Morgunblaðið - 07.12.2000, Síða 83
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000 83^
FÓLK í FRÉTTUM
Drög að ódauðleika
myrka er þó atkvæðameira og vold-
ugra í huga skáldsins, a.m.k. séð frá
textalegu sjónarhorni:
„en ljósið sem lýsir
það lætur sumt í friði
því er tæpt að treysta
og kemur að takmörkuðu liði“
(„Ég veit ekki hvað ég vil“)
Lengi mætti halda áfram að vitna
í magnaða texta Megasar. Það kem-
ur ekki á óvart hversu góðir flestir
þeirra eru og þyrfti helst aukablað
með Mogganum til að gera þeim til-
hlýðileg skil. Gæði lagasmíðanna
koma hins vegar nokkuð á óvart.
Megas hefur að vísu átt frábæra
spretti í lagasmíðum en líka oft ver-
ið mistækur í þeim efnum. Platan
inniheldur 18 lög og flest þeirra eru
vel yfir meðallagi í gæðum. Ekkert
lag er slakt og það er sjaldan sem
maður hlustar á 70 minútna plötu án
þess að leiðast eitt augnablik.
Angurværar ballöður
eru talsvert margar
og þykir mér „Afmæl-
isanþem" og „Brá-
mánarnir bláu“ vera
dæmi um sérstaklega
vel heppnuð lög í þeim
anda. Megas syngur þau
eins og engill og píanó-
leikur Jóns Ólafssonar er
gullfallegur:
„Það eru brámánarnir
bláu svo banvænir þeir heill-
uð_u mig.“
Á Svanasöngnum má einn-
ig finna nokkur lög í gamal-
dags söngleikjastíl. Best
þeirra þykir mér vera „Löggu-
lífi'frábært lag með hnyttnum
texta sem er eiginlega allt of
léttur og skemmtilegur fyrir
dauðastemmninguna á plötunni:
„ég stika gleiður um stræti og
torg já stilltu þig borgari sæll ég bíð
þér handjárn og húsnæði frítt og
hengingu sértu ekki dæll.“
Eina lagið sem ekki er eftir Meg-
as á plötunni er „Þungur móðuróð-
ur“, lag eftir Wolfgang Amadeus
Mozart sem Megas hefur ort við
snoturt ljóð. Satt best að segja leið-
ist mér Mozart, að „Sálumessunni“
Tonlíst
lægðir. Á Svanasöngnum virðist
Megasi tíðrætt um mannsandann og
þá meira í lægðum en hæðum. Víða
má finna það sem einhver myndi
kalla daður við dauðann og óneitan-
lega rennir titillinn, Svanasöngur á
leiði, stoðum undir þá skoðun.
„...og ég stend uppá gnípu og gái
oní dalinn gaman væri að láta sig
detta...“ („Klappað í stíginn“)
„Klappað í stíginn“ er og frábært
lag með texta sem inniheldur fleira
en fallfrelsi. Það er sem Megas fari
á hundavaði yfir sögu sína sem
textahöfundur þvi ekki sé ég betur
en að textinn sé uppfullur af tilvitn-
unum í fyrri verk. Ég læt þó öðrum
aðdáendum Megasar eftir að sann-
reyna hvort þessi kenning mín sé
rétt enda of langt mál að
fara í þá sálma
hér.
„Vinur
dragðu mig upp“ er annað
afbragðsgott lag og ekki spillir text-
inn fyrir:
„þið glapstigu englar sem iðju-
leysið villir búið um þetta lík sem
best og hreinu hvítu líni hjúpið víst
getm- náttúran loks sagt með stolti:
sjá þar var maður - krjúpið.“
Víst er dauðinn Megasi hugleik-
inn og barátta hins góða og illa,
ljóssins og skuggans o.s.frv. Hið
Geisladiskur
SVANASÖNGUR Á LEIÐI
Geisladiskur Megasar, Svanasöng-
ur á leiði. Öll lög og ljóð eru eftir
Megas utan Þungs móðuróðs sem
Megas orti við lag W.A. Mozarts.
