Gefn - 01.07.1872, Side 89

Gefn - 01.07.1872, Side 89
89 hverfa bæði frá fiðlu og fjörvi; læknamir héldu hvorn fundinn eptir annan, og komust á endanum einúngis að þeirri niðurstöðu, að sjúklíngurinn þyrfti ró og hvíld um tíma, og mætti ekkert fást við hljóðfæraslátt eða saunglæti. TJm þær mundir var í Parísarborg garður nokkur harla fagur og unaðlegur, sem var bygður einúngis í þeim tilgángi, að þar mætti dvelja sjúkir menn sem ekki lægi rúmfastir; þar í miðjum garðinum var hús mikið og fagurt og þanuig til hagað, að sér hverr sjúklíngur hafði þar herbergi útaf fyrir sig og vissi ekkert af hinum fremur en hann sjálfur vildi, því veggir voru þykkvir og öll tilhögun en hagkvæmasta; þar voru fagrar lindir í skugga blómvaxinna aldinviða og svo mikil kyrð að gleymdist með öllu návist og skarkali borgarinnar. í húsinu var salur mikill og skrautlegur og þar gátu menn fundist á hverjum tíma dags sem vera skyldi og leikið og spilað, og gert sér það til skemtunar sem hugurinn hvatti til, allt eptir því hvernig á stóð, því læknarnir gáfu reglur fyrir hvernig menn skyldu haga sér; sumum var boðið að leita samkvæmis annara og skemtanar; en sumum var það þverlega bannað og þeim fyrirskipuð einvera og kyrð. Á meðal enna síðar nefndu var Paganini, og vakti það ekki alllitla óánægju, því margir höfðu hlakkað yfir komu hans þángað og vonast eptir að fá að heyra saunglag. Einkum gengu þrjár gamlar jómfrúr hreystilega fram í því að álasa Paganini sín á milli og finna allt að honum sem þeim gat í hug dottið. »Hafið þér séð þann fræga saung- fugl«, sagði ein; »hann heilsar engum og enginn fær orð út úr honum; hann má ekki sjá nokkurn mann, en flýgur á burtu þegar er nokkur kemur nærri honum. f>að er þó merkilegur spói!« Hin önnur mælti: »líklega er þetta í einhverju sambandi við veiki hans; hanu þjáist víst af sálar- kvölum og samvitskubiti, eða hafið þið ekki heyrt hvernig hann fór með konuna sína, sem hann drap og var settur í díblissu fyrir?« »Jú, við höfum raunar heyrt það,« sagði hin þriðja,. »en eg skil ekki í hvernig þessi úttaugaða

x

Gefn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.