Morgunblaðið - 07.12.2000, Side 79
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
Enn um verkfall kennara og
ábyrgð ríkisstjórnarinnar
Frá Guðjóni Jenssyni:
NÚ VIRÐIST fátt benda til þess að
verkfall kennai-a í framhaldsskólum
leysist fyrir jól.
í góðæri því
sem gengið hefur
yfir íslenskt þjóð-
líf undanfarin
misseri hefur
þjóðin horft upp á
miklar kaup-
hækkanir. Æðstu
ráðamenn ís-
lensku þjóðarinn-
ar hafa þannig hækkað í launum mjög
mikið, er jafnvel talað um að sú hækk-
un sé nálægt því að vera 100% og eru
þeir sem í æðstu embættum sitja vart
taldir á flæðiskeri staddir. Pjóðin
náttúrulega hváði nokkra daga í
vandlætingu og undrun - svo var það
bara allt saman búið. Nú óska kenn-
arar eftir réttlátri launaleiðréttingu
en þeii- mæta grjóthörðu skilnings-
leysi ríkisstjómarinnai- með fjármála-
ráðherra í broddi fylkingar.
Allan síðastliðinn áratug hefur ver-
ið unnið markvisst að því að rífa niður
heilbrigðisþjónustuna í landinu með
því að spara. Eðlilega bitnar þessi
stýfing á þeim sem síst ættu það skil-
ið. Nú virðist vera komin röðin að
menntamálunum. Er kirkjan kannski
næst á niðurskurðarlista fjármála-
ráðuneytisins?
í allt sumar voru einhvers konar
viðræður í gangi milli kennara og rík-
isins. Þegar þrjár vikur eru í verkfall
er tekin sú umdeilda ákvörðun í fjár-
málaráðuneytinu að taka alla fram-
haldsskólakennara af launaskrá frá
og með upphafi verkfalls. Það var af
ráðnum hug af hálfu ríkisstjómarinn-
ar að bjóða kennurum smánarboð:
heil 3%! Nú átti að grípa til gömlu
íhaldsráðanna: að svelta menn og
kúga með því að láta þá samþykkja og
undimta enn og aftur lélega samn-
inga! Eðlilega vissu kennarar ekki
Saga af „banka-
bók“ fram-
haldsskóla-
kennara
Frá Bryndísi Helgadóttur:
ÞAÐ ERU um tuttugu ár síðan
undirrituð hóf söfnun í „bankabók",
að vísu ekki í eiginlegum skilningi
þess orðs, heldur
óeiginlegum. Eg
settist í öldunga-
deild Menntaskól-
ans í Hamrahlíð og
fór að safna í sarp-
inn fróðleik og ein-
ingum. Þessi ein-
ingasöfnun hafði
þann frábæra kost
að þegar einingu var náð og hún
skráð, þá var hún ekki aftur út tekin,
... alltént ekki af skráðum heimildum.
Árið 1986 var innistæðan orðin 133
einingar, nægilegt magn til þess að
geta hafið nám í Háskóla íslands og
var stefnan sett á dönsku og sálfræði.
Innistæðan smá „þyngdist", inn bók-
uðust 90 viðbótareiningar. Ekki dugði
„bankabókin" til tekjuöflunar og enn
var bætt við 30 einingum til þess að
öðlast kennsluréttindi. Nú var sam-
talan orðin 253 einingar og vopnuð
„bókinni góðu“ hlaut sú gamla starf
sem tekur eignasöfnuninni fram.
Er undirrituð hóf störf sem kenn-
ari 1994 voru grunnlaun mín 85.887
kr., nú sex árum síðar eru þau 134.116
krónur. Innan framhaldsskólanna eru
störf deildarstjóra, umsjónarkenn-
ara, tækjavarsla, tölvuumsjón, o.s.frv.
Þessi störf eru ekki öllum föl og eru
unnin utan hefðbundinnar kennslu.
Nú spyr ég sjálfa mig: Hef ég feng-
ið sanngjama vexti af innistæðunni?
Já, í óeiginlegri merkingu ... en ekki
eiginlegri.
BRYNDÍS HELGADÓTTIR,
Tungubakka 30, Reykjavík
hvort þeir ættu að hlæja að þessu til-
boði en flestum hefur sennilega verið
grátur nær. Krafan um hækkun er í
takt við hækkanir annarra stai-fs-
stétta á undanfömum árum og því
ósköp saklaus ein sér, jafnvel þó svo
að prósentutalan virki að vera há. En
fólk lifir ekki á prósentum einum sam-
an, hvorki kennarar né ráðherrar!
Það em ráðstöfunartekjurnar sem
máli skipta.
Kennarar hafa sýnt mjög mikla
samstöðu og eru ákveðnir að láta sinn
hlut ekki eftir að svo komnu máli. Er
ekki annað unnt en að dást að hug
þeirra og djörfung gagnvart valdinu.
Nú er um það að ræða hvort á Islandi
sé vænlegt að vera kennari eða að
hverfa til starfa sem betur em launuð.
Dapurlegt er til þess að vita, að rík-
isstjómin hefur með aðgerðum sínum
sýnt ekki aðeins kennumm, heldur
einnig framhaldsskólanemendum,
mjög mikla ósanngimi og þverúð.
