Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1975, Blaðsíða 35
STAFSMÍÐ Á STÓRU-ÖKRUM
39
12. Skálinn hafði Jón heyrt, að hefði verið með lofti og gólfi og alþiljaður eins
og stofan. Gangur hafði verið í hann úr bæjardyrum.
13. Þilstafnar voru fram á hlaðið á öllum framhúsunum.
Fjós var á Ökrum þegar Jón var þar, sem talið var frá tíð Skúla og byggt
af honum. Fjósið tók 10—12 nautgripi og var viðað að sama skapi og bæjar-
húsin. Þó hélt Jón að ásarnir í fjósinu tækju öðrum viðum fram. Fylgdu þeim
þau munnmæli, að Skúli hefði ekið þeim fram vötnin og í bakkann niðrundan
Ökrum. Um vorið hefði svo Skúli látið setja tré þessi upp á gráa meri, 19 vetra,
er hann átti, hverju hrossi vænni og gamla reiðmeri. Dróst sú gráa með trén upp
undir túnið og hné þar dauð niður.
Rétt er nú að líta ögn nánar á húsalýsingu Jóns blinda og grunn-
myndarriss Péturs á Gautlöndum (teilming XIX). Vart þarf að taka
það fram hvílíkur fengur er að vitnisburði Jóns. Trúverðugur blær
er yfir honum og í meginatriðum hlýtur lýsing og mynd að vera
rétt. Þó er ýmislegt sem ekki kemur heim og saman við athugun á
húsunum nú og þarf engan að undra. Mál á stofu og bæjardyrum
standast ekki alveg. Bæjardyrnar telur Jón vera 12X6 ál. Að öllu
jöfnu ætti að gera ráð fyrir því að hann noti danska en ekki íslenska
alin. Rétt er þó að athuga báða möguleika. Jón segir bæjardyra- og
stofutóftirnar jafnstórar, 12X6 álnir. Af grunnmyndinni að dæma
virðist miðað við innanmál torfveggja og stafnþilja. I umreikningi
eru 12X6 álnir danskar 7,52X3,76 m, en íslenskar 6,84X3,42 m.
Bæjardyratóftin innan torfveggja og framstafns er nú 5,75 m að
lengd að þilstafninum innanverðum en 3,40—3,45 m á breidd. Hér
virðist breiddin koma heim og saman, séu notaðar íslenskar álnir,
en lengdin ekki. Stofutóftin er nú 3,70—3,90X6,25 m. Hér er hvorki
lengd né breidd eins og hjá Jóni. Bersýnilegt er að hann misminnir
um lengd húsanna. Jón blindi telur þau jafnlöng, en bæjardymar
eru styttri og þykir mér trúlegt að svo hafi alltaf verið.
Annað tortryggilegt í frásögn Jóns blinda er sú fullyrðing hans
að skarsúð hafi verið bæði í lofti bæjardyra og stofu, ekki síst að
súðin hafi náð niður á veggi að innanverðu. Vel má vera að stofan á
Stóru-ökrum hafi einhverntíma verið með skarsúðarklæðningu. Hitt
er augljóst, sé sú ályktun rétt sem hér að framan var dregin um upp-
haflega innréttingu stofunnar, að þá hlýtur stólpaþil og reisifjöl að
hafa verið á henni í upphafi, og nú er reisifjöl bæði á stofu og bæjar-
dyrum. Smíð sú, sem Jón blindi segir hafa verið á stofu Skúla, er
ákaflega gróf og á sér enga samsvörun við þá smíð sem mér er
kunnugt um af fomum úttektum.