Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1970, Blaðsíða 137
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1969
141
Á Þverá í Laxárdal var lokiS viðgerð baðstofunnar, en í síðustu
skýrslu var þess getið, að hafin væri viðgerð þess merka bæjar.
Reynt er að vanda svo til viðgerðarinnar sem kostur er, til dæmis
er járn sem sett er á þökin undir torfið, látið ná út yfir veggi, til
þess að varna rennsli niður í veggina. Má ætla, að þetta gefi góða
raun, enda fer vatn mjög illa með torfveggi og eyðileggur þá til-
tölulega fljótt.
Önnur stórátök voru ekki gerð viðvíkjandi gömlu bæjunum á ár-
inu, en víða voru framkvæmdar minni háttar lagfæringar sem gera
þarf frá ári til árs. Eins og fyrr hefur verið vikið að er nú orðið all-
erfitt að fá menn til slíkrar vinnu, enda eru fáir núorðið sem kunna
eða vilja fást við torfverk. Innan tíðar hlýtur að skapast vandræða-
ástand í þessu efni.
Viðey.
Á árinu var hafizt handa um viðgerð Viðeyjarstofu, en á sérstök-
um fjárlagalið var veitt 1 milljón króna til viðgerðarinnar, auk þess
sem til var fé frá fyrra ári, kr. 364 þúsund. Voru því alls kr. 1364
þúsund handbærar til viðgerðarinnar og var unnið fyrir það fé allt
að lieita mátti.
Bjarni Ólafsson kennari tók að sér að annast viðgerðina, en hann
sá um viðgerð Viðeyjarkirkju árið 1965. Var hann með flokk manna
mestallt sumarið í eynni, en múrverk annaðist Davíð Þórðarson
múrari og Þorsteinn Gunnarsson arkitekt sagði fyrir í samráði við
þjóðminjavörð um, hversu viðgerðinni skyldi hagað, og hafði hann
yfirumsjón með hinni byggingarlegu hlið viðgerðarinnar.
Viðgerðin hófst snemma í júní. Við gaumgæfilega athugun á hús-
inu kom í ljós, að það reyndist mun meira skemmt en ætlað var í
upphafi. Sprungur í veggjum voru víða mjög djúpar, og þurfti sums
staðar að brjóta parta úr veggjum og hlaða upp að nýju. Alls
staðar þar sem pússning var laus, var hún brotin frá og pússað
að nýju, og einnig voru veggir allir sýruþvegnir og hreinsaðir með
vírburstum. Allmikið verk var við að pússa kringum glugga og
hurðir, og einnig var grafið niður með sökklinum og pússað niður á
hann.
Veggir hússins mega nú teljast komnir í gott lag, og er það mik-
ilsverður áfangi, auk þess sem gluggar eru komnir í. Gluggar þeir
sem síðast voru í húsinu, voru gerónýtir, enda ekki upphaflegir.
Sýnt þótti, að hinir upphaflegu gluggar hefðu verið úr eik og nokkru
síðari en nýrri gluggarnir. Var það ráð tekið að smíða nýju glugg-