Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1970, Síða 130
134
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Sýning á myndum Ólafs Túbals, 6.—14. des.
Steingrímur Sigurðsson, málverkasýning, 16.—21. des.
Aðsókn að þessum sýningum var mjög misjöfn, eins og vænta
mátti, en að frátalinni kvenbúningasýningunni varð hún mest að
sýningu Félags ísl. gullsmiða.
Safnaúki.
Á árinu var færð 171 færsla í aðfangabók safnsins og er það með
mesta móti ef ekki almest á einu ári. Aðallega er um gjafir að ræða
eins og æfinlega, en þó voru nokkrir gripir keyptir. Flest er þetta
smálegt, en innfærslurnar segja þó ekki til um gripafjöldann, sem
bætzt hefur á árinu, því oft eru margir gripir innifaldir í sömu
færslu.
Meðal helztu gripa, sem safnið eignaðist á árinu, eru þeir er nú
skal greina:
Fimm smástyttur úr fílabeini og fleiri smáhlutir, gef. frú Ása G.
Wright, Trinidad, sem gefið liefur safninu margháttaðar gjafir á
undanförnum árum og getið hefur verið í fyrri skýrslum; klæðis-
peysuföt o. fl. tilheyrandi kvenbúningum, gef. Ólafía Þorláksdóttir,
R.; útskorinn kistill, gef. Erlendur Stefánsson, Neskaupstað; græn-
lenzkur klébergssteinn með krossmarki, gef. Ragnar Ásgeirsson ráðu-
nautur, R.; skatthol og fjölmargir smáhlutir, gef. Ásta Málfríður
Bjarnadóttir, R.; tvær klukkur, mikil völundarsmíð, er sýna m. a.
tunglkomur, mánuði, mánaðardaga, vikudaga og hlaupár, smíðaðar
af Eyjólfi Þorkelssyni úrsmið, verðlaunagripir á sýningum hér heima
og erlendis, (keyptar) ; fjórar eftirmyndir af myndum úr leiðangri
Sir Joseph Banks, (keyptar) ; útskorin fjöl frá 15. öld, gef. Byggða-
safn Vestfjarða; kvikmyndarfilma frá 100 ára afmæli prestaskól-
ans, afh. af sr. Jóni Auðuns; olíumálverJc af Stefaníu Weile leik-
konu, gef. dóttir hennar Irma Weile-Jónsson; nákvæmar teikningar
og uppmælingar af þremur gömlum bæjum, Þórormstungu í Vatns-
dal, Galtarstöðum fram í Hróarstungu og Húsum í Holtum (keypt-
ar) ; altarisklæöi frá 1649 og skírnarfat gamalt, frá Hagakirkju á
Barðaströnd; silfurskeið eftir Þorgrím Tómasson gullsmið, gef.
Kristín L. Sigurðardóttir fv. alþm; kvikmyndarfilma, sem norska
sjónvarpið gerði í tilefni 25 ára afmælis ísl. lýðveldisins, afh. af
Skrifstofu forseta Islands; saumaJcassi úr eigu Ingibjargar, konu
Jóns Sigurðssonar, dánargjöf Ingibjargar Pálsdóttur frá Siglufirði;
upphlutur frá 1914—1920, gef. Ólafur Þorvaldsson, R.; kvikmyndar-