Gefn - 01.07.1872, Side 48

Gefn - 01.07.1872, Side 48
48 Um hagi íslands. Mavgt úr ritgjörð vorri um »frelsi menntun og framför« hefir nú ekki alls fyrir laungu komið á prent í fjóðólfi, þó höfundurinn ekki sé svo æriegur að segja hvaðan hann hafi tekið hugmvndir sínar. þjóðólfur lætur nú svo lítið að taka við þessum hugsunum, sem honum þóknaðist að kalla »pólitisk poetisk ærsl og skrípalæti«, á meðan enginn þorði að kveða uppúr með þær nema vér; en nú, þegar einhverr af hans »útvöldum kerum« verður til að sjóða sinn vatns- graut upp úrvorum töðugjaldagraut, þá er allt gott; þá fer þjóðólfur loksins að verða »fornúftugur« á sínum elli-árum, og stendur nú frammi fyrir publieo á svörtum kjól með dökkgræna regnhlíf í hægri hendinni, en með snjóhvítan snítuklút í vinstri hendinni til þess að þurka skallann með og veifa enu pólitiska moldryki frá hinum glansandi pípuhatti, sem nú prýðir herra ritstjórans höfuð svo sem ein lífsins kóróna honum gefin þegar í þessu lífi fyrir einstakan dugnað og framtakssemi. Af því þjóðólfur þannig hetir hlaupið undir bagga með oss til þess að brýna fyrir mönnum, að það mundi hafa orðið þægilegra fyrir oss, ef alþíngið hefði tekið lög stjórn- arinnar til greina og fallist á þau af frjálsum vilja, þá þarf hér ekki að fara mörgum orðum um þenna hlut. Á því getur enginn efi leikið, að eins og stjórnin á að vera

x

Gefn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.