Morgunblaðið - 07.12.2000, Page 85
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Útgáfutónleikar Sóldaggar í íslensku óperunni í kvöld
Popp, popp,
popp og
aftur popp
í kvöld verður poppað í Óperunni.
Hljómsveitin Sóldögg heldur útgáfutón-
leika sína þar og í tilefni þess tók Birgir
Örn Steinarsson Bergsvein Arilíusson og
Jón Omar Erlingsson tali.
POPP er list. Sá sem reynir að halda
öðru fram ætti nú bara að skammast
sín. Popp er tón-„list“ og sú listgrein
sem er hugsanlega sú vanmetnasta af
þeim öllum. Því þrátt fyrir það að
vera sú tónlistarstefna sem auðveld-
ast er að matreiða ofan í fólk virðast
margir tónlistarunnendur tregir til
þess að viðurkenna unun sína á góðu
poppi. Jafnvel hef ég rekist á popp-
tónlistarmenn sem eru tregir til þess
að viðurkenna að þeir séu slíkir inni
við beinið. Það að geta gert sig skilj-
anlegan í gegnum sköpun sína getur
aldrei verið neitt til þess að skammast
sín fyrir. Að kunna það er list út á fyr-
irsig.
Meðlimir hljómsveitarinnar Sól-
daggar skammast sín ekkert og eru
ekki mikið fyrir að troða sér undir
hatta sem passa ekki á höfuðið á
þeim. Nýjasti geisladiskur Sóldaggar
heitir nefnilega..jú, jú, það er rétt -
„Popp“.
Erfitt að semja popp
„Það var nú eiginlega þannig að
þegar við litum yfir verkið eftir á þá
fannst okkur þetta vera popp og það-
an kemur nafnið,“ segir Jón Ómar
Erlingsson, bassaleikari Sóldaggar.
„Það var ekkert endilega lagt upp
nieð það að búa til poppplötu. Við ger-
um bara eins og flestar hljómsveitir,
setjum lög í púkk og veljum þau sem
okkur finnst best. Okkur fannst Ú1>
koman vera popp.“
Margir tónlistarmenn sem ekki
fást við popplagasmíðar segjast neita
sér um það á þeim forsendum að þær
séu einum of auðveldar. „Ef eitthvað
er þá held ég að það sé erfiðara að búa
tíl popp. Því að ef þú ert að gefa út yf-
irlýst popp og svo verður það ekki
vinsælt þá hefur það ekki tekist hjá
þér því popp þýðir náttúrlega bara
„popular rnusic". Ef þú ert að gefa þig
út fyrir að gera alvarlegri músík get-
ur þú alltaf hlaupið í það að væla yfir
því að Skítamórall sé búinn að eyði-
leggja tónlistarsmekk landans og það
skilji þig enginn.“
Það er auðheyrt þegar maður heyr-
ir tónlist Sóldaggar að þeir félagar
vanda til verka við upptökur.
„Einn af okkur vinnur náttúrulega
sem upptökumaður og það hefur eig-
inlega alltaf verið dálítið vesen á okk-
ur í hljóðverinu," segir Bergsveinn
Arilíusson, söngvari sveitarinnar, og
græðir svip á móti sem krefst frekari
útskýringar. „Útgáfunni hefur fund-
ist við vera frekar leiðinlegir þegar
við förum í hljóðverið vegna þess hve
lengi við erum að öllu. Okkur þykir
gaman að nostra við hlutina og höfum
fengið skömm í hattinn fyrir það að
engin tímaplön standist. Við erum
reglulega rassskelltir fyrir það þegar
við erum að taka upp. Okkur þykir
bara svo gaman að vera í hljóðveri.
Það eru okkar ær og kýr, að vera
þar.“
Þegar á að fara í það að vinna plötu
er eins gott að mæta vel birgur til
leiks. Þrátt fyrir að flokkast undir það
að kallast „sveitaballahljómsveit“ eru
það ekkert endilega böllin eða ljómi
þeirra sem ráða lagasmíðum Sól-
daggar.
„Þegar við erum að gera plötu lít-
um við yfir hópinn og veljum þau lög
sem okkur finnst best,“ segir Jón Óm-
ar. „Það þurfa ekkert endilega að
vera lög sem ganga vel á böllum, og
eru það yfirleitt ekki. Þetta er engin
sérstök dansmúsík sem við erum að
setja á plötur. Við þrumum þeim nú
samt á liðið. Það verður bara að hafa
það að setjast aðeins niður og drekka
sitt brennivín á meðan.“
Hef ekki augun af þér
Á plötunni er þó að finna eitt töku-
lag sem þeir félagar hafa klætt í Sól-
daggar hljómsveitarbúninginn. Það
er gamli smellurinn „Can’t Take My
Eyes off of You“ sem Engelbert
Humperdinck og Boys Town Gang
hafa meðal annarra sungið í gegnum
árin. í flutningi Sóldaggar heitir lagið
„Hef ekki augun af þér“. Hvemig
kom það til að þeir tóku þetta lag upp
á sína arma?
