Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Blaðsíða 66
68
Stekkjarborgar er Stekkjarborgarflói (51). Austur-af Svartbakaholt-
unum eru eitt eða tvö holt, sem heita Sykurholt (52). Og er þá komið
austur að Brandstangaflóa. Fyrir sunnan Grýluborg er Treganes (53)
og fyrir framan það, en fellur þó á milli, eru Treganeshólmar (54)
og þar fram-af (vestur-af), en fellur sjór á milli, er Treganesstöng (55);
það er all-hár drangur. Það er gömul saga, að örn hafi hremt barn
i Hrappsey og flogið með það vestur í Treganesstöng, og af því sje
nafnið komið. Næsta nes fyrir austan Treganesið skagar í suður og
heitir Miðnes (56). Miðnesmýri (57) er norðan-til á því. Upp með
Miðnesi að austanverðu er vogur, kallaður Stekkjarborgarvogur (58).
og nær upp-undir Stekkjarborgarflóa. Fyrir austan voginn eru holt
heim að Nafnlausu-borgum, en fyrir sunnan þau og sunnanvert
við Stekkjarborgarvog er Fífunes (59). Sunnan-til í því er lending,
kölluð Langavör (60), og frá henni er holt heim-undir túngarðinn, og
er þá komið að Álfhól.
Þegar gengið er úr Undirtúninu í hólmana, þá er vör í rifið, sem
farið er eftir; hún heitir Strengur (61). Við suðurendann á rifinu er
rudd lægð í rifið; hún heitir Suðurstrengur (62). Þá tekur við Kvia-
hólmi (63); rifið vestur-af honum er til Smiðjuhólma (64). í rifið er
vör, sem kölluð er Hundavör (65). Austur-af Kvíahólma er hjallur á
litlum kletti. Gömlu Hrappseyingar höfðu fyrir vana, þegar sjófar-
endur settu upp á steina í Hrappseyjar-landareign, þá nefndu þeir
steinana nöfnum þeirra úr því. Norður-af nýnefndum hjalli er nokkuð
stór steinn, sem fer þó langsamiega í kaf um stórstraumsflæðar;.
hann heitir Nikulás (66), kendur við Nikulás á Hóli i Hvammssveit,.
afa Magnúsar frá Staðarfelli. Steinn lítill er þar nokkru sunnar, sem
um það leiti fer í kaf um smástraumsflæðar; hann heitir Magnús
(67), kendur við Magnús, sem lengi bjó í Dagverðarnesi á Skarðs-
strönd, Einarsson á Ytrafelli á Fellsströnd. Suður-af Kvíahólma er
Sultarhólmi (68). Rif liggur landsuður-af Kviahólma; i það er rudd
vör og er það vanalegasta bátaleiðin. Rifið liggur til Dagmálaeyjar
(69). Þá er Seley (70). Sundið milli þeirra heitir Seleyjarsund (71)..
Vestur-af Seley er Miðey (72). Milli þeirra heitir Miðeyjarsund (73).
Suður-af Miðey eru 3 hólmar og heita Miðeyjarhólmar (74). Suður-
af þeim, en nálægt, er all-stórt sker, sem heitir Svartasker (75). Skamt
suður-af því er hár hólmi, sem heitir Hesthöfði (76). Útsuður-af hon-
um, úti á miðju Breiðasundi, er hár hólmi, sem heitir Miðleiðarsker
(77). Norður-af Miðey er lítil, flöt ey, sem heitir Nautey (78). Vest-
ur-af Miðey er Yztey (79). Suður-af henni er hátt sker, sem heitir
Hvítasker (80). Norður-af Yztey er Yzteyjarflaga (81). Útsuður-af
Yztey er hár og stór hólmi, sem heitir Urðarhólmi (82). Suður-a£