Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1975, Blaðsíða 122
126
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
45. Holt hið ytra: Sá bær ber sama nafn enn. Ysti bær í Tjamar-
sókn suður frá Upsasókn, og þegar sagan hefur verið færð í letur
þá hefur Syðraholt verið líka byggt, sem ogsvo er byggt enn. Ekki
sést nú merki til með vissu, hvar goðahúsið hefur staðið sem segir
í sögunni að Geirdís hafi gengið frá, er hún mætti Karli rauða, er
hann vildi finna son hennar. Þó eru gömul munnmæli að það hafi
staðið út á svokölluðu Halldórsgerði, sem skammt er fyrir utan tún
á Holti.37 Eru þar margar tóftir og garður í kring, því líkast að
þar hafi bær verið til forna. Þó er þar ekki bæjar getið, það ég veit,
að fornu. Það er eitt með öðru sem vantar í Svarfdælu og sem hefur
þó líklegast staðið í kafla þeim sem vantar í hana, um þessa Geirdísi
í Holti og Geira son hennar sem Karl drap, að sjá saklausan, eftir
sögunni. Enn mætti geta til, að Geirdís hafi verið í vinskap við Ljót-
ólf, og Geiri hafi verið einn í atförinni að Karli í hólminum undan
Grund með Ljótólfi deginum áður, og því Karl hefnt sín á honum.
Geirdís hefur búið í landnámi þeirra feðga Þorsteins og Karls.
46. Holtsdalur: Dalurinn upp frá Holtunum, er óbyggður og ber
sama nafn enn, og rennur áin af dalnum ofan á milli bæjanna og
heitir Holtsá.
47. Böggstaðir, nú almennt kallaðar Böggustaðir eður Böggvers-
staðir, réttast Böggvestaðir. Hún ber sama nafn enn og er 40 hundruð
að dýrleika með hjáleigunni Árgerði. Þessi bær hefur líklegast ekki
verið byggður, þegar þessi saga gjörðist, sjá 30. kapítula Svarf-
dælu.
48. Geiravellir: Nú oftast kallað Geiragerði eður Teigakot. Er
sagt, að það hafi verið fyrr byggt en nú til margra ára í eyði.38 Þetta
gerði er út og upp frá Hrappsstöðum, nokkuð langt út og upp undan
:i7 Talið er að Halldórsgerði utarlega í Ytraholtslandi hafi nafn af Halldóri
nokkrum Skeggjasyni, sem allvíða bjó í dalnum á sinni tíð. Hann mun hafa
hafst við í Halldórsgerði 1780—81. Á árunum 1881—1903 var þar samfelld
byggð af húsmennskufólki, en lögbýli var aldrei á þessum stað. Þessi hús-
mennskubyggð er ekki til komin fyrr en eftir að Þ. Þ. skrifar ritgerðina, svo
sem sjá má.
•'i8 Fróðleik þennan um Geiragerði og Teigakot er ekki annars staðar að finna
og svo gæti virst sem um ósvikna arfsögn væri að ræða, en vafasamt er
það. í örnefnaskrá Margeirs Jónssonar er Geiravellir sagt týnt örnefni, sbr.
og Eyfirðinga sögur 1956, bls. 187, og Teigalcots eða Böggvisstaðateiga er
að engu getið, en í skrá eftir Magnús Jónsson í Hrappsstaðakoti um 1965 er
Teigakot nefnt. — 1 áðurnefndum jarðabókarútdrætti, sjá athgr. 9, stendur
þessi einkennilega klausa: „Teigakot, þess getr í Svarfdælu, nu Ruster",
Þetta hefur Þ. Þ. þekkt, hvort sem það hefur haft áhrif á ummæli hans
eða ekki.