Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1970, Blaðsíða 38
42
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
brota þessara eiga að þeim greiðan aðgang á Þjóðminjasafni. Ein-
ungis heillegustu hlutanna og þeirra brota, sem greinarhöfundur
hefur haft sér til hjálpar við tímasetningu húsaleifanna, verður hér
getið. Þó er rétt að gefa yfirlitstöflu yfir mældar hlutaeiningar áður
en hinir einstöku hlutir verða ræddir.
alls eir járn gler steinn leir annað
Mældar einingar (x,y) 296 85 71 60 44 22 14
Mældar einingar (x,y,z) 256 76 61 53 40 16 10
Mismunur 40 9 10 7 4 6 4
Á ofanskráðri töflu er sýnd tala legumældra eininga og hversu mæld-
ar þær eru. Þá er og sýnt úr hvaða efni þær eru. Sá mismunur sem
sýndur er og er ekki eins vel mældur og annað, lá allur mjög ofar-
lega miðað við dýptarlegu hinna betur mældu eininga. Kemur það
mjög vel fram á frumriti fundaskrár. Mun nú getið nokkurra fund-
inna hluta að Varmá. Fundaskrárnúmer stendur í svigum jafnóðum
við þá hluti sem getið er.
Meðal merkari eirhluta er eirhani (48), á honum er skrúfa eða
handfang líkt og smárablað eða lauf í spilum í laginu og eru göt
í gegn í hverju blaði. Neðarlega á skrúfunni eru stafirnir HZ stimpl-
aðir og er kóróna yfir þeim. Þessi gerð hana kemur fram á síðmið-
öldum og hefur haldizt inn í nýrri aldir. Hanar af þessu tagi munu
þó nokkrir hafa fundizt annarsstaðar á Norðurlöndum og fyllir ís-
land nú hópinn.10 í gömlum úttektum má stundum rekast á kopar-
hana, sem geymdir eru í skemmu eða ölkjöllurum.* 11 Voru hanar
þessir reknir í öltunnurnar þegar tappa skyldi af þeim. Er ekkert
líklegra en að þeir hafi í fyrstunni fylgt innfluttum bjór. Áður-
nefndur hani lá mjög ofarlega í jörðu, svo ofarlega að hann verður
helzt rakinn til efsta hússins, en þar hefur hann legið undir vegg.
Verður því að ætla, að hann hafi verið geymdur nokkuð lengi. Hins-
vegar var eirtappi (89) fundinn í gólfskán smiðjutóftarinnar. Tappi
þessi er sennilega hluti af hana, á honum er handfang, bogadregið
efst, en tappinn sjálfur er sívalur eins og oddskorin keila og gat í
gegnum sívalninginn. Líklegt er þess vegna að tappinn sé skrúfu-
ventill úr ölhana. Svo sem sést af töflunni hér að framan, eru margir
hlutir skráðir sem eru úr eir. Var þetta mest allt þynnupjötlur, sem
10 Sigurd Grieg (1933) bls. 172.
11 t. d. í inventarium Viðeyjarklausturs 1553, sjá Dipl. Isl. XII, bls. 597.