Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Side 27

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Side 27
27 Sumum, sem lesið hafa frásagnir Jóns prófasts Halldórssonar eða Jóns Espólíns um þetta mál, mun hafa komið til hugar, án þess þó, að þeir gefi tilefni til þess —, að Appollonía hafi fyrirfarið sér sjálf og reynt að koma því á þær mæðgur, þeim til bölvunar. — Sama er að sagt, að átt hafi að koma fram við tilraunir með ósjálfráðri skrift, sem gerðar voru fyrir nokkrum árum á Bessastöðum, sbr. tímritið Iðunni, n. fl., VIII, 247—53 (E. H. Kvaran); en eins og þar er gefið í skyn, er ekki hægt að reiða sig mikið á slíkt. Og enginn, sem kynnir sér vel hin gömlu gögn málsins, mun geta fundið í þeim nokkrar líkur til, að Appollonía Swartskopf hafi fyrirfarið sér, — þótt ástæður hennar til þess virðist hafa verið meiri en sumra ann- ara, sem gripið hafa til slíks óyndis-úrræðis. VIII. Lönguhöfuðsmál frá Ánanaustum o. fl. Á næstu árum komu engin stórtíðindi fyrir þing í Kópavogi, en nokkur skrýtin smámál voru þar til rannsóknar og dóms, svo sem barsmíðamál frá Arnarhóli 1728, og s. á. mál Guðrúnar Björnsdóttur, sem hafði sagt það um tvær aðrar konur, að þær hefðu haft hold- legt samræði við mann hennar; var hún spurð að því í réttinum, »hverjar orðsakir hana hefðe þar til dreigeð að lýsa þessum ókvæð- um uppá áðurnefndar kvennsvifter, hvar til hún svaraðe, að hún hefðe giört það efter því að ein huldu kona hefðe sagt sier það i draume«. — Hún slapp með að biðja fyrirgefningar og standa opin- bera aflausn. Næsta vor, 23. maí 1729, kom fyrir nýtt lönguhausmál, frá Ána- naustum. Christian Luxstorph landfógeti hafði stefnt hjónunum þaðan og þriðja manni, og enn fremur sjálfum sökudólginum, Illuga Bjarna- syni, sem hafði játað, að hann hefði sett upp lönguhausinn. Vitnin báru, að það hefði verið 31. marts og hausinn hefði verið settur á birkistaur á hjallinn. Hausinn sneri mót vestri, var óuppskorinn og óupprifinn, gapti dálítið og var þaninn upp með 2 smáspýtum, en ekkert letur var á þeim. — Þegar Illugi var spurður, »hvar fyrir og til hvers, samt í hverri meiningu og tilgangi« hann hefði sett hausinn upp, þá kvaðst hann hafa gert það af »heimsku og narraraíi«. Þá var hann spurður, »hvort hann hafi ei heyrt, að þeir, sem hafa áður til forna með sama hætti upp reist lönguhöfuð, hafa verið hafðir og kallaðir að vera orsök og efni til illviðra og storma, og hafi þar fyrir við kaga hýddir verið. Hvar til Illugi svaraði, hann hefði það heyrt«, en kvað það ekki hafa verið tilgang sinn með uppsetningu höfuðsins, og var til með að sverja það, og að hann hefði ekki viljað »djöfulinn dýrka með orðum eða atvikum«; en ekki var honum leyft að sverja.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.