast upp á
kjörum sínum.
Þrátt fyrir óheillaþróun síðustu
ára eru enn langflestir kennarar
bæði hæfir og áhugasamir fagmenn.
Þeir kjósa að vinna áfram í skólun-
um ef þeim er gert það fært. Ekki
fælir frá að oftast er kennsla
ánægjulegt starf og fátt skemmti-
legra en að sjá ungmenni eflast og
dafna og vita að maður eigi þar hlut
að máli. En fleira þarf til. Endur-
nýjun stéttarinnar með ungu og
hæfu fólki helst í hendur við stór-
bætt kjör hennar. Þau eru líka nauð-
synleg ef hindi-a á að margir af
bestu og reyndustu kennurunum
finni sér annan starfsvettvang.
Verði ekki breyting á afstöðu rík-
isins, mun núverandi ástand festast í
sessi. Því miður virðist það vera
stefna þessarar ríkistjórnar að
svelta kennara til hlýðni, þó hver
hugsandi maður sjái að margir
kennarar láti ekki slíkt yfir sig
ganga, heldur fari annað. Meðfylgj-
andi hnignun skólakerfisins yrði
heldur ófögur framtíðarsýn fyrir
foreldra og aðra þá sem láta sér um-
hugað um vegferð íslensku þjóðar-
innar.
Tekist er á um stöðu framhalds-
skólans í nútíð og framtíð og al-
menningur verður að láta sig málið
varða með beinum hætti. Þjóðin þarf
á því að halda að stjórninni verði
hjálpað úr ógöngunum, því langt
verkfall og litlar kjarabætur valda
því að hagur hennar og framtíð eru
fyrir borð borin.
Höfundur er kennari.
Leikskólar án innihalds
Andrea L.
Jónasdóttir
HVAÐ ætlumst við
foreldrar til að gert sé
fyrir börnin okkar í
leikskólanum? Jú, við
viljum alvöru skóla
með uppbyggilegu og
þroskandi starfi þar
sem bömunum okkar
líður vel, ekki stofnun
þar sem þau eru
geymd á meðan við er-
um í vinnunni.
Við sem fylgst höf-
um með starfseminni á
Brekkuborg vitum að
þar hefur farið fram
vel skipulagt starf und-
ir góðri stjóm. Starfs-
fólk leikskólans hefur
lagt sig virkilega fram og það á ör-
ugglega við um fleiri leikskóla.
Því miður horfumst við nú í augu
við stórt vandamál. Það tekst ekki
að manna leikskólann, hvorki með
faglærðu né ófaglærðu fólki. Þetta á
við marga leikskóla hér á höfuð-
borgarsvæðinu. Astæðan er einfald-
lega frámunalega léleg laun starfs-
fólks. Bæði leikskólakennarar og
ófaglært starfsfólk hefur hætt og
farið í önnur störf.
Það er þekkt úr ýmsum atvinnu-
greinum að erlent starfsfólk er ráðið
þar sem íslendingar fást ekki í
störfin vegna lélegra launa. Það hef-
ur t.d. gerst í fiskvinnslu og ræst-
ingum. Nú er farið að ráða erlent
starfsfólk í leikskólana líka vegna
þess hve launin em léleg. Er það
Anna
Bjarnadóttir
rétt að fólk sem ekki talar íslensku
sjái um kennslu og umönnun barna
á máltökualdri?
í leikskólanum okkar standa mál-
in þannig að það vantar í eina fasta
stöðu á deild, eina og hálfa stöðu í
sérstuðningi og allar afleysingar.
Þetta skapar óskaplegt álag á það
starfsfólk sem fyrir er og spurning
hversu lengi starfsfólkið þolir þetta
álag. Við vitum að streita og álag
skapa oft veikindi og uppgjöf.
Okkur langar sérstaklega að
benda á sérstuðninginn og vísum í
viðtal sem birtist í Morgunblaðinu
10. nóvember sl. um geðheilbrigðis-
viku barna. Þar segir Björk Hreins-
dóttir: „Það er ekki bara bömunum
með geðraskanirnar sem líður illa
heldur líka heilbrigðu börnunum því
Leikskólar
Er það rétt, spyrja
Anna Bjarnaddttir
og Andrea Laufey
Jónsdóttir, að fólk sem
talar ekki íslensku sjái
um kennslu og umönnun
barna á máltökualdri?
það þarf ekki nema eitt veikt barn í
skólastofunni til að raska öllu starfi
hinna barnanna þar sem aukinn tími
kennarans fer í veika einstaklinginn
en hin verða afskipt. Skólarnir þurfa
því að taka sig á og hafa stuðnings-
fólk til að aðstoða við kennsluna og
börnin.
Sjúkdómurinn er svo mismunandi
og einstaklingsbundinn, allt frá því
að vera mjög vægur og upp í að vera
alvarlegur, þannig að fólk gerir sér
oft ekki grein fyrir vandamálunum.
Við, foreldrar geðveikra barna, ger-
um okkur vissulega grein fyrir að
börnin okkar eru mjög erfið og
valda erfiðleikum í skóla. Það er því
ávinningur fyrir alla að þau fái rétt-
an stuðning."
Þetta á að sjálfsögðu við um leik-
skóla eins og aðra skóla, en vandinn
liggur ekki í skilningsleysi starfs-
fólks, heldur í manneklu vegna lé-
legra launa.
I mörgum leikskólum hér á höfuð-
borgarsvæðinu eru laus barnarými
sem ekki er hægt að nýta vegna
manneklu og í Grafarvogi stendur
ný glæsileg leikskólabygging auð.
Ekki vitum við hvernig manna á
þann leikskóla. Það vantar ekki
byggingar, en án innihalds verður
enginn leikskóli. Þessi þróun er
sorgleg fyrir börnin okkar og þjóð-
félagið í heild. Vandinn er nú þegar
mikill og ekki lagast hann ef ekkert
verður gert í launamálum starfs-
fólks leikskóla Reykjavíkur. Þess
vegna skorum við á borgarstjóm að
sýna þessu fólki skilning í baráttu
þess fyrir bættum kjörum.
Höfundar eru isljórn foreldra-
félagsins Eikar, Brekkuborg.