Gefn - 01.01.1870, Page 5
5
landi að mörgu leyti. Vér vöknuðum til frelsis og frama
og vonuðumst eptir að þeir, sem gerðust postular frelsis
vors og framfara, mundi sjá til að ástand landsins kæmist
á stöðugan fót fyrr en vér værum allir komnir undir græna torfu.
Stofnendur Pjölnis og alls þessa tímabils voru frá Bessastaða
skóla, og eptir því sem ástóð, gat slíkt rit ekki baft önnur upp-
tök. Bessastaðir og Viðey voru þá þeir staðir, sem öll þessi
hreifíng rann frá út um land vort: á Bessastöðum var skól-
inn og þar eða þar í nánd kennararnir; í Viðey var Magn-
ús Stephensen og prentsmiðjan — samt liggur þetta nokkr-
um árum fjær. þessi andlega hreifíng á því upptök sín
beinlínis að rekja til Bessastaða skóla, og þeir sem þaðan eru
komnir, mega enn muna eptir því og munu kanuast við ef þeir
hugsa um það, að á milli kennaranna og lærisveinanna var yfir
höfuð svoununarlegtsamlífiaðslíkt hefiraldrei komiðsíðauskól-
inn var fluttur þaðan. og mun aldrei koma aptur, að því er vér
hyggjum, því breytíngin orsakaðist ekki eingaungu af því að
skólinn var fluttur frá Bessastöðum, heldur af öilum tíman-
um og þeim mörgu hlutföllum sem þar með fylgja. Menn
skulu ekki gera sér í hugarlund, að vér álítum flutníng
skólans til Keykjavíkur frainför fyrir landið; vér viljum
ekki heldur kalla hann beinlínis skaða, en það var
breytíng, seiu margir helztu menn vorir settu sig á
móti, en sem var komið á einúngis fvrir krapt fáeinna em-
bættismanna í Reykjavík, sem þótti hægra að halda sonum
sínum í skóla þar en á Bessastöðum. Stjórnin knúði oss
ekkert í því efni, heldur lét hún Íslendínga sjálfa segja
um það álit sitt, sem kunnugt er. Og það mætti þó engu
að síður segja, að vér mundum hafa haft betra af, ef skólinn
hefði verið kyrr, og það var alltaf meiníng Bjarna Kectors,
og talaði hann optum það og hvernig alt hefði farið betur
þar. Vér verðum enn að geta þess — það er þurr og hreinn
sannleikur og ekki annað — að frá Reykjavíkur skóla hefir
enn ekld komið einn einasti, sem hafi ritað noklcuð það sem
reiknast megi til vísindalegra rita nema þeir einir sem ein-
mitt nutu kennslu Bessastaða kennaranna; það eru engir