Gefn - 01.07.1872, Side 91

Gefn - 01.07.1872, Side 91
91 í það var varið, því barmur og þúnglyndi er eitt, af því sem öflugast er til að eyðileggja líkamann og hafna öllum bata. Einn morgun kom María með matinn eins og vant var, en talaði ekki orð. Paganini sat á stóli og var að telgja knífskapt úr fílsbeini. Honum varð litið upp og þá sá hann að stúJkunni var einhvern veginn brugðið. Hann mælti þá: »hvað gengur að þér, skinnið mitt? þú ert grátin og segir ekki orð; hefur nokkuð illt viljað þér til?« »Æ já herra Paganini,« sagði María. »það mun vera nærgaungult að spyrja nákvæmar um það,« sagði Paganini. »J>að er það nú raunar ekki,« sagði María, »en eg get ekki sagt frá því.« »Eg skil hvað muni vera,« sagði Paganini; »unnustinn hefir hlaupið frá þér, og er floginn á brott.« »Hann á reyndarað skilja við mig, garmurinn,« svaraði María, »en hann getur ekki gert að því.« »Hvernig stendur á því?« sagði Paganini. »[>að gerir stríðið,« sagði María, hann á að fara yfir til Afríku að berjast við hundtyrkjann« — hún breiddi svuntuna sína fyrir andlitið og grét. »J>ví kaupirðu hann þá ekki lausan og færð annan í staðinn hans?« spurði Paganini. — María tók svuntuna frá andlitinu og gat ekki að sér gert að brosa. »J>ér eruð að gera að gamni yðar, herra Paga- nini,« sagði hún; »hvar ætti eg að fá penínga til að leysa hann út fyrir?« »Kostar það þá svo mikið?« sagði Paga- nini. »Já, núna er það einmitt svo dýrt«, sagði María; »fimtán liundruð fránkar er það minnsta sem þarf til að fá mann fyrir sig.« — Paganini tók með sinni laungu og mögru krumlu í höudina á Maríu og sagði: »Gráttu ekki María; ef vandræðin eru ekki meiri en þetta, þá skulum við sjá til hvort ekki megi komast úr þeim.« Hann tók minnisbók sína upp úr vasanum og ritaði eitthvað, en María fór. Nú kom veturinn, og læknirinn bauð Paganini að vera kyrrum í herbergi sínu allt fram í Martsmánuð og ekki fara út fyrir dyr. Paganini var auðsveipur við læknisboðið og hlýddi því stöðuglega. En nú þegar sumarið var liðið og blómin fölnuð, og hann gat ekki lengur setið í laufskálanum sem hann var

x

Gefn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.