Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Blaðsíða 70
72
hverju leyti skift milli sín eyjunum, og Bjarnarey sje kend við Björn hval-
maga í Túngarði, því að Bjarnareyjar-nafnið getur verið mjög gamalt,
og sennilegast er, að það sje þessi ey, sem Laxdæla segir að Þor-
kell Eyjólfsson hafi druknað nálægt. Það má telja víst, að hafi haffær
skip farið inn á Hvammsfjörð, — Höskuldur, Hrútur, Ólafur pá o. fl., —
þá hafi Röstin verið farin, því að hin eyjarsundin eru alt-of þröng fyrir
svo stór skip, þótt þau í fornöld hafi stundum verið farin á smærri skip-
um. Sumt bendir nokkuð til þess að Röstin muni hafa verið farin
tíðast. Geirmundur, tengdasonur Ólafs pá, lá við Öxney, Einar Skála-
glam druknaði á Einarsskeri í Selasundi; það bendir til að hann hafi
farið Röst, ef hann hefur komið af Hvammsfirði.
Hvaðan það er komið, að kalla Lambey Bjarnarey, veit jeg ekki,
en sjera Þorleifur Jónsson í Hvammi í Hvammssveit mun hafa kallað
hana það fyrstur, svo á prent hafi komist, og að líkindum eftir hon-
um dr. phil. Kr. Kálund. — Skipaleiðin liggur nálægt báðum þessum
eyjum þegar farið er út Hvammsfjörð og út Röst. Bjarnarey er tals-
vert utar á firðinum en Lambey, en það raskar ekkert sögn Laxdælu,
að sigling Þorkels hafi sjest af hvoru tveggja landinu, þótt átt sje við
þessa Bjarnarey, og gat mjög vel sjest af norðurströndinni, þegar
skipinu hvolfdi. Laxdæla segir, að viðirnir hafi rekið til hvorrar tveggja
strandarinnar, og það daginn eftir að skipið fórst. Það er athugandi
við þessa sögn, að viðina gat með engu móti rekið á norðurströnd-
ina í norðanvindi. Sennilegast er að viðirnir hafi flækst til og frá,
og rekið á endanum á strandirnar báðum megin fjarðarins, og stafina
síðast í Stafey; þótt norðanveðrið á Skírdag hafi fljótlega hægt, gat
tæpast viðrað svo, að viðirnir væru reknir til hvorra tveggja strand-
anna daginn eftir.
Sköfnungsey veit nú enginn hvar er. Mig minnir að Jón Bergs-
son, bóndi i Brokey, hjeldi það væri Ölvissker, en það er ekkert nema
lausleg tilgáta, sem engan rjett hefur á sjer, því að engin rök eru
færð fyrir því, og verða ekki heldur.
Andrjes H. Grímólfsson.
Akurborg .... 24
Akurhólmi .... 17
Akurhöfði .... 23
Akurtún ...... 21
Alsteinn.............87
Ábætir..............160
Álfhóll.............. 5
Banabrekka ... 22
Skrá yfir örnefnin.
Bjargey .... . 158
Bjarnarey . . . . 154
Blóti 15
Bótarhólmi . . . 105
Brandstangi . . . 35
Brandstangaborg . 36
Brandstangaflói . . 38
Brandstangatún . . 34
Brunnvík . . . . 16
Bæjarey . . . . . 123
Bæjareyjarhöfuð . 124
Bæjareyjarsker . . 125
Bæjarvogur . 127
Dagmálaeyjar . 69
Einisey . . . . . 100
Eiríksvogur . . . 134