Nánast ekkert hefur verið gert til
þess að reyna að koma til móts við
kennara til þess að unnt sé að hefja
aftur eðlilegt starf í framhaldsskólum
landsins.
Framhaldsskólanemendurnir em
um 20.000 að tölu og lætur nálægt því
að vera tæp 10% af öllum þeim sem
kosningarétt hafa við næstu kosning-
ar (í kosningunum 1999 vom 201.525
á kjörskrá). Er ástæða til þess, að
hvetja nemendur til að koma sér upp
þrýstihópi gegn þeim stjómmála-
mönnum sem vinna gegn hagsmun-
um nema.
Yið skulum einnig hafa í huga, að
núverandi ríkisstjóm hefur sýnt af
sér ótrúlega léttúð í fjármálum á ýms-
um sviðum á undanfömum ámm.
Gæluverkefnin, sem fæst geta talist
vera forgangsverkefni, em þó oft tek-
in fram fyrir. Nú á t.d. að setja á fót
sendiráð í Japan fyrir stjamfræðilega
háa fjárhæð sem nefnd hefur verið:
einn milljarður! Þá telja ráðherrar
sjálfsagt að eyða 500 milljónum í ein-
hvers konar vísi að friðarliði sem í
raun em sérþjálfaðir herþrælar enda
þurfa þeir að geta varið sig á ófriðar-
svæðum ogvígvöllum erlendis. Það að
stuðla að friði milli stríðandi afla í
heiminum er að sjálfsögðu háleitt
markmið en endalaus hít enda getum
við íslendingar lítið annað en að
reyna að koma vitinu íyrir stríðandi
hemaðarbrjálæðinga með orðum og
fortölum um tilgangsleysi hemaðai’-
brölts.
Fyrir um 12-15 ámm urðu Svíar að
vinda ofan af ríkisútgjöldum sínum.
Þeir vöknuðu upp við vondan draum
og gerðu sér ljóst, að þjóðfélagið hafði
ekki efni á að halda uppi velferðar-
kerfinu að óbreyttu. Mikill niður-
skurður ríkisútgjalda var fram-
kvæmdum í öllum ráðuneytum nema
einu: Menntamálin fengu það sem
þurfti til að mennta þjóðina. Svíai’
réttlættu þessa ákvörðun með eftir-
farandi rökstuðningi: við verðum að
veita æsku landsins alla þá menntun
sem þjóðin hefur yfir að ráða og getur
veitt. Sú kynslóð sem nú er að alast
upp á að fá að njóta bestu mögulegrar
menntunar sem unnt er að veita í
landinu því það er hún sem kemur til
með að stjóma og bera uppi þjóðfélag
framtíðarinnar.
Ríkisstjómin gerir sér vonandi
grein fyrir því hvað hún er að gera.
Hún er vísvitandi að grafa undan
menntakerfi þjóðarinnar með því að
veita ekki nægu fé til skólanna á Is-
landi. Kennarar era mjög illa launaðir
og verður að fara suður til landa
Miðjarðahafsins eða jafnvel enn
lengra til að finna verri kjör. Til sam-
anburðar hala ráðherrar árskaup
kennara á nokkram vikum. Finnst
þér þetta vera réttlátt, lesandi góður?
Ríkisstjóminni verður ekki fyrir-
gefið því hún veit hvað hún er að gera!
GUÐJÓN JENSSON,
bókasafnsfræðingur
ogleiðsögumaður
FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000 79
----------------------------_«>»
VALHOLL
HERDÍS OQ HELQA
Hugsar þú um velferð hársins?
Á morgun verður sérfrœðingur á
stofunni frá kl. 12-17, þér til aðstoðar.
Verið velkomin.
Valhöll hárgreiöslustofa. Óðinsgötu 2,
101 Reykjavík.
sími 552 2138.
=i=iM9-riArsi WEUA
NYJAR VORUR
• Pelskápur (stuttar, síðar]
• Leðurjakkar (4 litir)
• Leðurkápur (3 síddir)
• Ullarkápur
• Úlpur
• Alpahúfur (2 stærðir)
• Hattar
\o^Hl/l5ID
Mörkinni 6, sími 588 5518
Opið laugardag kl. 10-16
MONT
BLANC
O
O
e
5
yl/Iir eigum við
tímamót í lífinu
Meisterstuck
Solitaire ermahnappar
THE ART 0F WRITING YOUR LIFE
Skriffæri • Leðurvörur • Skartgripir
Montblanc skartgripir
FJALLIÐ HVÍTA, Miðhrauni 22b, 210 Garðabce, simi 565 4444
J0LASK0R A ALLA FJÖLSKYLDUNA!
FRÁBÆRT VERÐ!
kr. 1.500
svart, st. 22-28
kr. 1.500
svart, st. 22-28
kr. 2.500
svart, st. 36-41
kr. 3.000
svart, st. 40-45
KRINGLAN
sími 568 6062
0konomiSko
-nwirn fyrir
Fasteignir á Netinu ^mbl.is
ALLTAf= £ITTH\SAÐ A/ÝT7