Gefn - 01.07.1872, Page 86

Gefn - 01.07.1872, Page 86
86 mikið um að rigbinda sig við reglur, og af þvi kom opt ósamlyndi á milli hans og kennarans. þar var hann í hálft ár, þá gat Costa ekkert kent honum lengur, og f<5r faðir hans þá með hann til Parma, og ætlaði að koma honum fyrir hjá frægum saungmeistara er Rolla hét. Paganini hefir sjálfur sagt frá hvernig það fór: »þ>egar við komum, þá var Rolla sjúkur og lá í rúminu; kona hans tók á móti okkur og við gátum ekki strax fengið að koma inn til mannsins; hún lét okkur þá fara inn í herbergi þar við hliðina, og þar á borði einu sá eg fiðlu og nótnablað, sem á var ritað lag nokkurt er Rolla hafði þá nýlega saman sett. Eg tók fiðluna og lék þegar lagið; en Rolla heyrði það og spurði hverr sá meistari væri sem gæti leikið lagið svo fullkomlega. þegar honum var sagt það, þá trúði hann því ekki fyrr en hann gekk sjálfur úr skugga um það; kvaðst hann þá ekkert geta kennt mér og sendi mig strax þaðan til ens nafnfræga Paer.« Sá tók harla vel við Ni- kulási, en kendi honum ekki sjálfur; hann sendi hann til Gíretti, sem kendi honum saungfræði í hálft ár; þá fyrst tók Paer hann að sér og kendi honum. Allmörg ár liðu áður en Paganini færi út fyrir fóstur- jörðu sína. þ>ó menn þar væri alvanir hljóðfæraslætti og enum frægustu meisturum, þá féllu allir í stafi, þegar þeir heyrðu til hans. Orð fór raunar af honum til þ>jóðverjalands og Frakklands, en svo hugsaði enginn um það meir; hann varð sjálfur að koma. Fyrst kom hann til Vínarborgar — ekki fyrr en 1828: þá hafði hannfjóra um fertugt og enginn þekti hann fyrir norðan Mundíafjöll, enda hafa fáir menn verið bakmæltir og rægðir meir enn hann. í Vínarborg urðu menn sem hamslausir þegar han dró fyrsta bogastrykið á fiðluna, og það ekki einúngis af hljóðfegurðinni, heldur og af útliti Paganinis og allri aðferð, sem síðar mun verða nefnd. þ>að var eins og þessi maður væri fallinn af himni: hann kom allt í einu, og enginn hafði heyrt getið um hann. Menn létu heldur ekki sitt eptir liggja til þess að gera sér grein fyrir þessu kraptaverki. Bæði í París og Vínarborg

x

Gefn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.