Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1975, Blaðsíða 70
74
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Ekkert greinilegt gólf var í rústinni en smáflekkir af viðarkola-
salla og móösku hér og þar.
Stoðir höfðu borið uppi þakið í byggingunni og mátti greina að
verið höfðu tvær raðir eftir endilöngu húsi. Fundust þrjár holur úr
eystri röðinni en tvær úr hinni vestari. Bilið milli holanna í eystri
röð var 1,5 og 1,7, en milli hinna tveggja í vestari röð 1,8 m. Á milli
raðanna hefur verið rúmur metri (4. mynd). Leifar fundust af sjálf-
um stoðunum í tveimur syðri holunum í eystri röð. Stoðirnar virtust
hafa verið ákaflega grannar, eða ekki nema 5—7 sm í þvermál. Sjálf-
ar holumar voru allar mun stærri, 15—20 sm í þvermál, og hafði
verið fyllt í þær með sandi allt í kringum stoðirnar en ekki stutt að með
neinu grjóti. Holurnar voru um 40 sm að dýpt. Miðholan í eystri
röð var tvöföld, þ. e. þar höfðu sýnilega verið tvær stoðir hvor á eftir
annarri og ekki nákvæmlega á sama stað. Á tveim stöðum, sunnan
við syðri holu í vestari röð og suðvestan við nyrstu holu í eystri röð,
voru steinhrúgur litlar sem hefðu getað verið undirstöður undir
stoðir sem ekki voru grafnar niður. Gætu þær bent til að breyt-
ingar hefðu verið gerðar á burðargrind hússins einhvem tíma
meðan það var í notkun.
Við suðurgafl var lítil grjóthleðsla sem torvelt er að segja um
til hvers hefur verið, 70 sm löng, 20—30 sm víð. Var hún gerð úr
fremur flötum steinum og var líkast því sem um lítinn stokk eða
þró væri að ræða, sem væri nú fallin saman (5. mynd). Ekki virtist
þó sem hún hefði verið ætluð undir eld eða glóðir því hvorki var að
finna vott af ösku né kolum í henni.
Frá neðri brún veggjasteina var skammt (10—25 sm) niður á
rauðleita möl sem var undir allri tóftinni. Yfir mölinni var óhreyfð
mold. Engin eldri bygging hefur því verið á þessum bletti.
Við vesturvegg miðjan kom í ljós 2—3 sm þykkt lag af viðar-
kolum, móösku og brunnum beinum og hélt það áfram undir innri
steinaröð og inn undir miðjan vegg. Hús þetta er því reist þar sem
áður hefur verið kastað út ösku frá nálægri byggð og má því álykta
að einhverjar af næstu tóftum séu eldri en þessi. Yfir tóftinni lá
samskonar lag, sem er merki um mannavist á þessum slóðiun einnig
eftir að hætt var að nota húsið.