Gefn - 01.07.1872, Side 85

Gefn - 01.07.1872, Side 85
85 vitum vér það af Díódórasi, Jornandes og öðrum fornum höfundum. En vér ætluðum hér ekki að fara að rekja sögu saunglistarinnar frá Júbal og Orfeusi; vér förum miklu lengra niður í tímann. Eins og vér höfum drepið á í ritlínginum um þjóðafræði og sögu hér að framan, þá glæddist andlegt fjör á Ítalíu á 14. oglðdu öld svo furðulega, að það hefir aldreiorðið jafn fagurt síðan. |>að var eins og leiptrandi geislum slæi niður á mannkynið frá fegurðarinnar heimi, hvorum að öðrum, og á þessum tíma efidist líka hljóðfæralistin miklu meir en áður, þó hún eiginlega ekki kæmist hæst fyrr enn svo sem einni öld síðar, einkum en kirkjulega saunglist, sem Pale- strína varð frægastur fyrir. þessarar gullaldar hafa ítalir notið síðan, svo upp hjá þeim hafa ávallt öðru hvoru komið frægir hljóðfæraleikarar, og ítalir eru frægastir allra manna fyrir gígjur og saungfæri. Einkum er Kremóna frægur staður fyrir gígjusmíði, og þvkja gígjur eða fiðlur þaðan hljóðmeiri og skærari en annarstaðar frá; því eldri sem þær eru, því betri eru þær, og kosta svo mikið sumar, að skiptir þúsund- um dala. Nikulás Paganini var einna frægastur allra fiðlara sem nokkurn tíma hafa uppi verið; og listin hefir varla nokkurn tíma sýnst jafn töfrandi, eins og hjá honum. Hann var fæddur árið 1784 í Genúa. Faðir hans var verzlunarmaður og sat við þraungan kost, en hafði skemtun af hljóðfæraslætti, eins og flestirjtalir, og hélt hann sveininum snemma til fiðlunnar, og það svo harðlega, að lá við meiðíngum; en Nikulás var ekki linari sjálfur í leiknum, því hann lifði í eintómum saung og hörpuslætti og hugsaði ekki um neitt annað. En houum nægði ekki sú hin litla kennsla, sem hann gat fengið í föðurhúsum, heldur var hann alltaf að finna sjálfur upp á nýjum gripum og saungbrögðum, svo þeir sem á hlýddu undruðust og skildu ekki í öllum þeim hfjóðum sem honum tókst að fá úr fiðlunni. Ena fyrstu verulegu kennslu fékk hann hjá manni nokkrum er Costa hét, en Nikulási var ekki

x

Gefn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.