Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Blaðsíða 34
36
Hinsvegar eru fegri fossar í Soginu, og allir kannast við Gullfoss
í Hvítá1).
Kallaðarnes (Kaldaðar—) í Flóa er 7lU km. í hánorður frá Skúm-
staðaþorpinu á Eyrarbakka, og liggur túnið norður að Ölfusá. Þar á
móts við rennur áin nærri í vestur, út undir Arnarbæli í Ölfusi. En
staður sá er 2 km. í útnorður frá Kallaðarnesi. Þarna á milli er áin
800—1000 metra á breidd. Frá þessum stöðum til sjávar fer áin að
snarbeygjast til suðurs, og er svo lygn, að hún hleður undir sig sandi
og jökulaur. Þar verða því eyrar og álar breytilegir. Hefur straum-
þungi lagst á bakkana og brotið þá til beggja hliða, en þó miklu
meira að austanverðu. í vestur og útsuður frá Arnarbæli eru eyjar
margar í ánni, sumar stórar og notaðar til slægna. Allar eru þær
nærri landi, og því ekki ólíklegt að þær hafi í fyrndinni verið land-
fastar2). Nú er þarna heldur að grynnast, og sumir hólmarnir að
stækka. Þegar fram dregur fyrir eyjar þessar breikkar árfarið ákaf-
lega mikið. Með árvexti, flóðfylli og ísalögum, gefur þar að líta svo
sem stærðar stöðuvatn, alt að 5 km. á breidd, frá Hamarendum austur
að Straumnesi, og 6—7 km. á lengd, frá eyjum að Skeiði. Skeiðið er
sandtangi mikill, sem skilur árlónið frá sjónum. En útfallið er mjótt,
um 300 metra, fast við austurlandið, og stefnir til landsuðurs. Hverfur
ósinn þegar frá dregur, og sést ekki nema á vissum stöðum. Ofantil
við ósinn er flutt yfir ána frá Óseyrarnesi. Bærinn er um 600 metra
austur frá ferjustaðnum, og 7 km. suður frá Arnarbæli.
Landbrotið.
Víst er um það, að Ölfusá hefur fyr á öldum verið miklu
mjórri en nú að neðanverðu, og þá fær hafskipum, með sjávarflóði
að minsta kosti. Hve lengi er óvíst, en sagnir benda þó fram á
1) Annað er þó undraverðara við Hvítá og dularfyllra. Hún hefur hvað
eftir annað — með margra ára millibili — horfið úr farvegi sínum, á kafla, móts
við Hestfjall i Grímsnesi. Vatnshvarfið hefur varað stundum saman, jafnvel
dægur, og veit enginn hvað verður af vatninu. Sagnir eru til um þetta að minsta
kosti frá árunum, 1594, 1702, 1829, 1864, 1913, -h og 1924 29/2. (Þ. Th.: Lýsing
íslands I. 315. — Annálar og dagblöð). — Landsstjórnin, í samráði við náttúru-
fræðinga, þarf framvegis að eiga vísa greinda menn, er við ána búa, til þess að
fara upp með ánni, undir eins og breytingar verður vart, og sjá hvar hún byrjar.
Og aðra menn til þess að athuga lægri vötn, nálæga hveri og uppsprettur. En
láta ekki jafn fágætt náttúruviðbrigði ganga alveg úr greipum sér i næsta skifti,
eins og að undanförnu.
2) Gamall maður hefur sagt mjer, eftir eldri mönnum, minnir mig, að í
einni af eyjum þessum hafi verið gamlir götuslóðar, samhliða ánni, svo sem
væru þeir leifar af umferð fornmanna eftir árbökkununi,