Gefn - 01.07.1872, Page 58
58
bók sem allir verða að lesa, og fermíngin er það próf sem
allir verða að gánga undir, áður en þeim er slept út í lífið.
En einmitt vegna þessara hluta, sem hér eru nefndir, þyrfti
barnalærdómsbókin að breytast því nær gjörsamlega, svo
hún gæti innihaldið og gefið en allrahelstu atriði almennrar
menntunar, sem mætti verða á fáeinum örkum, þannig að
bókin öll yrði ekki stærri en svo sem átta arkir, og þar af
væri þrjár enar fyrstu arkirnar guðleg fræði, en hitt verald-
legs efnis. þá yrði ekki einúngis að fækka ritníngargrein-
unum og nema margar þeirra á burtu, sem mætti án vera,
heldur og yrði að stytta stóra stílinn og um fram allt enar
laungu greinir, sem sumstaðar eru í kverinu, og sem börnin
læra einúngis sem þulur og hugsa ekkert út í það annað en
»að kunna það reiprennandi«, fyrir utan það að tornæm
börn eiga bágt með það og þreytast og kveljast á því að
óþörfu. Hinn veraldlegi hluti bókarinnar yrði saga mannanna
og lýsíng náttúrunnar; að þessi hugsun vor sé rétt, sannast
einmitt á því, að í kverinu sjálf'u er laung grein með smáum
stíl í fyrsta kapítulanum um heiminn, himintúnglin, mennina
og dýrin, og er auðséð á því, að fyrir höfundinum hefir sú
hugmynd flögrað óljós, sem vér nú höfum fram leitt skýrari.
jjannig mundu aðalatriði menntunarinnar geta komist inn í
hvern mann án nokkurs skóla; en að prestarnir mundu
þannig verða sjálfkjörnir leiðtogar menntunarinnar, það gefur
hverjum að skilja, og það er ekki einúngis óumflvjanlegt
eptir ástandi lands vors, heldur og einnig að vorri hyggju
hagfeldast og gagnlegast fyrir alþýðuna.
fetta allt saman snertir nú samt einúngis ena lægri
menntun eða hin fyrstu drög til hærri og meiri upplýsíngar;
en öðru máli er að gegna með þessi æðri menutunar-hlutföll,
sem að sumu leyti eru til einúngis sjálfra þeirravegna, svo
sem skáldskapur og lærdómur, en að sumu leyti taka inn í
líkamlegar þarfir manna svo að þau eru beggja bland. Samt
er það sjálfsagt, að öll rit geta verið menntandi, hvernig
sem þau eru, einúngis ef þau eru svo að menn skilji þau.