Gefn - 01.07.1872, Page 53

Gefn - 01.07.1872, Page 53
53 fyrir það fe, sem þeir hafa rakað saman úr landinu í hreinan ávinníng. Yfir þessu þarf enginn að undrast, jþví öll verzlan er einúngis keppni, þar sem hvorr reynir að verða ef'ri en annar, og það getur enginn bannað. En þá getur heldur enginn bannað Íslendíngum að keppa við kaupmennina og bæta verzlunarefni sín eins og unnt er. Menn eru loksins farnir að finna, að Islendíngar eru komnir í fyrirlitlegan þrældóm, ekki til stjórnarinnar, heldur til einstakra manna, sem eiga ráð á lifi þeirra og eignum — sem geta látið taka eigur manna hvenær sem vera skal fyrir skuldir; sem ráða sjálfir, hversu mikið þeir vilja gef'a landsmönnum fyrir afla sinn og vörur, jafnvel þó þetta sé þeirra eigin frjáls eign og þeir sjálfir eigi fullan rétt á að meta vörur sínar eins og þeir vilja. Orsökin til þessa þrældóms er samt ekki kaupmanna- stéttin, þó deyfð og skammsýni landsmanna sé henni ein- mitt í hag; heldur ekki fátæktin, sem margir hafa alltaf á lopti eins og skjöld, sem mönnum er nú farið að leiðast að horfa á, því menn eru fyrir laungu búnir að sjá, að þær rúnir, sem á honum standa, eru lýgi - nei, það er ekki fátæktin, sem er orsökin til þessa eymdarástands: það er fjörleysi og samtakaleysi, hugsunarleysi og deyfð og óregla, sem um allan aldur hefir þróast eins og illgresi í landi voru. Geti Íslendíngar upp rætt þetta illgresi, og þar með losað sig úr þeim fjötrum, sem deyfðin og dáðleysið svo lengi hafa haldið þeim í, þá eru þeir ofan á; þá geta þeir lagt á sig nóga skatta landinu tii framfara, og þetta er sá einasti óbrigðuli vegur til velmegunar; þá þurfa menn ekki lengur að renna bænaraugum til Danmarkar um hverja hundrað dali sem þörf er á. En til þess að gagn verði að, þá hjálpar ekki að fáeinir einstakir menn gángi þenna veg — vér hyggjum jafnvel, að yfir höf'uð verði ekki neinum ein- stökum mönnum auðið að komast á hann svo að allt landið hati gagn af — heldur verða allir að verða samtaka til þess að gánga hann, án þess að hugsa nm skjótan ábata eða gróða; en það eina sem menn eiga að hugsa um, það er

x

Gefn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.