Gefn - 01.07.1872, Side 56

Gefn - 01.07.1872, Side 56
56 að þessi andi sé til og geti eflst og alist. [>ví meira sem menn tala um apturför og hnignan, því fremur fer mönnum aptur; því fremur sem menn ætlast til að fá hjálp annarstaðar að, því síður veitist hún; og það er almennt álit nianna, að stjórnir og ríkisþíng, í hverju landi sem er, ekki styrki önnur mál en þau sem hafa no'g lífsafi til að bera sig sjálf; það er að skilja: laungunin og viljinn verða að vera orðin svo föst og rótgróin, að það sé ekki hætt við að þau deyi út aptur, eins og svo opt hefir orðið hjá oss; því ekkert fé, hversu mikið sem er, getur gert neitt gagn né veitt nokkurt lið, nema því að eins að þeir kraptar sé til, sern láti það bera ávöxt; en þessir kraptareru ástundun, vilji og þolgæði: án þessaia krapta dugir engin stjórn, engir peníngar. Framfarir og hagsmunir sér hvers lands eru sumpart líkamlegir, en sumpart andlegir. Vér höfum nú minnst nokkuð á enn líkamlega hag lands vors, og skulum nú fara fáeinum orðum um hin andlegu hlutföll. Upplýsíng og menntun alþýðu vakir ætíð fyrir hverjum þeim sem nokkuð hugsar um land sitt. Vér höfum þegar drepið á þenna hlut á fremstu blöðunum í fyrsta ári rits þessa og tekið það fram að bæði væri Íslendíngar öðrum þjóðum fremri að náttúrlegri upplýsíngu, enda væri og að sumu leyti hægra við þetta að eiga hjá oss enn öðrum. Fámennið og strjálbygðin eru hér það sem örðugast er að fást við, eins og vant er. Hugmyndin um alþýðuskóla hefir lengi vakað fyrir mönnum á íslandi, sem von er, og menn hafa álitið slíkar stofnanir sem óumfiýjanlegar, ef menntun landsmanua ætti að vera í nokkru lagi. En þessir tveir hlutir, sem nú nefndum vér, nefnilega fámennið og strjál- bygðin, hamla oss frá öllum slíkum stofnunum — fyrir utan það, að vér höfum ekki svo sérlega sterka trú á þessari skólakennslu, þó henni sé lirósað og hún sé lofuð og vegsömuð einmitt af þeim sem sjálfir ætla sér að ná í kennaraem- bættin, eða þá af kunníngjum þessara -manna, sem vilja styrkja þá, þvi þannig gengur það til erlendis, þar sem

x

Gefn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.