Tímarit - 01.01.1869, Page 74
74
lögfull, og urðu slíkir goðar að sameina goðorð sín til
alþíngis þanníg: að einúngis 3 úr þíngi hverju komu
fram sem goðar á alþíngi. Þannig gat þriðjúngur mynd-
ast af fleiri goðorðum, en ei að síður hefir hann verið
aðskilinn með vissum takmörkum frá hinum þriðjúng-
um þíngsins, og goðorðin innan þriðjúngs hafa líka
haft sín takmörk innbyrðis, ef þau runnu ekki saman í
eitt, sem optast mun hafa orðið tilfellið, því það miðaði
til að sameina kraptana, en var í sjálfu sér engin rétt-
indamissir, því það var bæði löglegt og altítt að fleiri
áttu goðorð saman, en einn fór með það í senn. Það
er auðvitað að þriðjúngs-búar hafa verið sjálfsagðir þíng-
menn þriðjúngs-goðans, nema þegar einn eða fleiri
sögðu sig löglega úr þíngi frá honum, og í þíng með
öðrum goða, en það var hverjum lögheimilt og var það
undantekníng en raskaði ekki takmörkum goðorðanna
fremur enn þínganna eða fjórðúnganna. Flosi, t. a. m.
tók sér þíngfesti með Áskatlj goða, en hélt sem áður
heimilisfángi að Svínafelli, og má nærri geta að Þíng-
eyar þíng gat ekki fyrir það náð inn í Skaptafells þíng,
og þá ekki heldur Reykdæla goðorð blandast samanvið
Skaptfellínga- (Freysgyðl(nga-) goðorð, og sama regla
heflr gilt þó bóndi segðist í þíng með samþíngisgoða
þeim er næstur var, að það hafa æfinlega verið undan-
tekníngar. Hefði ekki hvert goðorð náð yfir víst af-
markað svæði, þá hefði goðanum næstum verið ómögu-
iegt, að hafa þá yfirumsjón með búnaðar ástandi þíng-
manna sinna, sem hann þó hafði. Til hans kasta kom
að afstýra eða ráða úr bjargarskorti og öðrum vand-
ræðum hjá þeim, að því leiti unntvar, þess vegnakall-
aði hann þá líka saman á haustfundi eða haustþíng, til
að ræða um «hreppaskil og ómegðir manna» og ýmis-