Megas söng og Jón Ólafsson lék á
flygil. Eggert Þorleifsson verk-
stýrði ásamt Jóni Ólafssyni sem sá
um tæknistjórn. Megas útsetti í fé-
lagi við þá Eggert og Jón. Hljóðrit-
að í sal FÍH í ágústmánuði árið
2000. Eyrað gefur út.
ÞAÐ ER ekki skrítið að Magnús
Þór Jónsson, betur þekktur sem
Megas, hafi á dögunum hlotið verð-
laun Jónasar Hallgrímssonar fyrir
framlag sitt til íslenskrar tungu. í
hartnær þrjá áratugi hefur Meg-
as verið fremstur meðal texta-
höfunda hér á landi. Sem tón-
skáld hefur hann einnig
niargoft sýnt snilldartakta. Ný-
útkomin plata hans, Svana-
söngur á leiði, inniheldur 18
lög og ljóð sem Megas syngur
við undirleik píanóleikarans
geðþekka, Jóns Ólafssonar.
Þeir Jón hafa oft starfað
saman áður, oftast með
góðum árangri, og það er
gaman að sjá annan
gamlan félaga Megasai’
með í ráðum, leikarann
og tónlistarmanninn
Eggert Þorleifsson, en hann kom
talsvert við sögu á meistarverkinu
A bleikum náttkjólum.
Mikið hefur verið skrafað um líf-
erni Megasar í gegnum tíðina og oft
hefur honum verið spáð listrænu
sem og tilvistarlegu falli. Slíkt tal er
þó þekkt úr sögunni þegar lista-
menn eru annars vegar. Bob Dylan
sagði einhvern tímann að þegar
toppnum væri náð þá stæði maður á
botninum og víst er að Megas hefur
reynt sitthvað á ferðalögum sínum
um holdfjötraðar andans hæðir og
undanskildri, og þykir mér hann
ekki skáka Megasi í lagasmíðum á
þessari plötu!
Eitt af albestu lögum Svana-
söngsins þykir mér vera lokalagið,
„Kokkrokk". Textinn er sömuleiðis
frábær en hljómurinn á laginu er af-
leitur enda er það réttilega skráð
sem „demó“ á meðfylgjandi texta-
bæklingi. Hljómur er annars til íyr-
irmyndar á plötunni og flutninguiv*;
þeirra Jóns og Megasar víðast feiki-
góður.
Svanasöngur á leiði er snilldar-
verk sem skipar sér tvímælalaust í
hóp allra bestu verka Megasar og
keppir þar við nokkrar af bestu
plötum íslenskrar poppsögu.
Orri Harðarson
Onnur verk Megasar
MEGAS (1972)
★★★★☆
Einfalt og vel
framsett þjóð-
lagapopp, leikið
af norskum lista-
mönnum. Frá-
bærir textar og ögrandi söngstíll
gera plötuna einstaka. Annað eins
hafði ekki áður heyrst hér á landi.
MILLILEND-
ING (1975)
★★★☆☆
Rokkgrúppan
Júdas er hér
Megasi til að-
stoðar og útkom-
an er áreynslu-
lítið en vel gert popp. Textarnir og
röddin eru sem fyrr aðalsmerkið
en einnig má finna mjög góðar
lagasmíðar innan um aðrar lakari.
FRAM OG
AFTUR
BLINDGÖT-
UNA (1976)
★★★★☆
Blindgatan er
tónlistarlega
rökrétt framhald
af Millilendingu og lagasmíðarnar
eru sterkari þegar á heildina er
litið. Hljómsveitin Eik leikur stórt
hlutverk og Megas er í góðu formi.
Á BLEIKUM
NÁTTKJÓL-
UM (1977)
★★★★★
Megas flakkar
um tónlistarsög-
una og kryddar
með frábærum
textum. Dyggilega studdur af Spil-
verki þjóðanna nær karlinn list-
rænum hápunkti. Útkoman er
hrein snilld og má mikið vera ef
platan er ekki sú besta í íslenskri
poppsögu. í kjölfar plötunnar fékk
Megas listamannalaun.
NÚ ER ÉG
KLÆDDUR
OG KOMINN
Á RÓL (1978)
★★★☆☆
Gömul barna-
lög flutt á ein-
faldan og smekklegan hátt. Megas
urrar og vælir textana prakkara-
lega ofan á allt saman. Umdeild
túlkun á sígildum lögum og kvæð-
um.
DRÖG AÐ
SJÁLFS-
MORÐI (1979)
★★★☆☆
Hljómleika-
upptökur frá
Menntaskólanum
í Hamrahlíð. Sjálfsmorðssveit
Megasar á stórleik og karlinn
sjálfur góða spretti en lögin eru
misjöfn að gæðum. Textarnir eru
þó flestir stórvel ortir.
GULT OG SVART
- ANDINN
(1985) ★★★☆☆
Haglega smíðuð og um margt
vel flutt lög Megasar við ofmetna
Passíusálma Hallgríms Pétursson-
ar.