Morgunblaðið/Golli
Bergsveinn og Jón Ómar stinga
saman nefjum og hafa ekki aug-
un hvor af öðrum.
„Það var Júlíus Kemp sem hafði
samband við okkur út af myndinni Is-
lenski Draumurinn,“ segir Berg-
sveinn. „Við tókum bara strax vel í
það. Af hveiju það varð úr að það end-
aði á plötunni var markaðsfræðileg
ákvörðun sem útgefandi okkar hafði
meira um að segja en við. Við erum
mjög sáttir við útkomuna en það kom
okkur gjörsamlega í opna skjöldu að
þetta skyldi fara inn á vinsældalista."
„Þetta kom upp um það leyti sem
við vorum að taka upp plötuna," segir
Jón Ómar. „Þetta skapaði ágætis
hvíld frá okkar eigin efni. Við vorum á
kafi í hljóðverinu og það var fínt að
geta lagt okkar aðeins til hliðar og
takast á við annað. Ég dansaði við
þetta lag í Dansskóla Heiðars Ást-
valdssonar þegar ég var lítill og hef
alltaf átt taugar til þessa lags.“
Tónleikarnir í kvöld
í kvöld heldur hljómsveitin útgáfu-
tónleika sína í íslensku óperunni, en
almennt tónleikahald er eitthvað sem
meðlimimir segjast ekki gera mikið
af.
„Við ætluðum fyrst bara að flytja
lögin á plötunni en þetta er eiginlega í
fyrsta skiptið sem við höldum tón-
leika,“ segir Bergsveinn. „Þannig að
það varð úr að við ætlum að spila plöt-
una í bland við eldra efni. Við leggjum
mikla vinnu og metnað í þetta.“
,Á tónleikum er hægt að velja
mildu breiðari lagaflóru en á böllum
og við notfærum okkur það. Það er
ákaflega gaman að halda tónleika.
Þetta er furðuleg menning héma á
íslandi. Poppbönd spila bara á sveita-
böllum eða ekki neitt. Það hefur
aldrei verið mikil tónleikamenning,"
segir Jón Ómar að lokum og lofar úr-
bótum.
Það er enginn annar en fjöllista-
maðurinn Iceblue, eða Geir Ölafsson
eins og hann heitir, sem sér um upp-
hitun í kvöld. Tónleikamir hefjast kl.
20:30 og hægt er að nálgast miða í
verslunum Skífunnar og í miðasölu
Óperunnar.
Glæsilegri gjafavörur
finnast varla
FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000 8^
Listhús
G a 11erf| Laugardal
Besta jólagjöfin!
HRADLESTRARSKÓUNN
ir 565-9500 www.hradlestrarskolinn.is
Síðustu forvöð að panta
fyrir jólin. Erum við símann
öll kvöld til kl. 22.
Pöntunarsíminn er 565 3900
www.freemans.is
(Pcegiíegur vershmarmáti
www.mbl.is
Nr. Var
_> ' jltÆ
x-úúimtiiíios
Lag
Am You Remiy
RbhcpSbs 01 Hú
Soilltl SIÚE
Ofofeúfl Home
In rviany Oj's
Music Is M? Knöap
Flytjandi
Ereed
Bbiji! Agaínsl The Machim:
Mnby
13
14 13
15 18
18
17
18 2
19 24
20 4
21 22
22 1
23 28
24 17
25 20
26 ! 27
27 I
28 28
29 j 19
Ya Maina
The Seeond Llnc
Wtnm II All Gnes Wrniiij Again
Wicked 6w.
II ni! Arnii!il Scissor
Oclohcr Sninnifir
Disposable Teens
lamjRrint: Specdo
Faibny Slim
Al Tlic Ilrlvii In
JJ/2
iitrilyn Manson
Caviar
PJ Harvey
Aviake
Orioinal Prankster
BlarJt Jbsus
Faröu i Röö
Viltu Deyja
Slave Tn The Wage
Griinn Oay
A l’iirliicl Circle
Oadly Drawn Boy
RADIO
6. des. - 13. des.
(2JJJSB0I
“EKKl MISSA AF HENNI....
BRESK GLÆPAGAMANMYND EINS OG ÞÆR GERAST
ANCIANO OG RAY BURDIS
ELSKA, VIRDA 06 HLYÐA
IwT
WINBTONE
JONNY
LEE MILLER
JUDE
LAW
BBAN
PERTWBE
KATHY
BLAKE
DENIBE
VAN OUTEN
FRUMSÝND f HÁSKÓLABÍÓl 8. DESEMBER 2000
AHYB
FANB
LOADED