Gefn - 01.07.1872, Side 64

Gefn - 01.07.1872, Side 64
64 látum eptir í fjarska ena gráu fornöld, þar sem allar myndir renna saman og svífa eins og ský í órjúfandi þoku. Allir menn eru hvorr öðrum ólíkir; varla hittast tveir menn, sem sé öldúngis eins, og hversu líkirsem þeir kynni að vera að líkamanum til, þá eru þeir það samt ekki í hugsunum, máli og slíkum efnum. Af þessum orsökum hafa • menn lijótt fundið, að þessi ójöfnuður á sér stað ekki einúngis með tilliti til einstakra manna, heldurgengur hann yfir lieilar þjóðir, og því hafa menn skipt mönnunum í flokka, eptir eðli þeirra og útliti. Algengast er að skipta þeim í Kákasusmenn, Móngola, Etíópa, Ameríkumenn og Malaja; en margar aðrar skiptíngar eru til. Menn reikna fjölda mannanua 1300 millíónir og þar af eru Kákasusmenn 375, Móngolar528, Etíópar 196, Malajar 200, Ameríkumenn 1. Sér hverr þessara flokka liefir sinn einkennilega hlæ; Kákasusmenn eru fegurstir skapaðir og ljósir á hörund að jafnaði; Móngolar eru gulir og augun sem í ketti, Etíópar (Negrar) svartir og hrokkinhærðir, Malajar brúnir að lit, og Ameríkumenn (Indíanar) rauðir. pessi skiptíng er bygð á útliti mannanna; en nokkuð öðruvísi verður skiptíngin eptir málunum, eins og ráða má á því ef menn bera saman þessa ritgjörð við það sem vér höfum sagt hér að framan um Aryana: þar er einúngis málið lagt til grundvallar, og má af því sjá, að skipta má mönnunum ýmist eptir líkams- skapnaði, en ýmist eptir málunum. Sömuleiðis má ráða af þessu, á hversu miklu reiki skoðanir manna sé í þessu efni, því menn koma sér í rauninni aldrei saman og hverr og einn þvkist þurfa að finna uppá sinni eigin kenníngu. þeir sem helst fylgja ritníngunni, hefja ættirnar ekki fyrr en frá Sem Ham og Jafet Nóasonum, og láta hitt annað eiga sig sjálft. Semítum er eignuð Asía, Hamítum Afríka og Jaf'etsmönnum Evrópa; en Ameríka og Ástralía hyggja menn aö byggst hati í öndverðu af blendíngum beggja enna fyrr nefndu og sé því þannig til komnir Malajar og Indíanar. Jafet átti sjö sonu, og eptir þeim heita þjóðflokkar:

x

Gefn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.