Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1975, Page 72
76
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Inni í miðri rúst, eða nánar tiltekið um 2 m frá vesturhlið, var
gryfja með miklu af beinum í, tæpur hálfur metri í þvermál. Einnig
fannst töluvert af beinum á víð og dreif um tóftina. Beinin voru
flest úr kindum (sjá skýrslu Sigurðar Sigurðarsonar í Viðauka).
Hugleiðingar og lokaorð
Því miður fannst ekkert við uppgröft þennan er gæfi vísbendingu
um aldur rústarinnar, né heldur gæfi til kynna hvers konar hús
þetta var.
Vegna þess hve nærri Hegranesþingstað rústin er, verður tilgátan
um þingbúð sennileg; þó er ekki fært að fullyrða þetta.
Sú tilgáta kemur að vísu ágætlega heim við það að ekkert reglulegt
gólf fannst í rústinni. I byggingu sem aðeins var hafst við í yfir þing-
tímann, en stóð auð og e. t. v. opin aðra tíma árs, mundi ekki mynd-
ast mikil gólfskán.
Það stæðist einnig vel að ekki fannst neitt eldstæði í húsinu. Ekki
eru líkur á að menn hafi staðið í mikilli eldamennsku á þingi, heldur
eðlilegt að gera ráð fyrir að þeir hafi búið við skrínukost.
Þetta tvennt gat þó eins einkennt eitthvert útihús á bóndabæ.
I þriðja lagi má nefna hinn mikla fjölda af kindabeinum, lærbein-
um og leggjum. Sú hugsun læðist að okkur að hér séu leifarnar af
skrínukosti þingmanna, kjötlærunum sem þeir höfðu í nestið er
þeir riðu til þings.
Að fornu er að jafnaði talað um að tjalda búS á þingum og er það
venjulega skilið svo sem þak hafi ekki verið á þingbúðum, en þess
í stað verið tjaldað yfir þær með vaðmálstjöldum. Ef Hegranes-
rústin er þingbúð, hvaða líkur eru þá til að hún hafi verið tjölduð ?
Þakið í Hegranesrústinni hefur verið borið uppi af stoðum, úr
hvaða efni sem það hefur verið. Er ekki annað að sjá en að burðar-
grind hússins hafi verið af algengri gerð.
Það sem gæti bent til tjaldþaks, er hversu grannar stoðirnar
virðast hafa verið. Sýnist með ólíkindum að jafnmjóir stólpar hafi
borið uppi þunga torfþaks og rafta. Ekki fundust heldur nein merki
um torfþak, sem hefði mátt eiga von á inni í tóftinni. Eins og áður
segir sýnir ein holan það glöggt að þar hafa staðið tvær stoðir, og
einnig virðast á tveim stöðum stoðaundirstöður rétt hjá stoðarholu.
Gæti þetta bent til þess að burðargrind hafi verið reist oftar en
einu sinni á sama stað. Eru þetta e. t. v. merki þess er þingfarar-