Gefn - 01.07.1872, Page 50

Gefn - 01.07.1872, Page 50
50 úngis frá sér út af því, að vér skulum dirfast að finna nokkuð að alþíngi; en það sýnir ekki annað en það, að þessir menn vita ekki hvað menn leyfa sér að segja um þíng í öðrum löndum. J>að er engin list, að vilja efla hag landsins með að fengnu fé, en hitt er meiri list, að koma efuahag landsins upp af eigin ramleik, og þetta höfum vér áður tekið fram að væri það einasta sem áreiðanlegt væri. J>að er heldur engin list, að berja það alltaf áfram að allar undirtektir stjórnarinnar sé svo ótækar, að menn geti ekkert átt vid þær; en hitt er meiri list, að samrýma tilraunir stjórnarinnar við hugsanir og þarfir landsmanna, og það getur ekki orðið nema menn líti á þær með nokkrum vel- vilja, því það er enginn vandi að segja að allt sé vitlaust og ótækt, eða að fetta fíngur út í allt, svo það verði óhaf- andi. j>að er yfir höfuð miklu hægra að rífa niður og hindra allt, en að byggja upp og styrkja; nú hefir alþíngið í tuttugu ár gert það fyrra; nú ætti það að gera það síðara, ef unnt er. Menn hafa áður — ekki einusinni, heldur árum saman — verið að tala um skuld Danmarkar til íslands eins og hún lægi laus fyrir, eins og menn hefðu peníngana í hendi sér, en engum datt í hug að skygnast eptir dæmum annarstaðar frá, því þá mundu menn hafa séð, að þess háttar skuldir eru aldrei borgaðar, heldur dregur tíminn stryk yfir þær þegjandi. Upphæð árgjaldsins, sem íslandi er veitt, bendir oss á að líta til sjálfra vor og reyna til að komast eitthvað á fram af eigin ramleik. Árgjaldið hrekkur ekki til aunars, að kalla má, en að launa embættismönnunum; og þó þetta enganveginn miði til »framfara«, heldur einúngis viðhaldi gamalli stofnun sem Íslendíngar sjálfir ekki hafa meðgjörð með, þá mega þeir samt verða fegnir að þurfa ekki að leggja á sig skatta til embættalauna, því að heimta það eptir því sem nú stendur á, það væri allt of mikið Aptur á móti hrekkur árgjaldið ekki til neinna stofnana eða endurbóta í landinu, hverjum uöfnum sem nefnast kunna. þetta er nú öldúngis ótækt

x

Gefn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.