Gefn - 01.07.1872, Page 52

Gefn - 01.07.1872, Page 52
52 menn mega vera búnir að sjá, að þau koma aldrei á þann hátt sem um hefh verið talað, nefnilega þannig, að Danir gjaldi íslandi stór fé, hvort það heldur er kallað skuld eða annars konar árgjald. Yér höfum hér að framan minnst á hversu lángt árgjaldið hrökkvi, sem nú er fengið: en ein- mitt það sein gera þarf, og sem ekki verður gert fvrir ár- gjaldið, það verða Íslendíngar að leggja á sig af eigin ramleik, eins og allaraðrar þjóðir; sá styrkur, sem í öðrum löndum er veittur þar til af stjórnunum, er í rauninni þjóðanna eigið fé: það eru þeir skattar sem þjóðirnar leggja sjálfar á sig sjálfum sér í hag; og það hjálpar ekki, að skoða hvern skatt svo sem þrælslegar álögur og þvíngun, heldur eru þetta þvert á móti frjáls samskot þjóðarinnar til sam- eiginlegrar velmegunar og framfara. f>ess vegna hlýtur sú trú og tilfinning að gánga eins og lifandi straumur í gegnum alla alþýðu, að hverr og einn einstakur maður geri sitt til þess að komast á fram á einhvern hátt, og skorist því ekki undan eða kveinki sér við að leggja til almennra þarfa. Baráttan fyrir verzlunarfrelsinu var af sumum álitin sem upphlaup; menn þóktust ekki sjá annað en að allt ríkið væri á förum, ef Island fengi verzlunarfrelsi. þ>essar raddir eru síðan þagnaðar; en sjálfir landsmenn,- sem skildu vel hversu áríðandi þetta mál væri fyrir oss, þótt árángur þess yrði lítill um stund, töluðu þá um verzlunarfrelsið svo sem undirstöðu til alls frelsis vors og sögðu að morgun- bjarmi nýrrar tíðar væri runninn upp á himininn. J>á þóttu þetta sönn orð, og vér uppástöndum að þau sé eins sönn enn í dag; því einmitt verzlunarfrelsið og verzlunin ekki einúngis getur verið, heldur og hlýtur að vera grundvöilur ennar tímaulegu velferðar vorrar. í þessu efni eru líka deildar meiníngar. Sumir standa fast á því, að land vort sé svo fátækt, að ekkert verði gert; en þar á móti finna aðrir, að Íslendíngar láti kaupmenn græða á sér stór fé, svo að kaupmennirnir ekki lengur hirða um að hafa heimili á íslandi, heldur flytja sig tii útlanda og lifa í alls nægtum

x

Gefn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.