GULT OG SVART
- HOLDIÐ
(1985) ★★★★☆
Safnplata með lögum sem Meg-
as gerði sem liðsmaður hljómsveit-
arinnar íkarus. Til viðbótar eru
svo áður útgefin smáskífulög og
efni sem ekki fékk inni á eldri
plötum. Verðskuldar fjórar stjörn-
ur fyrir að innihalda mörg af beitt-
ustu lögum og textum karlsins.
í GÓÐRI TRÚ
(1986)
★★★☆☆
Endurkoma
Megasar eftir
margra ára hlé
frá plötugerð.
Textarnir eru frábærir og lögin
mörg hver grípandi í smekklegri
meðhöndlun Tómasar M. Tómas-
sonar. Útkoman er þó á köflum
fullslípuð miðað við upphaflegu
smíðamar. Einnig er minni brodd-
ur í söng Megasar en oftast áður.
LOFTMYND
(1987)
★★★★☆
Ein af allra
bestu plötum
Megasar. Þemað
er Reykjavík og
textarnir eru snilldarlega ortir.
Lögin eru vel flest í hæsta gæða-
flokki og útsetningarnar sömuleið-
is. Þeir Brian Pugsley og Guðlaug-
ur Óttarsson skila frábærri vinnu,
ásamt fjölda annarra listamanna,
og Megas á stórleik. Eftir plötuna
var Megas gerður að borgarlista-
manni Reykjavíkur.
HÖFUÐ-
LAUSNIR
(1988)
★★☆☆☆
Svo bregðast
krossti’é sem
önnur tré. Sam-
starf Hilmar Arnar Hilmarssonar
og Megasar hófst á hljóðritun
lagsins „Drengirnir í Bankok“.
Þeir voru eðlilega ánægðir með af-
rakstur þess samstarfs enda út-
koman frábær. Þeir ákváðu að ráð-
ast í heila plötu og þá fór eitthvað
úrskeiðis. Megas hefur oftast haft
betra efni fram að færa og út-
færslan á lögunum er í flestum til-
fellum ekki að virka.
BLÁIR
DRAUMAR
(1988)
★★★☆☆
Sameiginleg
afurð Megasar
og Bubba Mort-
hens. Lögin eru flest í gömlum
dægurlagastíl og leikin í djass-
kenndum útsetningum valinkunnra
hljóðfæraleikara. Framlag Megas-
ar er ívið sterkara en Bubba þrátt
fyrir ágæta spretti hins síðar-
nefnda. Fyrir utan listaverk Mega-
sar, „Tvær stjörnur", eru báðir þó
nokkuð frá sínu besta.
HÆTTULEG
HLJÓMSVEIT
OG GLÆPA-
KVENDIÐ
STELLA
(1990)
★★☆☆☆
Það er með
Glæpakvendið eins og Hvíta albúm
Bitlanna, allt of mörg lög. Þrátt
fyrir að margt sé ágætlega heppn-
að þá hefði mörgu betur verið
sleppt.
ÞRIR BLÓÐ-
DROPAR
(1992)
★★★★☆
Að mörgu
leyti frábær
plata þó lögin sé kannski helst til
of mörg. Hráefni Megasar er hér
vel yfir meðallagi, textarnir eru
magnaðir og mörg lögin grípandi.
Þeir Hilmar Örn, Jón Ólafsson og Ú
Guðlaugur Óttarsson eiga heiður
skilinn fyrir frábært framlag til út-
setninga og upptökustjórnar.
DRÖG AÐ
UPPRISU
(1994)
★★☆☆☆
Megas aftur á
hljómleikum í
Hamrahlíðinni,
nú ásamt hljómsveitinni Ný
Dönsk. Á Sjálfsmorðunum var nýtt
efni og að mörgu leyti frábær
flutningur. Hvorugt er hægt að
segja um Upprisuna.
TIL HAM- .
INGJUMEÐ
FALLIÐ
(1996)
★★★★☆
Sennilega eitt
af bestu verkum
Megasar, textalega séð. Lögin eru
misjöfn en nokkur eru þó afbragð.
Einfaldar og smekklegar útsetn-
ingar eru í fyrirrúmi í hlýrri hljóð-
blöndun Sigurðar Bjólu.
FLÁA VER-
ÖLD
(1997) ->S
★★☆☆☆
Þrátt fyrir á
köflum prýðileg
lög og fyrirtaks
texta þá er útfærsla laganna, út-
setningar og hljóðblöndun hlutað-
eigandi aðilum til lítils sóma.
Orri Harðarson