Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Blaðsíða 14

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Blaðsíða 14
16 skipulegar og samfeldar. Er það trúa mín, að jafnvel nú á tímum væri einum eða tveimur mönnum ókleift verk, að semja jafn heil- steypta landslýsingu eins og þá, sem fólgin er í Landnámabók, nema ferðast um öll hjeruð landsins, útnes og afdali. Eru þó simar og og loftskeyti, brjefasendingar, brýr og vegir, slíku starfi mjög til hægðarauka, en alt þesskonar vantaði á ritöld. Hygg jeg það vera skrumlaust, að telja Landnámu bókmentalegt stórvirki. Og að fróðra manna áliti eiga aðrar þjóðir, þótt stærri sjeu, ekki eins forn og merkleg landnámsrit eins og íslendingar. Þá er og annað eftirtektarvert. Þrátt fyrir stálgreipar elds og ísa, óstjórnar og refsilaga, mannfallssótta og hungursharðinda, sem kramið hafa þjóðina miskunnarlaust, hafa fegurstu og frægustu bók- mentirnar lifað það alt af, þar á meðal Landnáma. Hafa þó bæjabrunar og kirkna — gert afskaplegan usla í hand- ritasöfn og eignir og gengið þannig öðrum óvinum þeirra á hönd. En »þá er eins og hulin hönd hjálpi’ er mest á liggur«. Einhver hulin verndarhönd hefur hjálpað í þessu efni — og það verður aldrei þakkað og metið, eins og skyldi, þeim mönnum, sem varið hafa kröftum sínum til styrktar og verndar þjóðlegum sögu- vísindum á aldalöngum erfiðleikatímum. II. Ef það er rjett, sem dr. B. M. Ólsen hefur haldið fram, að Ari fróði hafi fyrstur manna ritað um landnám á íslandi, hefur Ari orðið að afla sjer upplýsinga frá kunnugustu og minnugustu mönnum, í hverju hjer- aði. Sjerstaklega hefur hann átt erfitt með að fá hárrjettar lýsingar af sveitum þeim, sem fjarzt lágu dvalarstöðvum hans t. d. Norðurlandi. Líklegt er, að Ari hafi oft verið á Alþingi, og þá hefur hann átt hægast með að ná í fjærsveitamenn og spyrja þá spjörunum úr. En vitanlega gat þeim heimildarmönnum skeikað í ýmsum atriðum, er snerti landnámslýsingar og takmörk landnáma* 1). Ari getur þess í »Um tímatal i íslendingasögum* (Safn til sögu íslands II. B.). Kemur það í ljós, að tímatalsskekkjur og ættfærslu ónákvæmni eru ekki svo fáar í Landnámu, eins og eðlilegt er. Þó held jeg, að dr. Guðbr. byggi ofmikið í einstöku atriðum á sumum íslendingasögum, og að Landnáma hafi oftar rjett fyrir sjer, en hann hyggur. 1) Kolskeggur Ásbjarnarson (lögsögumaður frá 1139—1145) hefur verið ágætur heimildarmaður um landnám í Austfirðingafjórðungi. Mjög óviða mun skeika þar frá rjettu — sbr. ritgerð eftir sjera Sig. prófast Gunnarsson á Hallormsstað: Örnefni frá Axarfirði að Skeiðará (Safn II. B. bls. 429—497). Og þau fáu atriði, sem mishermd kunna að vera, geta stafað frá misiestri afritara eða misritun þeirra. (Sjá t. d. Safn II. 434).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.