Gefn - 01.07.1872, Page 18

Gefn - 01.07.1872, Page 18
18 undan allri sögu, laungu á undan stofnan Norðmannarikjanna af Rúrik eða Hræreki, sem ekki var uppi fyrr en á níundu öld (hafi hann nokkurn tíma verið til); Norðmenn eða »Varegar« (Væríngjar) komu þar alls ekki til nýrra landa, heldur til enna fornu átthaga sinna; og þegar annála- ritararnir Ljutprand og Ademar segja, að Russi og Nord- manni sé hið sama, þá er það miklu yfirgripsmeira en svo, að það nái einúngis til tímabilsins frá Hræreki. Norðmenn era ekki sprottnir upp í Noregi eins og gorkúlur, heldur eru þeir uppranalega austræn þjóð með austrænni trú, þó hún hafi margvíslega breytst frá enni upphaflegu mynd sinni. Sæmundar-Edda hefir verið eignuð Sæmundi fróða svo lengi sem menn framast muna, og bæði Brynjólfur Sveinsson, þormóður Torfason, Árni Magnússon og Björn á Skarðsá hlutu að vita það betur en nokkurr enna ýngri manna. Páll Vídalín nefnir og »Sæmundar-Eddu« hvað eptir annað í skýringum lögbókarinnar; og eins og enginn getur saunað, að hann hafi tekið það upp eptir Brynjólfi, sem fyrstur á að hafa ritað þetta nafn á bókina, eins getur heldur enginn sannað, að Brynjólfur hafi fundið upp á því af sjálfum sér. Að breyta nafni bókar þessarar er því eins óleyfilegt eins og að breyta nöfnum manna: menn vita þá ekkert um hvað verið er að tala, þar sem allir kannast við það nafn sem aldirnar hafa helgað og staðfest. Að Snorri aldrei nefnir »Sæmundar-Eddu«, sannar ekki hið minnsta; hann gat eins þekt hana eins og vér þekkjum ótal bækur sem vér ekki nefnum. Vér nefnum ekki einusinni sjálfir »Sæmundar- Eddu«, heldur hverja kviðu út af fyrir sig, þegar vér vísum til þessara kvæða, og enginn getur þó neitað því, að vér þekkjum »Sæmundar-Eddu«. Vér vitum ekkert um hvort þetta nafn hafi verið til á dögum Snorra eða ekki, og það er allt eins líklegt að það hafi þá þegar verið til, eins og að það hafi ekki verið til. Snorri hefir hlotið að hafa fengið þessar kviður eins og önnur kvæði einmitt frá Odda, ásamt með hinum öðrum bókum Sæmundar. Enginn leyfir

x

Gefn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.